Náttúrufræðingurinn - 1992, Síða 27
8. mynd. Kragi af
ungu birki umhverfis
loðvíði (Salix lanata)
við Gunnlaugsskóg á
Rangárvöllum. Young
birch (Betula pu-
bescens) plants in a
circle around a willow
(Salix lanata) at Gunn-
arsholt. Ljósm. photo
Borgþór Magnússon.
um svepprót frá einni plöntu til ann-
arrar svo óyggjandi sé. Margt bendir
þó til að ýmis efni, svo sem kolefni,
fosfór og köfnunarefni geti flust með
þessum hætti en lítið er enn vitað
hvort flutningurinn hefur afgerandi
áhrif á Iíf þeirra plantna sem tengdar
eru. Líklegt er að tengingar af þessu
tagi ráði miklu um samspil plantna
vegna þess að þau hafa áhrif á sam-
keppni og á hringrás næringarefna
(Newman 1988).
Fram hefur komið að ýmsar víðiteg-
undir koma tiltölulega fljótt inn í
gróðurframvindu og sama er að segja
um birki. Erlendar rannsóknir sem
gerðar hafa verið á fyrsta stigs gróður-
framvindu á norðurslóðum hafa t.d.
sýnt að víðitegundir nema oft land
skömmu eftir að gróðurframvinda
hefst (Crocker og Major 1955, Vie-
reck 1966) og dæmi eru um að víðir sé
með fyrstu landnámstegundum
(Walker o.fl. 1986). Fremur lítið er
vitað um þátt víðitegunda í gróður-
framvindu hér á landi, enda hafa fáar
rannsóknir verið gerðar á þessu sviði
enn sem komið er. Rannsóknir á
landnámi plantna á jökulaurum í
Skaftafelli (Persson 1964) hafa sýnt
svipaða gróðurþróun og fram hefur
komið víða erlendis við líkar aðstæð-
ur. I Skaftafelli voru loðvíðir, grasvíð-
ir og gulvíðir farnir að nema land 4-30
árum eftir að land kom undan jökli.
Landnám birkis hófst á svipuðum
tíma eða um 12-30 árum eftir að aur-
arnir urðu jökullausir. Nýlega hafa
verið birtar niðurstöður rannsókna á
gróðri og gróðurþróun á misgömlum
Hekluhraunum (Ágúst H. Bjarnason
1991). Sýna þær m.a. að ýmsir smá-
runnar, svo sem krækilyng og grasvíð-
ir, nema land fyrr en birki.
Þess má geta að hér á landi má víða
sjá landnám víðis þar sem áburði og
grasfræi hefur verið dreift á örfoka
land. Einkum er þetta áberandi þar
sem áburðargjöf hefur verið hætt og
dregið hefur úr vexti grasa. Á þessum
svæðum má einnig finna staði, t.d.
eins og á Ássandi í Kelduhverfi, þar
sem birki hefur numið land ásamt víði
í gömlum áburðarrákum (Ása L. Ara-
dóttir 1991). Vegna minnkandi beitar
má nú víða finna dæmi um landnám
birkis í nágrenni skógarleifa eða þar
sem birki hefur verið komið til með
gróðursetningu eða sáningu. Gunn-
laugsskógur á Rangárvöllum, sem er í
Iandi Gunnarsholts, er dæmi um skóg
sem komið var til með sáningu fyrir
105