Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1948, Síða 29

Náttúrufræðingurinn - 1948, Síða 29
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 75 hætti. En gosgufan var lieit og þess vegna var kolsýran í henni litlu eða engu þyngri í sér en venjulegt andrúmsloft (145° iieit kolsýra og 0° heitt andrúmsloft hafa sömu eðlisþyngd við sama þrýsting). Af þeim ástæðum hlaut öll sú kolsýra að rjúka út í loftið og blandast því, svo að hennar varð ekki vart. En kolsýruloftið, sem nú fyllir gjár og glufur í Hekluhraununum ofan jarðvatnsflatar, er aðeins 2—3° heitt (og þetta lága hitastig stuðlar að því, að það tolli þar). Kolsýran í þessu lofti hefur því kólnað um mörg hundruð stig frá því, er hún skildist frá bergkvik- unni. Kólnunin hlýtur að liafa farið fram neðanjarðar á leið kol- sýrunnar upp. Þykir mér flest benda til, að sú leið liggi í gegnum jarðvatnið og öll kolsýran — einnig sú, sem nú er loftkennd ofan jarðvatnsflatar — liafi um skeið verið upp leyst í því. Þessi skoðun styðst m. a. við það, að hitastigið í kolsýrugjótunr hraunanna og vatnsuppsprettum undan sömu hraunum er Jrví sem næst jafnt. Eins og fyrr var getið, hefur mér mælz't liiti í kolsýrugjótunum 21/)°. En mælingin er ekki nákvæm, getur skakkað nokkrum tíundu hlutum úr stigi. Til Jiess að lesa á mælinn verður að kafa með höf- uðið niður í kolsýrugjótuna, og þar er illgerlegt að halda opnum augunum. Með iágmarksmæli væri þó auðveit að mæla Jretta ná- kvæmlega. — Efsta botn Næfurholtslækjar, suðurbotninn, hef ég mælt 30. marz 1945, 2.0°, og tíu sinnum frá byrjun Heklugossins, kaldastan 10. júlí ’47, 1.8°, og heitastan 9. nóv. ’47 og 19. sept. ’48, 2.3° í bæði skiptin. Og upptök Nýjabæjarlækjar voru 3.0° 10. ág. 1945 og 3.1° 24. júlí 1948. Eftirtektarvert er, að kolsýruloftsins verður ekki vart fyrr en í tals- verðri fjarlægð frá gosstöðvunum í Heklu. Loddavötn eru um 7 km frá næsta eldgíg síðasta goss og hinar kolsýrulautirnar enn fjær. Þetta kann að þykja benda til, að kolsýran hafi komið aðra leið en gosið sjálft upp frá bergkvikunni í djúpinu og jafnvel óháð hinum gosefnunum. Samt er það skoðun mín, að hvort tveggja hafi verið samferða mikinn hluta leiðarinnar upp og kolsýran hafi þá, ásamt öðrum rokgjörnum efnum, verið uppleyst í hraunkvikunni. Þegar kvikan nálgaðist yfirborð jarðar og þrýstingur utan að henni minnkaði, skildust rokgjörnu efnin að mestu frá henni í sprengingum. Nú er gosið hætt og hraunrásin lokuð, en búast rná við, að kvikuleifar

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.