Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 38
84
NÁTTÚRUFRFÆÐINGURINN
þar við nýtingu þeirra til sementsvinnslu. Eins og alþjóð er kunn-
ugt, þá er sementsverksmiðja hér í uppsiglingu. En til sements-
gerðar þarf mikið af kalki, svo að grípa varð til þess ráðs að leita á
náðir skeldýranna, þar sem land okkar er svo kalksnautt. Hér koma
skeljarnar til með að vinna stórt hlutverk — hlutverk, sem engan
fyrir 20 árum liefði rennt grun í, að þar ættu eftir að vinna. Til
þess að gefa lesendum mínum örlitla hugmynd um það magn af
kalkefni, sem skeldýrin hafa skilað aftur til þeirrar höfuðskepnu,
er hefur alið þau um milljónir ára, skal ég geta þess, að á 10 fer-
kílómetia svæði í Faxaflóa undan Akranesi er nægilegt vinnsluefni
handa tilvonandi verksmiðju í 200 ár. Og afrakstur verksmiðjunn-
ar verður þvíþættur, því að auk sementsins á hún að geta framleitt
allt að 20 þúsund tonn árlega af áburðarkalki. Hér er því ekki um
nein smávægileg verðmæti að ræða. Nú þegar hefur verið dælt á
land 215 þúsund tonnum af skeljasandi. Þær skeldýrategundir, sem
stuðlað hafa að myndun sandsins eru sjálfsagt margar og margar
þeirra smáar. I Faxaflóa eru um 40 tegundir skeldýra, og hafa sjálf-
sagt flestar Jreirra að einhverju leyti lagt sinn skerf til sandmynd-
unarinnar. Ein þeirra skelja, er ég álít að hafi leikið hér stórt
hlutverk, er tígulskelin (Spisula solida var. elliptica). Þetta er smá
skel, en kalkauðug, og er mergð af henni í Flóanum; töluvert af
heillegum skeljum hennar finnst í vinnslusandinum.
Þá kem ég að síðasta atriðinu um nytsemi skeldýra, en þ. e. bein
notkun þeirra til alls konar skreytingar. Við þekkjum það öll, að
til eru menn, er hafa mjög ríka hneigð til að safna jurtum og ýms-
um dýraflokkum, án þess þó að gera það í vísindalegum tilgangi
Og safnendunum finnst þá mest í varið að ná í eitthvað fágætt,
skrautlegt eða sérkennilegt að útliti. Sumir nota þessi söfn (ef þau
eru þess eðlis) til að prýða með híbýli sín, sviplíkt því og þegar
þau eru skreytt fágætum málverkum. Sumir dýraflokkar eru vel
fallnir til slíkra hluta, þar á meðal skeljar og kuðungar. Erlend-
is gera margir mikið að því að safna að sér skeldýrum úr ýmsum
áttum, bæði úr sjó, úr vötnum og af landi. í heittempruðu belt-
um jarðarinnar er fegurð og fjölbreytni tegundanna oft undursam-
leg. Sé smekklega valið, er hægt að nota margar tegundir til þess
að prýða með íbúðarherbergi. Þetta má gera með ýmsu móti; með-
al annars er hagkvæmt að raða skeljunum á þar til gerðar glerhill-
ur, eða hafa þær innan í glerhylkjum, einnig mætti festa skeljarn-