Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 33

Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 33
Hákon Bjarnason: Um fræþroska á trjám Undanfarin ár hafa margar inn- fluttar trjátegundir, sem nú eru í ræktun, Itorið þroskað fræ á ýmsunr stöðum. Má ætla að fræfall muni aukast mjög á næstu árum, svo að um muni. Fram að þessu liefur trjáfræ, sem hentar íslenskum skilyrðum, oft verið l)æði torfengið og mjög dýrt, enda liefur oft orðið að senda menn um langa vegu að safna því. Það telst til undantekninga, ef verslun hefur trjáfræ á boðstólum, sem ætla má að verði til gagns hér á landi. (Sama gildir raunar allt fræ, sem hentar ís- lensku veðurfari.) Flið fyrsta, sem mér er kunnugt urn þroskað trjáfræ hér á landi, að und- anteknu birki- og reynifræi, er úr furulundinum á Þingvöllum, en þar safnaði Guðmundur Davíðsson fjalla- furufræi um 1935 og sáði í kassa. Af því uxu fáeinar plöntur, en ekki veit ég, hvað af þeim varð. Á þessum ár- um mynduðust ol't könglar á lerki og fjallafuru, en oftast mun fræið hafa verið vanþroska. Árið 1947 var mikil blóma- og könglamyndun á elstu blágrenitrján- um á Hallormsstað, og af því fræi spruttu um 3000 fullvaxnar plöntur, sem nú vaxa á tveim stöðum, í Skorra- dal og á Hallormsstað. Þær liæstu eru um 4 metrar, en flestar nokkru lægri. Blágrenitrén voru 42 ára, er þetta fræ þroskaðist. Síðan hafa þau borið fræ með nokkurra ára millibili og nú síð- ast á þessu hausti. Broddfura var flutt til landsins á árunum 1903—1905, og fór hún að 1. myncl. Könglar á sitkagreni. Myndin er tekin í Múlakoti í Fljótshlíð. Náttúrufræðingurinn, 47 (1), 1977 27

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.