Náttúrufræðingurinn - 1992, Síða 26
7. mynd. Landnám loðvíðis og birkis við Gunnlaugsskóg á Rangárvöllum. Myndin er
tekin í júní 1991. Establishment of willow (Salix lanata) and birch (Betula pubescens) at
the edge of young bircli woodland in Gunnarsholt, Southern Iceland. Ljósm. photo Sig-
urður H. Magnússon.
fullyrt á þessu stigi, en staðsetning
þeirra bendir til að þeir geti verið
tengdir víðiplöntunum. Lakksveppir,
kögursveppir, fölvasveppir og hæru-
sveppir vaxa oft við birkitré og líklegt
er að þeir myndi svepprót með þeim
(Last o.fl. 1983). Einnig er þekkt að
þær vaxa einkum með ungum trjá-
plöntum (Last o.fl. 1983, Dighton
o.fl. 1981, Mason o.fl. 1983) en margt
þykir benda til þess að ákveðin fram-
vinda eigi sér stað í myndun sveppróta
á birki og fleiri trjátegundum (Dight-
on o.fl. 1981, Deacon o.fl. 1983, Ma-
son o.fl. 1983, Last o.fl. 1983, Last
o.fl. 1985). Breytingarnar eru bæði
háðar aldri trjánna og fjarlægð frá
stofni og lýsa sér m.a. í því að ákveðn-
ar tegundir sveppa eru ríkjandi á ung-
um plöntum en aðrar taka við þegar
trén eldast.
Rannsóknir hafa sýnt að fjölmargar
sveppategundir geta myndað svepprót
með fleiri en einni tegund plantna og
ljóst er að svepprót getur myndað
bein tengsl á milli einstaklinga sömu
tegundar og jafnvel á milli óskyldra
plöntutegunda (Newman 1988). Fáar
plöntutegundir hafa þó verið rannsak-
aðar enn sem komið er að þessu leyti,
en sýnt hefur verið fram á að birki
(Betula pubescens) getur t.d. myndað
slík tengsl bæði við skógarfuru (Pinus
sylvestris) og stafafuru (Pinus con-
torta) (Read o.fl. 1985). Lannig er
hugsanlegt að svepprætur víðisins á
melnum í Vakalág tengi saman víði og
birki og verið getur að birkiplönturnar
fái efni frá víðinum um sveppaþræði
sem plöntur lengra frá hafa ekki
möguleika á að afla sér.
Rannsóknir á svepprótartengslum
eru ýmsum erfiðleikum háðar og tor-
velt er að sýna fram á flutning efna
104