Náttúrufræðingurinn - 1992, Blaðsíða 10
88. Um 30 sjóm A af Langanesi, 15. júlí 1980
(imm RM7116). Settist á bát. Gunnlaugur
Pétursson og Kristinn H. Skarphéðinsson
(1982).
Hamir með ónógum upplýsingum:
1. Akureyri?, Eyf, sennilega um 1950 (einka-
safn). Skv. Jóni Sigurjónssyni.
2. Heimaey, Vestm, fyrir 1970 (einkasafn).
Skv. Inga Sigurjónssyni. E.t.v. er þetta
einn þeirra fugla sem safnað var á árunum
1963-66 og getið er hér að ofan.
Á árunum 1981-1989 sáust alls 53 múrsvöl-
ungar (sbr. Gunnlaug Pétursson og Kristin H.
Skarphéðinsson 1983. Gunnlaug Pétursson og
Erling Ólafsson 1984, 1985, 1986, 1988, 1989a
og 1989b, Gunnlaug Pétursson o.fl. 1991,
1992).
Segja má að múrsvölungur sé árviss
flækingsfugl hér á landi. Að jafnaði
hafa sést hér nokkrir fuglar á ári
hverju eftir að reglubundin skráning á
flækingsfuglum hófst (sbr. 3. mynd).
Árið 1980 var sérstætt en þá sáust alls
a.m.k. 56 múrsvölungar, þar af a.m.k.
30 saman við Jökulsá á Breiðamerk-
ursandi (sjá tilvik nr. 81). Þar sem
múrsvölungar hverfa alfarið frá Evr-
ópu yfir vetrartímann er þeirra ein-
ungis að vænta hér frá vori og fram
undir haust. Þeir hafa sést hér á tíma-
bilinu 19. apríl til 24. september (4.
mynd). Vorfuglarnir falla ágætlega að
fartíma tegundarinnar, en múrsvöl-
ungar fram eftir september eru frekar
óvæntir þar sem haustfarflug fer eink-
um fram í ágúst. Múrsvölungar eru al-
gengastir hér í júní og allmargir sjást í
júlí. Eins og áður getur flýja múrsvöl-
ungar gjarnan óhagstæð veður, bæði
geldfuglar og varpfuglar. Ekki er ólík-
legt að þeir fuglar sem sjást hér að
sumarlagi séu í einhverjum tilfellum
hingað komnir af þeim sökum.
Hópurinn sem sást á Breiðamerk-
ursandi 17. júní 1980 er athyglisverð-
ur. Síðdegis 15. júní var lægðarmiðja
suðaustur af landinu og önnur suð-
vestur af írlandi. Þá lágu skil um SV-
England og írland. Þau færðust út yfir
Norðursjó og lágu sólarhring síðar allt
frá V-Evrópu til íslands. Þeim fylgdi
suðaustanátt og alskýjað var og úr-
koma á Bretlandseyjum og í allri V-
Evrópu. Þessi veðurskilyrði hafa án
efa valdið flakki múrsvölunganna.
Alpasvölungur (Apus melba)
Alpasvölungur (5. mynd) verpur í
S-Evrópu, N-Afríku og á svipuðum
breiddargráðum austur í miðja Asíu.
Auk þess verpur hann á Indlands-
skaga og slitrótt suður um austan-
verða Afríku, allt til S-Afríku. Teg-
undinni er skipt í 10 undirtegundir en
aðeins ein þeirra, melba, verpur í Evr-
ópu. Þar er alpasvölungur algjör far-
fugl sem dvelst einkum í hitabelti Afr-
íku á veturna. Þó er frekar lítið vitað
um vetrarstöðvarnar þar sem alpa-
svölungar verpa einnig í sunnanverðri
Afríku. Haustfarflug í Evrópu hefst
um sex vikum síðar hjá alpasvölungi
en hjá múrsvölungi, enda verpur hann
þar mun sunnar. Það á sér einkum
stað í september og fram í miðjan
október. Þó er eitthvað um það að
ungfuglar fari af stað í ágúst. Alpa-
4. mynd. Myndin sýnir í
hvaða vikum árs múrsvöl-
ungar hafa sést á Islandi til
ársloka 1989. The occur-
rence of Swifts recorded in
Iceland till the end of 1989.
88