Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 26

Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 26
2. mynd. Reykjafellshraun, yngsta hraunið á Hellisheiði, við Hveradalagígi. Dökka efnið við fætur drengsins eru mosakol. um hið margnefnda Kristnitöku- hraun? Eins og áður getur benti Thoroddsen (1925) á að um gæti ver- ið að ræða hraun frá Eldborgum undir Meitlum, en hann telur bæði það hraun og Þurárliraun „eflaust runnið síðan land byggðist" (Thor- oddsen 1958, bls. 129). Nú vill enn svo til að óákvarðanlegar leifar af kol- uðum gróðri hafa náðst undan þessu sama hrauni þar sem það endar skammt vestan við Hjalla. Bíða þær þess nú að aldursákvarðaðar verði, ef hægL er, og mega því allar bollalegg- ingar um aldursmun Reykjafells- hrauns og þessa liggja niðri enn um sinn. Sunnan við Hellur hverfur Reykja- fellsgígaröðin og hraunið frá henni undir hraun úr Eldborguni undir Meitlum og er það hraun því óefað nokkru yngra, en hvort aldursmun- inn er að telja í dögum, vikum, árum eða öldum er enn sem komið er ekki hægt að segja. Vonandi fæst úr því skorið þegar áðurnefnd aldursákvörð- un liggur fyrir. S k a rðsmýra rgigi r og S /í a rðsmýra rh ra u n Nokkru vestan við Reykjafellsgígi er önnur gígaröð, sem stefnir eins en er eldri. Mestur hluti þess hrauns, sem frá Iienni cr komið, virðist eiga upp- tök í gígum sunnan í Skarðsmýrar- fjalli og einnig er nokkurt hraun frá henni uppi á ljallinu sjálfu. Hef ég því valið að kenna bæði gígi og hraun við þetta fjall. Gígaröð jjessa liafa jjeir kortlagt hvor í sínu lagi Þorleifur Einarsson (1960) og Kristján Sæ- mundsson (1967) og lýsi henni. Verð- 20

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.