Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1948, Side 42

Náttúrufræðingurinn - 1948, Side 42
Ingimar Óskarsson: Nafngiftir plantna Eins og mörgum mun vera kunnugt, ber hver einasta þekkt plöntutegund alþjóðlegt lieitþ sem nefnt er vísindanafn hennar og er ætíð skráð á latínu. Nafnið er aldrei styttra en tvö orð. Er fyrra orðið lieiti ættkvíslarinnar, en hið síðara (eða hin síðari) tegunda- heiti, sem oftast ber í sér merkingu einhverra ytri einkenna eða eðlis, sem viðkomandi planta hefur. Sem dæmi má nefna: Ranunculus acris, sem við nefnum brenni- sóley á íslenzku. Hér er fyrra orðið Ranunculus sameiginlegt heiti allrar sóleyjarættkvíslarinnar, en orðið acris, sem þýðir beiskur, er tákn um eðli tegundarinnar, enda eru blöðin beisk á bragðið. Stundum hefur svo farið, að tveir eða fleiri grasafræðingar hafa því sem næst samtímis lýst nýrri plöntu og gefið henni nafn án þess að vita hvor af öðrum. Á þann hátt skapast tvö eða fleiri vís- indanöfn á sömu tegund, og hefur það oft valdið óþægindum og jafnvel ruglingi á meðal vísindamanna. Einnig er það lítt þægilegt fyrir alþýðu manna, sem notar þessi nöfn, þegar flórur ýmissa landa hafa hver sitt nafn á sömu tegund. Nú eru grasafræðingar að reyna að koma þessu í betra horf þannig, að elzta nafn hverrar tegundar eigi að gilda. Oft er örðugt að komast að réttri niðurstöðu í þess- um efnum og ekki annarra meðfæri en mjög lærðra vísindamanna. Á meðan breyting þessi er að fara fram, má búast við allmikilli ringulreið á vísindanöfnum í ýmsum flórum og öðrum ritum grasafræðinga. En breyting þessi ætti að verða mikill ávinningur, ekki einungis fyrir vísindamenn, heldur fyrir námsfólk og áhuga- menn, sem nota mikið vísindanöfn. Snemma á tímum urðu til nöfn á plöntum á hinum margvíslegu þjóðmálum. Sér í lagi var algengum plöntum og þeim, sem voru til einhverra nytja, gefin nöfn, og urðu stundum til mörg nöfri á sömu plöntu.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.