Náttúrufræðingurinn - 1977, Blaðsíða 45
maga á Selvogsbanka árið 1913 en
annars eru heimkynni hans í Mið-
jarðarhafi og Atlantshafi frá Kanarí-
eyjum til Portúgals þar sem hann er
veiddur og nýttur en flækingar leita
til Englands, Skotlands, Noregs og Is-
lands. Einnig mun hann finnast við
S-Afríku, Ástralíu og Nýjasjáland.
M a k r í 11, Scomber scombrus flæk-
ist hingað sjaldan en kemur þó fyrir.
Fyrst varð hans vart í Hafnarfirði ár-
ið 1895 og síðan hefur hann af og til
verið að birtast og hafa stundum
fengist nokkrir í einu. Heimkynni
makrílsins eru í Miðjarðarhafi og At-
lantshafi frá Marokkó til Noregs og
þá er hann einnig í vestanverðu N-
Atlantshafi við strendur N-Ameríku.
Túnfiskur, Thunnus thynnus á
heima í N-Atlantshafi frá Kanaríeyj-
um til írlands og Asóreyjum inn í
austanvert Miðjarðarhaf og Svartahaf
vestanvert. Flækist stundum inn í
Norðursjó og alla leið til Islands. Hér
fannst hann fyrst rekinn á Eyjafjalla-
sand í nóventber 1797. Síðan hefur
hann slæðst hingað nokkrum sinnum.
Sverðfiskur, Xiphias glaclius
hefur einu sinni fundist hér og þá rek-
inn á land við Breiðdalsvík árið 1936.
Heimkynni hans eru í Miðjarðarhafi,
Adríahafi, Svartahafi og Atlantshafi
frá Madeira citthvað norðureftir en
flækingar eru við Bretlandseyjar og í
Norðursjó.
Svarthveðnir, Centrolophus
niger fannst hér fyrst djúpt út af
suðausturlandi (64°20' N-ll °13' V) í
október 1948. Síðan hafa nokkrir
veiðst. Heimkynni svarthveðnis eru í
Adríahafi og vestanverðu Miðjarðar-
liafi, í Atlantshafi við Asóreyjar og
síðan flækist hann norður í Norður-
sjó og til íslands. Einnig er hann í
vestanverðu Atlantshafi og við S-
Afríku, Ástralíu og Nýjasjáland.
Rekaldsfiskur, Hyperoglyphe
perciformis mun vera kominn hingað
að vestan eins og stóra brosma, þ. e.
úr norðvestur Atlantshafi, en ekki að
sunnan eða suðaustan eins og flestir
flækingsfiskarnir eru. Hann hefur
einu sinni fundist hér og þá rekinn í
Leirunni við sunnanverðan Faxaflóa
árið 1902. Heimkynni ltans eru frá
Flórída til Nýjaskotlands.
Bretahveðnir, Scheudophilus
medusophagus fannst hér fyrst rekinn
í Grindavík í mars 1905 og nokkrir
hafa bæst við síðan. Hann á heima í
vestanverðu Miðjarðarhafi og Atlants-
liafi frá Madeira og Asóreyjum eitt-
hvað norður á bóginn. Einnig við
austurströnd N-Ameríku.
Gráröndungur, Chelon labros-
us er algengur í Miðjarðarhafi og
meðfram ströndum V-Evrópu og
Afríku frá Marokkó og Madeira og
Asóreyjum til Bretlandseyja og inn í
Norðursjó. Hann álpast oft upp í ár-
ósa en hrygnir í sjó. Hér fannst hann
fyrst árið 1904 nálægt Eyrarbakka og
síðan hafa allmargir fundist oftast í
ám eða árósum.
G a d d a h r o g n k e 1 s i, Eumicrotre-
mosus spinosus er eini flækingsfiskur-
inn sem mun vera kominn frá Græn-
landi. Gaddahrognkelsi hefur aðeins
eiiiu sinni fundist hér og var það í
Dýrafirði vorið 1820. Heimkynni
gaddahrognkelsis eru köldustu svæði
N-Atlantshafsins og N-íshafið.
S1 é 11 h v e r f a, Scophthalmus
rliombus fannst hér í október 1961 á
Bollasviði í Faxaflóa. Hefur hennar
ekki orðið vart síðan. Heimkynni
39