Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1947, Page 44

Náttúrufræðingurinn - 1947, Page 44
186 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN félagsins og mæltist til að fá efni i bókina, lét sem sér kæmi ókunnug- lega fyrir, að ég hefði ekki lekið að mér að skrifa í ha'na. En ég sagði honum sem var, að enginn hefði beðið mig þess, og það með, að ég myndi aldrei skrifa einn stafkrók í þessa bók. Við það lief ég staðið. í nóvembermánuði hringdi Guðjón O. Guðjónsson til mín. Hann sagði mér, að nú ætti bráðum að koma út bók um Heklugosið eftir Guðmund Einarsson, og bað mig leyfis að taka mætti upp í liana kafla úr Heklubók minni, Arbók Ferðafélags Islands 1945. Ég taldist undan í fyrstu, þóttist nú ekki eiga aðstandendum þessa útgáfufyrirtækis neitt upp að unna, þeir liefðu með auglýsingu sinni í vor hermt upp á mig loforð eða a. m. k. vilyrði, sem ég liafði aldrei gefið og hefði ekki getað efnt, og með því gert mig að svikara í aug- um þeirra, sem trúa því, sem í blöðum stendur. En ég liéll nú (og held raunar enn), að þetta hefði fremur verið frumhlaup og óvilja- verk en hrekkur og bæri ekki að erfa það, og þegar Guðjón benti mér á, að ágóði af bók Guðmundar Einarssonar ætti að renna til þeirra Rangæinga, sem tjón hefðu beðið af Heklugosinu, gat ég ekki synjað leyfisins, því að Rangæingar lieima í héraði eru alls góðs maklegir af mér. Ég tók þó skýrt fram í símtalinu — og þeirra orða minnist Guðjón Ó. Guðjónsson enn — að það, sem upp yrði tekið úr bók minni, skyldi birt innan tilvitnunarmerkja og heimildar- innar (Árbókar F. í.) getið í hverjum stað. Ég hafði skilið svo, að Guðmundur Einarsson ætlaði að vitna í bók mína sem fræðirit, annaðhvort í gagnrýni skyni eða til uppfyllingar j)ví, sem hann liefði sjálfur að segja. Og myndi ég raunar láta óátalið, þó að slíkt væri gert leyfíslaust. Af þessu ætti að vera ljóst, að ég á engan Jrátt í Jressari bók og hef ekki skrifað einn stafkrók í liana. Það er rangt, sem stendur á titil- Itlaðinu, að ég sé annar höfundur hennar (Raunar stendur nafn rnitt jrar ekki fullum stöfum, lieldur skammstafað Guðm. Kjartansson, að dönskum hætti. Eins er farið nteð nafna minn frá Miðdal). Um kaflann, sem tekinn er upp úr Heklubók minni (Árbók F. í. 1945, bls. 137—148), er þess hvergi getið, hvaðan hann sé tekinn, og Javí síður er hann birtur innan tilvitnunarmerkja. Hann heitir „Úr sögu Heklu — Heklugos." Litlu hefur verið sleppt úr honum, en þó því, sem ekki mátti: skýringu á Jrví, hvernig skilja beri skrá yfir Hekluhraun, j>ar sem þau eru flokkuð eftir aldri, og spurnarmerkj- um í þeirri skrá, sem tákna óvissu um, að hraunið, sem síðast var nefnt, sé rétt sett í skrána. (Ég skal raunar viðúrkenna, að það liefði

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.