Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1992, Qupperneq 39

Náttúrufræðingurinn - 1992, Qupperneq 39
Berggangar og misgengi Berggangar stefna flestir norður- suður. Meðalþykkt þeirra sem mældir voru er um 6 m og mest um 20 m. Flestir eru þeir margskiptir og smá- stuðlaðir. Gangarnir reyndust vera um 4% af öllu bergi við sjávarmál, mælt beggja vegna í Múlanum. í jarð- göngunum reyndust þeir hins vegar vera um 10% og er munurinn aðallega fólginn í því að þar er víða farið á ská í gegnum gangana en í jarðfræðikort- lagningu er þykktin alltaf mæld horn- rétt á stefnu þeirra. Berg ganganna reyndist í flestum tilfellum þokkalega gott til jarðgangagerðar og lítill munur á því og basalthraunlögunum. Aldur og ummyndun Samkvæmt segulmælingum er aldur jarðlagastaflans á svæðinu um 12 millj- ón ár. Á þeim tíma sem síðan er lið- inn hefur bergið ummyndast töluvert og er líklega mest áberandi hinn rauði litur setlaganna sem stafar af um- myndun á járnoxíði. Basaltgler, sem er meginuppistaða í yfirborðsgjalli basaltlaganna og gosöskunni, hefur víða ummyndast í leir. Ólivín, sem er mjög algengur frumsteinn í basaltlög- um í Múlanum, er að mestu horfið úr berginu og í stað þess komið ryðbrúnt iddingsít, en það er safnheiti um- myndunarsteinda með breytilega sam- setningu. Neðri hluti Múlans er í mes- ólít-skólesít ummyndunarbelti, en efri hlutinn í analsímbeltinu. í þóleiíti er algengt að sjá svarta klórófeítskán innan í blöðrum í berginu auk þess sem seólítar (stilbít, heulandít, kabas- ít) hálffylla blöðrurnar. Ólivínbasaltið er almennt ríkara af holufyllingum og nær eingöngu seólítum (kabasít, toms- onít o.fl.). Ummyndun getur haft töluvert að segja við jarðgangagerð. Þótt hún minnki yfirleitt styrk bergsins fer hann ekki niður að neinum hættumörkum nema ummyndunin verði svo mikil að bergið sé orðið morkið og sundur- laust. Hins vegar er einhver ummynd- un fremur jákvæð í flestum tilfellum, þar eð bergið „mýkist“, verður léttara í borun og þakið formast betur, auk þess sem útfellingar í sprungum og öðru holrými geta dregið úr vatns- leka. FRAMKVÆMDIR Framkvæmdir hófust haustið 1988 og gengu áfallalítið til loka. Alls voru sprengdir yfir 90.000 m3 af föstu bergi og tók það innan við eitt og hálft ár. Meðalafköst voru um 43 m á viku með vinnuhléum, en sé litið á virkan vinnutíma var meðalgangur um 52 m á viku. Hámarksafköst á einni viku voru 92 m. Eins og við var búist þurfti að styrkja bergið í göngunum töluvert. Var það bæði til að tryggja öryggi starfsmanna meðan á greftri stóð og öryggi vegfarenda til lengri tíma. Styrkingarnar fólust aðallega í því að úða þunnri steypu á loft og veggi, oft u.þ.b. 5 cm þykku lagi. Steypan var sums staðar styrkt með íblöndun stál- trefja. Einnig voru notaðir svonefndir bergboltar sem oftast voru 3 eða 4 m á lengd og víðast settir til að festa ein- stakar blokkir eða stuðla. Almennt má segja að jarðfræðilegar aðstæður í göngunum hafi verið svip- aðar og búist var við og í mjög góðu samræmi við niðurstöður forrann- sókna. Hvað varðar berggerðir, lag- þykktir, sprungur og ganga má segja að nánast ekkert hafi komið á óvart við gangagerðina. Samantekt á þeim berggerðum sem göngin liggja í, ásamt upplýsingum um fjölda og þykkt jarðlaga, er sýnd í 1. töflu. Mest kom á óvart hversu mikið grunnvatn rann inn í göngin. Megin- 117
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.