Fréttablaðið - 20.05.2009, Blaðsíða 6
6 20. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
ALÞINGI Frumvarp um stofnun
eignaumsýslufélags var afgreitt til
efnahags- og skattanefndar í gær
eftir fyrstu umræðu. Steingrím-
ur J. Sigfússon fjármálaráðherra,
sem mælti fyrir frumvarpinu,
sagði mikilvægt að klára málið nú
á sumarþingi. Tilgangurinn væri
að endurskipuleggja þjóðhagslega
mikilvæg fyrirtæki, en samkvæmt
frumvarpinu eru það fyrirtæki sem
„sinnir svo mikilvægum almanna-
eða öryggishagsmunum að stöðv-
un þess um lengri eða skemmri
tíma muni valda verulegri röskun
í þjóðfélaginu öllu“.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, spurði fjármálaráðherra hvers
vegna nauðsyn væri að stofna slíkt
hlutafélag, þar sem bankarnir
hefðu þegar slík umsýslufélög.
Steingrímur svaraði því til að
nauðsynlegt væri að stofna slíkt
félag, ef í einhverjum tilvikum væri
talið hagkvæmara að leysa vanda-
mál fyrirtækja innan þess, frekar
en innan bankanna, til dæmis ef
fyrirtæki væri með lán hjá mörg-
um bönkum og flókið að sjá hver
þeirra ættu að taka forystu.
Það ætti þó að vera í undantekn-
ingartilvikum sem mál fyrirtækja
yrðu leyst innan þessa félags.
„Fyrstu hugmyndir voru að þetta
gengi lengra,“ sagði Steingrímur og
minnti á hugmyndir um að fimmt-
án stærstu fyrirtæki hvers banka
rynnu inn í slíkt eignaumsýslufélag.
„En ég sagði nei.“
Framsóknarmenn gagnrýndu
einnig að lítið samráð hefði verið
haft við aðila atvinnulífsins, sem
gagnrýndu svipað frumvarp sem
var til umræðu á Alþingi á vor-
þingi. Þá gagnrýndu þeir einnig að
það væri fjármálaráðherra sem til-
nefndi stjórnarmenn félagsins, en
það gæti leitt til frekari tenginga
stjórnmála og viðskiptalífs, sem
og að ekki væru takmörk fyrir því
hvernig félagið gæti skuldbund-
ið ríkissjóð í endurskipulagningu
fyrirtækja.
„Eitt af því sem ríkisstjórnin
leggur áherslu á er að þarna sé
fagleg forysta og þessu verði hald-
ið armslengd frá pólitíkinni,“ segir
Helgi Hjörvar, formaður efnahags-
og skattanefndar.
Hann segir að frumvarpið hafi
tekið breytingum frá fyrra þingi,
en á von á aðilum atvinnulífisins til
fundar við nefndina á föstudag til
að ræða frumvarpið.
svanborg@frettabladid.is
Á að leysa vandamál
of flókin fyrir banka
Eignaumsýslufélag ríkisins á að leysa vandamál þjóðhagslega mikilvægra fyrir-
tækja þegar vandamálin eru of flókin fyrir einn banka. Undantekning frekar
en regla. Stjórnarandstaðan gagnrýnir skort á samráði og tilgang félagsins.
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Ekki tókst að koma frumvarpi um eignaumsýslufélag
í gegnum vorþing. Reyna á aftur nú á sumarþingi þegar ríkisstjórnin er komin með
meirihluta á þingi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur framlengt gæsluvarð-
hald yfir tveimur mönnum sem
réðust inn á heimili eldri hjóna á
Arnarnesi í lok apríl, héldu þeim í
gíslingu og rændu þau. Mennirn-
ir munu samkvæmt úrskurðinum
sitja inni til 16. júní hið minnsta.
Rannsókn málsins er lokið, að
sögn Friðriks Smára Björgvins-
sonar yfirlögregluþjóns, og hefur
það verið sent Ríkissaksóknara
til ákærumeðferðar. Ríkissóknari
ákveður hvort þrjár stúlkur
sem biðu úti í bíl á meðan ránið
var framið verða ákærðar fyrir
hlutdeild í brotinu. - sh
Arnarnesræningjarnir tveir:
Bíða ákæru
í fangaklefa
RÆNINGJARNIR Mennirnir voru hand-
teknir tveimur dögum eftir ránið og
úrskurðaðir í varðhald. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Hjólreiðaeigendur
sem hafa sleikt sólina undan-
farna dag í sólinni á Ylströnd-
inni hafa margir hverjir snúið
til baka reiðhjóli fátækari. „Svo
virðist sem einhverjir óheiðar-
legir menn leiti lags meðan fólk-
ið er að sóla sig og steli reið-
hjólunum,“ segir Sigurbjörn
Jónsson, varðstjóri lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu.
