Náttúrufræðingurinn - 1957, Side 29
HAGNÝTING SKELDÝRA
75
notaðar til matar. Sú tegund, er fundizt hefur í sorphaugunum
dönsku, er sú sama og nú er ræktuð og etin í hinum ýmsu löndum
Evrópu, en það er Ostrea edulis. Lifir hún villt frá nyrstu ströndum
Danmerkur og suður til Miðjarðarhafs og Svartahafs. í Noregi er
hún aðeins ræktuð í hlýjum fjarðarlónum í suður- og suðvestur-
hluta landsins.
Útlit og eðli ostrunnar er nokkuð sérstætt. Skelin er mjög hruf-
ótt og oft meira og minna beygluð, og er vinstri skel dýrsins föst
við botninn. Dráttarvöðvinn er aðeins 1 og fót vantar, enda er fótur
gagnslaus, þar sem dýrið megnar ekki að færa sig úr stað. Þó er kyn-
ferðið það einkennilegasta. Skelfiskurinn verður kynþroska á 2. ald-
ursári, 2—3 fyrstu kynþroskaárin er hann karlkyns, en verður síðan
kvenkyns, svo aftur karlkyns næsta ár, og þannig gengur það á
víxl, meðan ævi ostrunnar varir. Ostran fæðir lirfur; ungast eggin
út í tálknum móðurinnar, og eru lirfunar þar í 7—8 daga, áður
en þær eru sendar út í heiminn til þess að sjá um sig sjálfar. Nauð-
synlegt er talið, að sjórinn sé ekki kaldari en 20° C og seltan ekki
lægri en 2,5%, til þess að eðlileg útungun geti átt sér stað. Sölu-
hæfar eru ostrurnar 5 ára gamlar, og álitið er, að aldur þeirra fari
ekki yfir 25 ár. Ostrutegund sú, sem ræktuð er við austurströnd
N.-Ameríku (Ostrea virginica) og í Kaliforníu (flutt þangað úr
Atlantshafi árið 1870) er ólík þeirri evrópeisku að því leyti, að
hún er hreinlega einkynja (eins og flestar samlokur eru) og fæðir
egg. í verzlunarskýrslum frá 1945 er talið, að allt að 800 þús. tonn
af ostrum (með skel) hafi verið veidd í heiminum, af því veiddu
Bandaríkin yfir 575 þús. tonn. Aðrar þjóðir, sem mikið veiða af
ostrum, eru Frakkar og Japanir.
Erlendis eru ostrur mjög eftirsóttur réttur, en næringargildi
þeirra er samt minna en ýmissa annarra skelfisktegunda. Hér fer
á eftir tafla yfir greiningu næringarefna í 6 Virginíuostrum, sem
vógu ca 100 gr.
Eggjahvíta 6.5 g
Fita 1,6 -
Glycogen 4,2 -
Kalcium
Fosfór .... 112 -
Járn 6,1 -
Eir 3,7 mg
Joð ... 0,05 -
Thíamíne ... 0,18 -
Ríbóflavín . . . 0,22 -
Níkótínsýra ..... ... 0,22 -
Níkótínsýra .... ... 1,2 -