Náttúrufræðingurinn - 1957, Síða 15
SUÐRÆN SKÓGARTRÉ
61
það er korkurinn meira en áratug að vaxa að nýju og versnar óðum
að gæðum. Bezti korkurinn er notaður í flöskutappa. Afskurðar-
bútarnir frá tappagerðinni eru notaðir í línóleumdúka (ásamt lín-
olíu o. fl. bindiefnum). Korkur er mikið notaður í einangrun og
korkflögur á gólf, einnig í björgunaráhöld, netaflár, skóíleppa,
flögur í hatta, vindlingamunnstykki o. fl. o. fl.
íslenzkir tóbakskarlar spýta stundum mórauðu. En í Suðaustur-
Asíu spýta menn alveg rauðu! Þar er tuggið betel í stað tóbaks. Betel
er framleitt úr fræjum Betelpálmans, Betelpiparblöðum, slökktu
kalki o. fl. Betelpálminn, er nefna mætti „tóbakstré Malajalanda“, er
spengilegur fjaðurpálmi, hvarvetna ræktaður í Austurlöndum. Be-
teltygging örvar mjög starfsemi munnvatnskirtlanna og litar munn-
vatnið rautt. Sjást jafnan blóðrauðir blettir þar sem Beteltyggjendur
hafa verið á ferð. Betelbikarar eru oft fagurlega skreyttir, ekki síður
en íslenzku tóbaksdósirnar.
Sum liitabeltistré bera ævintýralega mikinn og góðan ávöxt. Sem
dæmi skal nefnt brauðaldintréð (Arctocarpus incisa) og hið
náskylda jacktré. Brauðaldinin eru um 40 cm löng, 24 cm í þver-
mál og vega l/2~~2 kg (eða meir á jacktrénu). Aldinin eru tínd áður en
þau þroskast til fulls og eru þá mjög mjölvisauðug. Þau eru oftast
ristuð á glóð, en ekki etin hrá. Trén bera aldin 9 mánuði ársins.
Menn gera aldinmauk úr ávöxtunum og varðveita þá á fleiri vegu
til þess að hafa nægar birgðir hina þrjá „aldinlausu“ mánuði — frá
ágúst til nóvemberbyrjunar. Viður brauðaldintrésins er góður til
smíða, klæðnaður er ofinn úr berki ungra trjáa, mjólkursafinn not-
aður í fuglalím o. s. frv.
Fólkið lifir sumsstaðar mikið til á brauðaldintrjám. Hinn frægi
sæfari, Jarnes Cook sagði, að sá sem gróðursetti 10 brauðaldintré,
hefði þar með búið eins vel í haginn fyrir sig og sína, eins og Norð-
urlandamaðurinn, sem ynni baki brotnu alla ævi. Á Suðurhafseyjum
hefur sumstaðar verið siður, að þegar barn fæddist, skyldu foreldr-
arnir gróðursetja eitt brauðaldintré. Svo auðvelt er ekki að lifa af
jarðargróðri á norðurslóðum.