Náttúrufræðingurinn - 1957, Síða 46
92
NÁTTÚRUFRFÆÐINGURINN
liefur DDT einnig verið notað með góðum árangri, til þess að úða
með ávaxtatré og akra. Af öðrum tegundum skordýraeiturs er til
mikill fjöldi, og má segja, að þar hefur hver til síns ágætis nokkuð.
DDT og öðru skordýraeytri er nú dreift um mýrar og móa, yfir
akra og skóglendi, af jörðu og úr lofti. Allsherjar sókn er hafin
gegn skordýrunum og herskarar þeirra hníga í valinn. En hér og
þar leynast nokkrir einstaklingar, sem lifað hafa af ógnirnar. Þessi
skordýr hafa að vísu fengið sinn skammt af eitrinu, en þau voru
að eðlisfari þannig gerð, að þau þoldu eitrið, jöfnuðu sig því fljótt
og auka nú kyn sitt ákaflega. Hver kynslóðin kemur eftir aðra og
allar eru þær að eðlisfari þannig, að DDT gerir þeim ekkert mein.
Tegundin er breytt. Eitrið hefur engin áhrif á hana. Þetta skæða
vopn mannsins er gagnslaust.
Það var á Ítalíu vorið 1947. Á sléttunum við Tíbetfljót hafði
með góðum árangri verið unnið að útrýmingu húsflugu með DDT,
en hún hafði verið þar skæður smitberi, borið iðrasýkla. Einn
góðan veðurdag fundust þarna nokkrar húsflugur, sem reyndust
þola eitrið. Þær voru fluttar á rannsóknastofu og látnar auka þar
kyn sitt, og sjá! allir afkomendurnir þoldu DDT. Eiginleiki þessi
var því sýnilega arfgengur. Fyrst var haldið, að hér væri um áður
óþekkt afbrigði af húsflugu að ræða og fékk það í bili nafnið
Musca domestica, var. tiberiana. Við nánari rannsókn kom þó í
ljós, að afbrigði þetta var eins og aðaltegundin að öllu öðru leyti
en því, að það þoldi DDT.
Fréttir tóku nú að berast hvaðanæva af eiturþolnum húsflug-
um. Kom það í ljós bæði við austanvert Miðjarðarhaf, í Suður-
Ameríku og á Nýja-Sjálandi, að þar sem stöðugt var notað DDT
til útrýmingar á skordýrum fór að bera á eiturþolnum húsflugum
eftir 2 ár.
Og það reyndust vera fleiri skordýr en húsflugan, sem myndað
gátu eiturþolin afbrigði. Það var í Grikklandi árið 1951, að sér-
fræðingar í útrýmingu moskítóflugna urðu í nokkrum þorpum
varir við moskítóflugur, sem þoldu DDT. Ástandið á þessum stöð-
um versnaði ár frá ári, og flugurnar fóru líka að þola aðrar teg-
undir skordýraeiturs, svo sem chlordane og dialdrine. Árið 1954
varð vart við eiturþolnar moskítóflugur á Java, 1955 bæði í Saudi-
Arabíu, Nigeríu og Bandaríkjunum. Lýs, sem þoldu DDT, fund-
ust á hermönnum í Kóreu 1951 og síðar víða um heim, þar sem