Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 26
18
NÁTTÚRU FRÆÐINGURINN
neðan hjallanna og á þeim vantar öll öskulög eldri en H3. Þessar
rannsóknir Sigurðar sýna, hver aldur hlaupsins er. Það er yngra
en öskulagið H;i frá Heklu, sem er 2800 ára gamalt, en Sigurður
finnur í sniðum innan hlaupfarvegsins (jskulög, sem kunna að vera
nærri 2000 ára gömul. Þetta aldursákvarðar hamfarahlaupið nærri
2500 ára.
Strax þessi öskulagafræði bendir til hlaupsins, og er nokkur sönn-
un ein sér. Þó er ekki hægt að segja, að neitt eitt atriði geti sannað
þetta, heldur hlýtur það að vera heildarmyndin, sem gefur mestar
og beztar sannanir.
Á seinni árum hafa landmótunarfræðingar, aðallega í Banda-
ríkjunum, lagt mikla stund á að rannsaka lögun árfarvega í laus-
um jarðlögum. Hafa þeir fundið (Leopold og Wolman 1957), að
samband er á milli breiddar og bylgjulengdar annars vegar og
rennslis hins vegar. Þeir hafa ekki rannsakað, hvernig þessu er
háttað, þar sem íarvegur er grafinn í berg, en í grundvallaratriðum
virðist vera um sömu lögmál að ræða. Þeir hafa komizt að því, að
svokallað bakkafullt rennsli ráði mótun þeirra. Bakkafullt rennsli
er nokkuð hátt en þá algengt rennsli. Flóðin eru væntanlega
ráðandi þáttur við mótun farvega grafinna í klöpp. Ef litið er með
þetta í huga á myndirnar 2, 3 og 4 annars vegar og hins vegar 6,
sést strax, að gljúfrin í Jökulsá á Fjöllum er miklu breiðari heldur
en Dimmagljúfur í Jökulsá á Brú. Þessi gljúfur eru mynduð á jafn-
Myiul 2. Hið fræga Ásbyrgi, Ástjiirn, neðsti liluti Jökulsárgljúfra og farvegur
við Landabæinn. Fyrir hamfarahlaupið hefur sennilega verið hér þröngt, venju-
legt gljúfur. Það hefur yfirfyllzt, og má sjá strandlínur upp á gljúfurbörmum
og aukafarvegi alla leið. Greinilegastur er þó farvegurinn yfir til Ásbyrgis, sem
er ylir 1 km breitt gljúfur með hyl upp við hamravegginn efst. Undir lok
hlaupsins hefur núverandi larvegur sigrað Ásbyrgisfarveginn, og nú liðast áin
á aurum um þetta gljúfur, sem er hinni venjulegu Jökulsá algerlega ofvaxið.
Fig. 2. The famous Asbyrgi, Ástjörn ancl the lowest part of the canyon Jökuls-
árgljúfur. liefore the catastrophic flood here, there has probably been á norrnal
narrow canyon. It has bcen filled over tlie top and above the canyon walls.
The shorelines of the flood can be seen as tuell as branch channels all along
its cóurse. Most distinct is the channel toiuards Ásbyrgi, which is a cataract,
more than 1 krn wide with a plunge pool ai the upstream end. Towards the
end of tlie flood the present course has won over the charmel toiuards Ásbyrgi
and the river is now floiuing in an alluvial channel inside the canyon which
is to big for the usual Jökulsá á Fjöllum.