„Það hafa fjölmargir haft sam-
band við okkur út af þessu, ég
veit um ein fimm hjól sem voru
tekin í gær en þau gætu þess
vegna verið helmingi fleiri,“
segir hann. Hann segist gruna
að menn taki hjólin til að selja
þau. Í einhverjum tilfellum hafa
þjófarnir ekki náð hjólinu en
tekið aukabúnað sem fylgir því.
- jse
Þjófar við Ylströndina:
Hjólin hverfa
við ströndina
Horfðir þú á stefnuræðu forsæt-
isráðherra?
Já 24%
Nei 76%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ertu búinn að fara á
ylströndina í ár?
Segðu skoðun þína á vísir.is
ATVINNA Miðstöð fyrir ungt fólk í
atvinnuleit verður komið á lagg-
irnar í Reykjavík en tillaga þess
efnis var samþykkt á fundi borg-
arstjórnar í gær. Leitað verður
eftir samstarfi við Lýðheilsustöð,
Rauða krossinn og menntamála-
ráðuneytið með það að mark-
miði að fá Austurbæjarbíó að láni
og starfrækja þar miðstöð fyrir
ungt fólk í atvinnuleit. Húsið
verður opið í sumar en mögulega
lengur ef vel gengur.
Markmiðið með þessu er að
virkja frumkvæði og sköpunar-
kraft ungmenna í Reykjavík með
því að skapa þeim vettvang til að
koma hugmyndum sínum í fram-
kvæmd. Svandís Svavarsdóttir,
umhverfisráðherra og fráfarandi
borgarfulltrúi VG, bar tillöguna
upp. - sbt
Ungmenni í Austurbæjarbíói:
Miðstöð fyrir
ungmenni í
atvinnuleit
Barnalist í Gerðubergi
Sýning á verkum hátt í þrjú þúsund
barna verður opnuð í menningar-
miðstöðinni Gerðubergi um helgina.
Börnin hafa í vetur tekið þátt í verk-
efni umboðsmanns barna þar sem
þau tjá sig í myndrænu og rituðu máli
hvernig það er að vera barn á Íslandi.
MENNING
DÝRAHALD Bryndís Stefánsdóttir,
íbúi í Grafarholti, er afar ósátt
við það að kattargildra skuli hafa
verið sett við bæinn að Laxalóni,
um tvö hundruð metrum frá heim-
ili hennar, en þar eru hænur úti á
túni. „Mér finnst það vera siðlaust
að vera með kattargildur rétt fyrir
framan hænur sem ganga lausar,“
segir hún en hennar köttur lenti í
þessari gildru í vikunni. „Ég skil
það vel að það verði að veiða ketti
í gildrur ef þeir eru til vandræða
en kötturinn minn væri ekki að
fara þarna nema vegna þess að
þar eru hænur.“ Hún segir að kött-
ur sinn hafi verið týndur í nokkr-
ar klukkustundir. Síðan hafi henni
borist símtal frá Kattholti þangað
sem hann var sendur. „Svo þarf
ég að borga sekt sem er allavega
yfir tíu þúsund út af þessu,“ segir
hún. Hún segir hins vegar að hann
hafi ekki verið með örmerki líkt
og reglur gera ráð fyrir.
„Það sem heyrir undir mig eru
ekki hænurnar heldur það að þjón-
usta borgarbúa,“ segir Guðmund-
ur Björnsson, rekstrarstjóri mein-
dýravarna Reykjavíkurborgar.
„Ef einhver þeirra verður fyrir
óþægindum af völdum katta og
hringir í mig þá á ég að sinna því.
Búrið var lagt og köttur handsam-
aður sem ekki var merktur sam-
kvæmt reglum um kattarhald í
Reykjavík og því var hann sendur
á Kattholt.“
Bjarni Ásgeirsson, íbúi á Laxa-
lóni, segist vera með „tvær, þrjár“
hænur við bæinn. Hann hafi ekki
kvartað undan ketti Bryndísar
en reyndar séu villikettir tíðir í
grendinni. - jse
Íbúi í Grafarholti ósátt við að kattargildra skuli lögð hjá hænsnum við bæinn að Laxalóni:
Segir köttinn hafa verið ginntan í gildru
BRYNDÍS MEÐ LAXALÓN Í BAKSÝN Þarna á hæðinni er köttur Bryndísar vanur að
vafra um en svo hefur hann freistast til að kíkja á hænurnar á Laxalóni en sú ferð
endaði á Kattholti. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
KÓPAVOGUR
Fá lánaða tvinnbíla
Bæjarráð Kópavogs samþykkti á
síðasta fundi sínum, að ráðleggingu
umhverfisráðs, að þekkjast boð
Toyota á Íslandi um að fá lánaðar til
reynslu þrjá tvinnbíla af Toyota Prius
gerð. Bærinn fær bílana til umráða
í hálfan mánuð. Málinu var vísað til
afgreiðslu bæjarstjóra.
KJÖRKASSINN
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
þú getur a taf re tt þ g á Siemens
Nú eru allar
Siemens þvottavélar
á tilboðsverði.
Láttu sjá þig og
gerðu góð kaup.
Sama hvernig viðrar,
– ll i i .