Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 47

Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 47
SITT AF HVERJU 93 skordýraeitur þetta hafði verið notað til lengdar. Það var alls stað- ar sama sagan. Hið gamla góða skordýraeitur var að verða gagns- laust. Skordýrin voru breytt. Þau höfðu tekið framförum. Gerðar hafa nú verið í Bandaríkjunum nákvæmar rannsóknir á DDT-þolnum húsflugum. Hefur komið í ljós, að í líkamsvefj- um þessarra flugna, einkum í skurninni, finnst gerhvati (enzym), sem breytt getur DDT-eitrinu í annað efni, sem er flugunum óskað- legt. Sams konar gerhvati hefur síðar fundizt í DDT-þolnum moskí- tóflugum frá Trínidad. í venjulegum húsflugum, sem ekki hafa orðið fyrir verkunum af DDT hefur þessi gerhvati enn þá ekki fundizt. Nú hljóta að vakna þessar erfðafræðilegu spurningar: Hefur hið arfgenga eiturþol, þ. e. myndun hins sérstaka gerhvata, hjá flugun- um komið fram við hin stöðugu áhrif eitursins á flugurnar kyn- slóð eftir kynslóð? (Lamarkismi). Eða, hafa alltaf verið til nokkr- ir einstaklingar af flugum, sem höfðu þennan gerhvata eða gátu myndað hann undir eins og eitrið verkaði á þá, og bjargað þannig lífi sínu, þegar allar aðrar flugur féllu í valinn? (Darwinismi). Með erfðafræðilegum tilraunum hefur verið sannað, að það síðarnefnda er tilfellið. í þeim hlutum Nígeríu, t. d., þar sem ekkert skordýra- eitur hafði verið notað, reyndust 0,04% af moskítóflugunum hafa eitt stakt kon, er gert gæti ílugurnar ónæmar fyrir díaldríne, en í öðrum hlutum landsins, þar sem lengi hafði verið notað díaldríne til útrýmingar á moskítóflugum, reyndust 90% af flugunum bera 2 slík kon, þ. e. eitt konapar, enda þoldu þessar flugur allar eitrið. Hæfileikinn til þess að geta þolað ýmsar eiturtegundir er þannig til með örfáum einstaklingum hverrar flugutegundar, en til þess að hann komi áþreifanlega í Ijós og verði einkennandi fyrir tegund- ina, þarf að drepa alla hina einstaklinga hennar með tilsvarandi eitri. Má segja, að framfarasporin hjá flugunum séu dýru verði keypt. Sigurður Pétursson. Amínósýrur og gammageislar. Það vakti heimsathygli, þegar þýzki efnafræðingurinn Wöhler framleiddi í fyrsta sinn þvagefni á ólífrænan hátt. Þetta gerðist árið 1828, en fram til þess tíma hafði verið talið útilokað að líf-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.