Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 64

Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 64
eitthvaS a£ sjóðum félagsins á vaxtaauka- reikningi. Ur stjórn félagsins áttu að ganga Sól- mundur Einarsson sjávarlíffræðingur og Kristján Sæmundsson jarðfræðingur. — Kristján baðst eindregið undan endur- kjöri og var Baldur Sveinsson verkfræð- ingur kjörinn í hans stað en Sólmundur var endurkjörinn. Varastjórn, endurskoð- endur og varaendurskoðandi voru einnig endurskosnir. Stjórnin bar fram tilliigu um hækkun félagsgjalda í kr. 2000.00, ef halda ætti starfsemi félagsins í svipuðu horfi og ver- ið helur, og var hún samþykkt samhljóða. Flutt var eftirfarandi tillaga um breyt- ingu á lögum félagsins: Við 7. gr. félags- laga bætist eftirfarandi ákvæði: „Tillögu um lagabreytingu má því aðeins taka til afgreiðslu á aðalfundi, að hún hafi borist félagsstjórn fyrir áramót og verið kynnt félagsmönnum í fundarboði." Tillagan var samþykkt samhljóða. Ennfremur var flutt, eftir nokkrar um- ræður um Flóru Islands og að tímabært væri að huga að nýrri útgáfu hennar, til- laga um að aðalfundurinn fæli stjórn fé- lagsins að hefja undirbúning að nýrri út- gáfu Flóru og skipa nefnd til að vinna að því verki. Tillagan var einnig saiilþykkt samhljóða. Á aðalfundinum var kjörinn nýr heið- ursfélagi og nýr kjörfélagi. Stjórnin flutti tillögu um að Stefán Stefánsson afgreiðslu- maður Náttúrufræðingsins í áratugi yrði kosinn heiðursfélagi „fyrir ómetanlegt og óeigingjarnt starf í þágu félagsins og tíma- rits þess, Náttúrufræðingsins". Tillagan var samþykkt samhljóða. Þá flutti stjórn- in einnig tillögu um að Olafur Jónsson, fyrrv. tilraunastjóri á Akureyri, yrði kos- inn kjörfélagi „vegna hins ntikla framlags til rannsókna á jarðfræði Ódáðahrauns og á berghlaupum, ásamt ómetanlegri gagnasöfnun um snjóflóð". Það var einnig samþykkt samhljóða. Fræðslusamkomur Á árinu voru haldnar sex fræðslusam- komur, allar í stofu nr. 201 í Árnagarði við Suðurgötu í Reykjavík, og voru fyrir- lestrar um náttúrufræðileg efni fluttir á þeim öllum og myndir sýndar til skýr- inga. Untræður urðu að öllum fyrirlestr- um loknum og ýmsar fyrirspurnir kontu fram og tóku oft margir til máls. Aðsókn að fræðslusamkomum var mjög misjöfn, ágæt að sumum fyrirlestrum eða um 110, dræm að öðrum eða um 30 minnst. Alls sóttu fræðslusamkomur á árinu um 420 manns eða 70 að meðaltali. Fyrirlesarar og elni fyrirlestra á fræðslu- samkomum voru þessi: 26. janúnr: Fyrirlesari: Leifur Símonarson jarðfræð- ingur. Efni: Nýjar og gamlar rannsóktiir á seingervingum. 23. febrúar: Fyrirlesari: Karl Grönvold jarðfræðing- ur. Efni: Dyngju- og sprunguhraun við Þeystarreyki og Kröflu. 29. mars: Fyrirlesari: Jón Kristjánsson fiskifræð- ingur. Efni: Notkun dýptarmæla við fisktaln- ingu í Þingvallavatni. 26. april: Fyrirlesari: Eysteinn 7'ryggvason jarð- eðlisfræðingur. Efni: Jarðskorpuhreyfingar í Öskju. 1. nóvember: Fyrirlesari: Flákon Aðalsteinsson vatna- líffræðingur. Efni: Rannsóknir á plöntu- og dýra- svifi í Mývatni. 29. nóvember: Fyrirlesari: Arnþór Garðarsson dýra- fræðingur. Efni: Votlendi og verndun þess. Frœðsluferð ir Sumarið 1976 voru farnar fjórar fræðsluferðir á vegum félagsins, þrjár eins dags ferðir og ein jtriggja daga ferð. Uppsligningardag, 27. mai, var farin ferð til jarðfræðilegra athugana og skoð- 58

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.