Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 23
Jón Jónsson:
Reykj afellsgígir og Skarðs-
mýrarhraun á Hellisheiði
Inngangur
Það mun vera málvenja að nafnið
Hellisheiði sé bundið við það svæði,
sem takmarkast að sunnan af Skála-
felli og undirfjöllum þess, að vestan
af Lakahnjúkum, Stóra Reykjafelli,
Skarðsmýrarfjalli og Hengladölum að
norðan, en að austan af Ástaðafjalli
og Kömbum. Heita má að allt þetta
svæði sé þakið hraunum, sem runnið
liafa á nútíma. Trausti Einarsson
(1951) og Þorleifur Einarsson (1960)
telja báðir hraunin vera 4 en aðeins
tvennar eldstöðvar þekktar. Hraunin
fjögur hefur Trausti táknað með A,
B, C og D, en Þorleifur með I, II, III
og IV og hafa báðir talið frá því elsta
til liins yngsta. Hraunin virðast í
heild vera nafnlaus svo og eldstöðv-
arnar.
Eldstöðvarnar
Gosin á þessu svæði hafa að því er
virðist, að undanskildum Tjarnar-
hnjúk, sem raunar er utan við jiað
svæði, sem að ofan greinir, öll orðið
á tiltölulega rnjóu sprungubelti, sent
rekja má frá Selvogi norður um
Hengil og allt norður að Þingvalla-
vatni. Síðasta gosið varð á sprungu,
sem liggur um austanvert Stóra
Reykjafell. Mun ég Jtví hér kenna
bæði gígi og hraun við Jtað fjall og
nefna Reykjafellsgigi og Reykjafells-
hraun. Það skal tekið fram að hér er
ekki verið að skapa nýtt örnefni held-
ur er nafnið eingöngu notað sem jarð-
fræðilegt hugtak.
Skal nú vikið að Jtví gosi, sem gerði
Jtetta hraun. Gossprunga sú, sem Jaetta
hraun er komið frá, og sem Þorleifur
Einarsson telur vera hraun IV en
Trausti nefnir hraun D, liggur eins
og áður greinir urn austanvert Stóra
Reykjafell og endar að norðan í suð-
urhlíð Skarðsmýrarfjalls. Suður eftir
má rekja hana yfir Lakahnúka og
Hellur, en skammt Jiar suður af
endar gígaröðin eða hverfur undir
hraunin frá Eldborgum undir Meitl-
um, sem Jtví án nokkurs efa liafa ver-
ið virkar eitthvað síðar. Allt J^etta
sýnir Þorleifur Einarsson (1960) á
korti sínu yfir Jtetta svæði.
I lýsingu ölíushrepps frá 1703 eftir
Hálfdán Jónsson (Thoroddsen 1892—
96) er Þurárhrauns getið og Jtað talið
vera frá árinu 1000. Virðist Jtað ])ví
nokkuð almennt hafa verið talið að
hraun |)Ctta væri frá ])ví gosi, sem
Náttúrufræðingurinn, 47 (1), 1977
17
2