Náttúrufræðingurinn - 1953, Síða 33
Sigurður Þórarinsson:
„Útdauðir” íiskar í fullu fjöri
Mörg furðuleg kvikindi liafa verið dregin upp úr úthöfunum sið-
ustu áratugina, en ekkert mun þó hafa vakið meiri athygli en fiskur
sá, sem suður-afríkanskur togari fékk í botnvörpu sína nálægt Mada-
gaskar í desember 1938. Þessi fiskur, sem var hálfur annar metri á
lengd, stálblár að lit og vó 58 kg, var svo ólíkur öllum öðrum fiskum,
er skipstjórinn hafði séð um dagana, að hann hringdi til náttúrugripa-
safnsins í borginni East-London í Suður-Afríku, þegar hann kom til
hafnar þar, og skýrði frá þeim merkilega fiski, sem hann hefði um
borð. Forstjóri safnsins, J. B. L. Smith, prófessor, var fjarverandi, en
aðstoðarstúlka hans, fröken Courtney Latimer, kom á vettvang. Hún
sá þegar, að hér var um frumstæðan fisk að ræða og hirti hann. En
þegar prófessorinn kom heim, vissi hann ekki hvort hann átti fremur
að gleðjast eða gráta. Fiskur sá, sem fröken Latimer hafði hirt, reynd-
Latimeria chalumnœ. Fiskur veiddur norðvestur af Madagaskar 1938.
(Or 111. London News).