Náttúrufræðingurinn - 1992, Síða 48
Progesteron, nanomol/l (log 10)
3. mynd. Tíðnidreifing prógesterónstyrks í blóði 399 langreyðarkúa. Logaritmi (10) pró-
gesterónstyrksins er teiknaður á lárétta ásinn og fjölda langreyðarkúa með mismunandi
styrk má lesa af lóðrétta ásnum. Frequency distribution of blood progesterone levels in
399 female fin whales.
ing þeirra normalkúrfu með flesta
tarfa á 7. og 8. aldursári.
A 3. mynd sést hvernig styrkur
þungunarhormónsins prógesteróns
dreifðist í 399 veiddum kúm. Greina
má a.m.k. þrjá hópa kúa sem hafa
mismunandi prógesterónstyrk í blóði.
Kýr með mjög lág gildi, 0,1 nmól/1
(log 0,1= -1) eða minna, eru flokkað-
ar í hóp I, kýr með milligildi, eða frá
0,1 til 9,9 nmól/1, í hóp II og loks kýr
sem hafa 10 nmól/l eða meira í hóp III
og er það stærsti hópurinn með greini-
lega normaldreifingu. Kýr með fóstur
hafa alltaf reynst vera í hópi III.
Fjöldi kúa, meðallengd og meðal-
aldur (±st. frávik) í framangreindum
þremur hópum reyndist vera: I) 132
kýr, 59 fet (18 metrar) og 10,5 (±9,4)
ár; II) 92 kýr, 60 fet (18,3m) og 10,5
(±8,2) ár; III) 175 kýr, 64 fet (19,5m)
og 14,8 (±7,5) ár.
Þegar styrkur prógesteróns í blóði
langreyðarkúnna var kannaður með
tilliti til aldurs, kom í ljós að lægstu
gildin («0,1 nmól/1) eru einkum bund-
in við yngri hvalina, eins og sést á 4.
mynd. Hæstu gildin (>10,0 nmól/1)
byrja að sjást hjá 5 til 6 ára gömlum
hvölum og eru algengust hjá 8 til 18
ára gömlum kúm. Kýr eldri en 22 ára
eru innan við 10% af veiddum kúm.
Að síðustu könnuðum við hver væri
hlutfallslegur fjöldi kúa með >10
nmól/l prógesterónstyrk í blóði á mis-
munandi tíma veiðitímabilsins. Á 5.
mynd sést að hlutfallið er hæst, eða
um 60%, fyrstu vikurnar (1.-20. júní),
en fellur þegar líður á sumarið og er
komið niður fyrir 25% í lok júlí og
byrjun ágúst. Ef >10 nmól/1 prógest-
erónstyrkur táknar að kýr sé kelfd, þá
hefur hundraðshluti kelfdra kúa með-
al mældra dýra á ári hverju árin 1981
126