Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 51
2. mynd. Volgir lækir í Jökulfelli. Við hamarinn kemur 50° heit lind út úr bergi.
hlíðinni má sjá þunna hallandi ganga,
sem hallar inn undir ijallið og vafa-
lítið eru keilugangar. I>egar ég kom
aftur á þennan stað 30. 8. 1975 var
miklu breytt. Jarðhitasvæðið var að
mestu horfið í sand (1. mynd) og erfitt
að fá ábyggilega hitamælingu sökum
þess að mikið rigndi þennan dag og
hafði rignt um nóttina og þokan hékk
niður i miðjar hlíðar. Ekki heppnað-
ist að finna þarna nema 50° C hita
og engin leið var að áætla rennsli, en
lítið virtist það vera og svo var líka
1951. Ekki reyndist heldur mögulegt
að ná sýni af vatninu, þar sem hitinn
var mestur, því það var í sandi og
kalt vatn allt í kring. Nokkrar útfell-
ingar eru kringum þessar heitu lind-
ir, sem koma fram á um 60 m langri
línu. Gasbólur stíga stöðugt upp í dá-
lítilli tjörn í sandinum. Hygg ég það
vera á þeim st;ið, þár sem ég mældi
mestan hita 1951. Sýni af vatninu á
þessum stað er merkt Jökulfell 1.
Norðar í Jökulfelli vestan við svo
nefnt Fúsagil koma margar heitar
lindir út úr fjallinu á breiðu svæði,
sem nær upp í rösklega 100 m hæð
yfir sandinn. Heitasta lindin, sem ég
fann þarna, var 50° C lieit og í um
30—40 m hæð yfir sandinn (2. mynd).
Aðallega er um tvo læki að ræða, en
margar smá lindir koma þarna fram
á víð og dreil. Rennsli er lalsvert
og ætla má að samtals sé það ekki
minna en 4—5 1/sek. Samkvæmt Tlior-
oddsen (Gesch. d. Isl. Vulk.) er hiti
þarna 60° C og má það vel vera rétt,
því örðugt var að fá góða hitamæl-
ingu þarna sökum þess að mikið
rigndi, hafði rignt í heilan sólarhring
og brekkan öll agandi í vatni, en hún
45