Náttúrufræðingurinn - 1977, Page 24
getið er um í Kristnisögu. Ekki eru
mér kunnar eldri heimildir um það.
í Ferðabók Eggerts og Bjarna (1943)
segii' að gosið hafi í fjallinu fyrir ofan
Ölfus og hraun runnið niður Vatns-
skarð og ofan í byggð. Sveinn Pálsson
(1945) telur hraun á Hellisheiði vera
frá árinu 1000 en fjallar ekki nánar
um það. Þorvaldur Thoroddsen (1958)
er mjög varkár livað þetta snertir og
tekur ekki afstöðu til sannleiksgildis
sagnarinnar um eldgosið árið 1000.
Hann bendir réttilega á að Hjalli sé
alllangt frá Þurárhrauni. í Eldfjalla-
sögu sinni bendir Thoroddsen (1925)
á að sé sögnin á annað borð tekin al-
varlega þá geti aðeins verið um tvö
hraun að ræða, sem sé Þurárhraun og
hraun vestan við Hjalla i Ölfusi, en
það hraun er komið úr Eldborgum
undir Meitlum eins og hann líka
bendir á. Athyglisverðust eru orð Þor-
valdar Thoroddsen (Ferðabók 1, bls.
139, 1958) varðandi þetta, en hann
segir svo urn Eldborgarhraun: „Það er
rnjög úfið og sýnist vera enn nýrra
en Þurráhraun og er eins og fyrr
var getið, eflaust runnið síðan land
byggðist." Trausti Einarsson (1951)
telur Þurárhraun vera það eina, sem
passað geti við sögnina, en honum
virðist þá ekki Iiafa verið kunnugt
unr hrauntungu þá, sem runnið hefur
austur með Hjallafjalli ofan á eldra
hrauni (Leitahrauni) og raunverulega
hefur stefnt á Hjallahverfið eins og
það er nú. Þetta er það eina hraun,
sem passar við sögnina, en ekki mun
]>að hafa komist á kort fyrr en Þor-
leifur Einarsson (1960) kortlagði jrað
í sambandi við rannsóknir á Hellis-
heiðarsvæðinu. Reykjafellshraun hef-
ur |)ví nokkuð almennt gengið undir
nafninu Kristnitökuhraun og talið
vera frá árinu 1000 og eru þeir nú
ófáir, sem þetta hefur verið sagt og
haft fyrir satt.
Aldur hraunsins
Þar sem þjóðvegurinn nýi liggur
upp úr Hveradölum upp á Hellis-
heiði fer hann yfir forna gígaröð, sent
liggur samsíða þeirri fyrrnefndu. Gígi
þessa nefnir ÞorleifurEinarsson (1960)
Hveradalagígi (Hveradalir-Kratern)
og eru þeir liluti af eldri gígaröð, sem
síðar skal að vikið i þessari grein.
Úr gígum þessum hefur verið tekið
mikið af rauðamöl og mikið rót gert
þar í sambandi við lagningu liins nýja
vegar. í nyrsta gígnum, en vegurinn
liggur fast við hann norðan megin,
hefur verið grafið inn undir yngsta
hraunið, senr þar hefur l unnið vestur
af (1. mynd), en það er einmitt það
hraun, sem kallað hefur verið Kristni-
tökuhraun. Kemur þá í ljós að gígur
þessi hefur verið orðinn nokkuð gró-
inn mosa, þegar hraunið rann upp að
honum. Náðist þar gott sýni af kol-
uðum mosa, sem þar mátti safna í
stórum gljásvörtum flögum. Voru
mosaplönturnar þarna svo vel varð-
veittar að vel mátti greina fínustu
hluta þeirra. Leifar annars gróðurs
var þarna ekki að finna. Sýnið var
tekið á mótum hraunsins og gígsins
og voru þessar koluðu mosaleifar
sums staðar sem límdar neðan í
hraunið og mátti fletta þeim af í flög-
um. Ekki náðu þessar gróðurleifar
yfir nerna örlítið bil (2. mynd), eða um
2 m, og nú er sá staður því miður kom-
inn undir urð.
Það var í júní 1972 að ég tók þarna
sýni og sendi til aldursákvörðunar.
18