Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1957, Qupperneq 44

Náttúrufræðingurinn - 1957, Qupperneq 44
90 NÁTTÚRUFRFÆÐINGURINN Sitt af hverju „Dalgolan“ á Austurlandi. Að morgni hlýrra og bjartra sumardaga, þegar sól er í hæsta hring, leggur frá heiðum og fjöllum ofan þægan, hlýjan vind, sem strýkur blítt um vanga og gleður geð. Þessi þýði þeyr streymir um dali og breiða byggð fjalla milli allt á haf út frá morgni til mið- dags. Þá lygnir um stund, en brátt rennur af hafi gagnstæða slóð, svalur gustur yfir alla byggð inn til dala og heiða — Fjallaþeyrinn og hafrænan skipta deginum með sér til faðmlags við byggð og ból. Veturinn, á tímabili hækkandi sólar, á einnig sitt sérstaka ein- kenni í fari vinda. Það er Dalgolan, sem svo er nefnd á Austur- landi. Hún streymir ekki jafnt yfir alla byggð, eins og fjallaþeyrinn og hafgolan, heldur aðeins á tilteknu, afmörkuðu sviði, og á sín séreinkenni, sem brátt segir. Hún er kunnust á Jökuldal. Má vera, að nafnið sé af því dregið, sbr. Jökulsá á Dal. Vera má einnig, að nafnið sé af almennari uppruna. Dalgolan streymir af heiðum ofan, eins og fjallaþeyrinn, eftir frostharðar lognnætur. Fyrst að morgni er hún sem mjór strengur meðfram Jökulsá, fyllir aðeins gljúfur og gil árinnar og leikur um gilbarmana. Fram til hádegis eða miðdags fer hún smávaxandi að umfangi upp um og upp yfir neðstu hjallana og nær loks upp yfir bæjaraðirnar beggja megin ár, en fyllir ekki dalinn heiðarbrúna milli sem venjulegir vindar. í hlíðum dalsins ofan marka Dalgol- unnar er logn og sólskin. Golan er jafnstreym sem vatnsrennsli, býsna straumhörð og sárbitur, svo að beitarfénaður hefur ekki við- nám í henni og sækir upp í lognið ofan takmarka hennar. Þarna streymir hún milli undirhlíða dalsins með lognhjúp loftsins sem þak. Mörkin eru svo skörp að standa má með annan fótinn í Dal- golunni en hinn í logninu. Að ganga úr logninu niður fyrir golu- mörkin er sem að steypa sér í kalt vatn. Dalgolan fylgir farvegi Jökulsár til ósa og streymir á haf út. Þegar kemur út um miðja Hróarstungu verður aðhald hennar ekki nema á aðra hliðina. Breiðir hún þá úr sér um sléttlendið til sjáv- ar. Um sólarlag hefur hún runnið skeið sitt. Vegna hins sárbitra kulda Dalgolunnar var það almennt ájit, að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.