Náttúrufræðingurinn - 1957, Síða 50
96
NÁTTÚRUFRFÆÐINGURINN
prismum. Ekki hefur þó ennþá náðst sá árangur, að hægt sé að
vera án íslenzka silfurbergsins.
Sigurður Pétursson.
Háplöntuflóra Evrópu.
Nú er hafinn undirbúningur að útgáfu Evrópuflóru, og var þess
full þörf þó að fyrr hefði verið. Að vísu eru til fjölmargar flórur
einstakra landa álfunnar, en ýmsar þeirra eru orðnar hálfrar aldar
gamlar, og gætir þar því margs konar ósamræmis við útgáfur nýrri
rita. Auk þess eru hin mörgu tungumál, sem bækur þessar eru
ritaðar á, slæmur þröskuldur á vegi þeirra manna, sem á þeim
þurfa að halda við vísindaiðkanir. Samræmd heildarútgáfa eða
bók yfir allar háplöntur álfunnar með tilliti til nýjustu þekkingar
á því sviði, væri því mörgum kærkomin.
í bókinni eiga að vera greiningarlyklar og stutt lýsing af hverri
jurt ásamt útbreiðslu í stórum dráttum. Þá verður greint frá tölu
litþráða, ef um hana er vitað.
Ekki er enn fullráðið á hvaða máli bókin verður skrifuð; er helzt
búist við því, að hún verði á 2 málum, ensku og latínu.
Nokkur svæði álfunnar verða ekki tekin með í bókina, svo sem
Svalbarði og aðrar íshafseyjar, Kýpur og nokkrar eyjar í austan-
verðu Eyjahafi. Auk þess verður sleppt þeim hluta Rússlands, sem
Flóra Komerovs frá 1939 fjallar um.
í útgáfunefnd þessa fyrirhugaða ritverks eru eftirtaldir menn:
N. A. Burges, prófessor í grasafræði við háskólann í Liverpool.
V. H. Heywood, kennari í grasafræði við sama háskóla, og er
hann formaður nefndarinnar.
D. H. Valentine, prófessor í grasafræði við háskólann í Durham.
S. M. Walters, umsjónarmaður grasasafnsins við háskólann í
Cambridge.
T. G. Tutin, prófessor í grasafræði við háskólann í Leicester.
D. A. Webb, prófessor í grasafræði við háskólann í Dublin.
I hverju landi verða svo aðstoðarmenn (Regional adviser) einn
eða tveir eftir aðstæðum.1)
Svo er ráð fyrir gert, að útgáfa flórunnar standi yfir í 10—12 ár.
Ingimar Óskarsson.
1) Á íslandi er ráðinn einn: Ingimar Óskarsson, grasafræðingur. — Ritstj.