Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 32
92 NÁTTtJRUFRÆÐINGURINN þessar fínu „lúxus-hallir“ standa auðar og engum til gagns, þá lái ég honum ekki, þótt ágirndin kvikni í brjósti hans og því fremur, hafi hann sjálfur átt lóðina. Eða hvaða ríkisstjóra væri fundið það til for- áttu? Oft hafa þó fálkar orpið hér á syllum og í skútum rétt við þessar hallir hrafnsins, eða nánar tiltekið, milli þeirra og bjargsins ofan viÖ, til þess sýnilega að hafa þar ennþá betra skjól. Mér virðist það vera sönnun þess, að þeir una betur möl og sandi sem undirsæng, og góðu skjóli en glæstu hallarrúmi. Að lokum þetta: Það er smánarblettur á skildi hins tigna víkings á loftleiðum, íslenzka fálkans, að ætla honum annað eins og að fara að burðast með sprek og annað hafurtask til heimkynna sinna, og engum sæmandi að draga hann þar í dilk með stórþjófnum og við- sjálsgripnum honum krumma.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.