Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1957, Side 4

Náttúrufræðingurinn - 1957, Side 4
50 NÁTTÚRUFRFÆÐINGURINN sto£na grasstráa og sæjum puntskúfana bærast í golunni, hátt yfir höfðum okkar, líkt og værum við komin í pálmaskóga lieitu land- anna. Steingerfingar sýna að svona hafa skógar jarðarinnar eitt sinn verið. Steinkolin eru nytsamlegar leifar hinna æfafornu skóga. Risa- skordýr og flugeðlur, sem vel hafa getað hremmt mann, sveimuðu um loftið. Þessi dýr lifa enn í þjóðsögum um fljúgandi dreka, og steinrunnin beinin hafa varðveitst í jarðlögum. „Eftirlegukindur“ horfins dýralífs munu geta leynzt lengi a. m. k. í hafdjúpunum. Nýlega fannst t. d. fiskur af forneskjulegri gerð suður í höfum. Hann var áður kunnur úr fornum jarðlögum aðeins, en kom nú Ijóslifandi fram á sjónarsviðið. Stórkostlegar breytingar hafa hvað eftir annað orðið á gróðri og dýralífi jarðarinnar. Austur í Kína fundust nýlega risatennur úr mönnum eða mannöpum, sem álitið er að hafi verið hálfur þriðji metri á hæð í lifandi lífi. Þetta minnir okkur á tröllasögurnar gömlu. Skyldi vera fótur fyrir þeim aftur í grárri forneskju? Nýjustu rannsóknir benda til þess, að mannkynið og menningin séu miklu eldri en álitið hefur verið til skamms tíma. Ennþá eldri er samt gróðurinn. Til eru lifandi tré, eldri en ís- lands byggð. Þetta eru risafurur og rauðviðartré. Þau voru vaxin úr grasi fyrir löngu, þegar Ingólfur Arnarson steig hér fæti á land og voru stórviðir á dögum Jóns Arasonar. Hvað verður úr mannsæv- inni í slíkum samanburði? Skógar geta verið næsta ólíkir. íslenzki birkiskógurinn er bjart- ur og skógsvörðurinn gróðurmikill, oft fullur af berjalyngi og fögr- um blómum. Þyngra er yfir norrænu barrskógunum. Víða í barr- skógabeltinu er hægt að ferðast dögum saman og sjá ekki annað en skóg. Greni- og furustofnarnir rísa eins og geysimiklar súlur. Það er oft þungur þytur í trjáliminu, vindurinn næðir einhvers staðar hátt uppi. En niðri á skógsverðinum er logn og mollulegt — og jörðin þakin barrnálum. Eiga sumir óvanir erfitt með andardráttinn í slíkum skógum og finnst þeir vera lokaðir inni. Lítið er þetta samt hjá frumskógum hitabeltisins. Þar sér maður ekkert frá sér; allt er ein græn flækjubenda og breiða, full af skordýrum og hvers kyns kvikindum. Og hávaðinn oft yfirgengilegur. í norrænum skógum er ein eða fáar trjátegundir ríkjandi, en í frumskógunum vex allt í hrærigraut, það birtist ný trjátegund því nær við hvert fótmál. Það, sem annarsstaðar er jurt, er hér „runni eða risatré“. Skógurinn er þarna tvær eða fleiri hæðir. Skuggaþolnu trén lifa niðri í grænu

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.