Náttúrufræðingurinn - 1957, Side 33
HAGNÝTINGSKELDÝRA
79
2. mynd. Kúfskel (C. islandica). a, sýnd
Erá hægri hlið. b, hjör beggja skeljanna.
mæti þess, er aflað var af V. mercenaria, jafngilti hálfri sjöttu
milljón dollara árið 1948, og af M. arenaria var framleitt fyrir
meira en 2 milljónir dollara. Fyrir nokkrum árum birtist skýrsla
um bætiefnainnihald nefndra tegunda og kom þá í ljós, að þær eru
með beztu bætiefnagjöfum að því er snertir B12. Eru 6—9,7 micro-
grömm af B12 í hverju grammi af fiskinum þurrkuðum.
Undan ströndum Kaliforníu lifa um 400 tegundir skelja, og a£
þeim eru veiddar til einhverra nytja um 60 tegundir. Er það senni-
lega hærri tala en nokkurt annað ríki getur státað af. Margar af
þessum tegundum eru ágætis matskeljar. Eru flestar þeirra af sömu
ættum og þær, sem við þekkjum frá ströndum íslands, svo sem
báruskeljar, öður, hörpudiskar, freyjuskeljar og tígulskeljar. Þrátt
fyrir allt þetta er geysimikið flutt inn í landið af Quahog frá aust-
urströnd Bandaríkjanna. Af því sjáum við, að þær skelfisktegundir,
er menn nytja, eru síður en svo einhliða, og er þetta mikill kostur,
því að næringarefnainnihald tegundanna er töluvert mismunandi.
í Bandaríkjunum er árleg framleiðsla af skelfiski ca. l/3 af verð-
mæti allrar fiskframleiðslu þar, auk nokkurra milljóna dollara,
sem ostrumjöl handa alifuglum gefur í aðra hönd.