Fréttablaðið - 20.05.2009, Page 22
20. maí 2009 MIÐVIKU-
DAGUR
2
HESTAKONUR í hestamannafélaginu Fáki í Reykjavík fjölmenna í kvenna-
reiðtúr föstudaginn 22. maí. Riðið verður upp til heiða og grillað og fjörið verð-
ur allsráðandi. Kvennareiðtúrinn á sér langa hefð enda haldinn árlega og fylgir
ávallt mikil gleði hópi hressra hestakvenna. www.fakur.is
Menntskælingar ætla ekki að láta
kreppuna skemma fyrir sér gleð-
ina og flykkjast í útskriftarferð-
ir til sólarlanda í sumar, eins og
þeirra er von og vísa.
„Við áttum alveg eins von á ein-
hverjum samdrætti í útskriftar-
ferðunum. Við finnum hins vegar
litlar breytingar á milli ára, skóla-
hópafjöldinn er sá sami og fjöldi
nemenda á svipuðum nótum og
í fyrra,“ segir Tómas Gestsson,
framkvæmdastjóri Heimsferða.
Meðal menntaskólanna sem
kaupa ferðir af Heimsferðum eru
Menntaskólinn við Sund, Verslun-
arskóli Íslands, Kvennaskólinn og
Menntaskólinn að Laugarvatni.
Nemendur þeirra skóla fara ýmist
til spænsku eyjarinnar Mæjorka
eða á Costa del Sol-strandlengj-
una. „Þetta eru sígildir staðir
sem hafa verið vinsælir hjá okkur
í mörg ár. Í fyrra fór reyndar líka
hópur til grísku eyjarinnar Ródos
en í ár bjóðum við ekki ferðir
þangað,“ segir Tómas.
Hjá Ferðaskrifstofu Íslands
er svipaða sögu að segja. „Þeir
hópar sem við erum með hafa
að mestu leyti haldið fjöldan-
um sem þeir ætluðu upphaflega
út með,“ segir Lára Birgisdótt-
ir, starfsmaður Ferðaskrifstofu
Íslands. Innan hennar eru Úrval-
Útsýn, Plúsferðir og Sumarferð-
ir. Meðal þeirra skóla sem kaupa
ferðir þeirra eru Menntaskólinn
í Reykjavík og Menntaskólinn
Hraðbraut. „Menntaskólanem-
arnir eru að fara í klassískar sól-
arlandaferðir en þær hafa alltaf
verið vinsælastar meðal þeirra.
Þeir dreifast nokkuð jafnt á tvo
staði, Tenerife á Kanaríeyjum og
Marmaris í Tyrklandi.“ Hún segir
svo virðast sem krakkarnir láti
efnahagsástandið ekki eyðileggja
fyrir sér sumarplönin. „Ætli þau
séu ekki búin að hlakka til í lang-
an tíma og reyni eins og þau geti
að halda þessu til streitu,“ segir
hún.
Ferðir menntaskólanemanna
eru annars með svipuðu sniði hjá
báðum ferðaskrifstofum. Algeng-
ast er að krakkarnir búi marg-
ir saman í einni íbúð. Ferðirnar
eru oftast tveggja vikna lang-
ar en boðið upp á möguleikann á
viku. Að jafnaði kosta ferðirnar í
kringum hundrað þúsund krónur
á mann.
holmfridur@frettabladid.is
Mæjorka og Marmaris
Nú nálgast uppskerutími menntskælinga. Þeim fylgja útskriftarferðirnar sem margir hafa beðið eftir öll
menntaskólaárin. Forsvarsmenn ferðaskrifstofa segja lítinn samdrátt í sölu slíkra ferða milli ára.
Marmaris í Tyrklandi hefur lengi verið vinsæll áfangastaður íslenskra útskriftarnema.
Úrval-Útsýn býður upp á vikuferð til ítölsku Alpanna dagana 16. til 23. júní
og eru nokkur sæti laus. Haldið
verður í fjallaþorpið Selva þar
sem fagra tinda Dólómítanna ber
við himin. Þar er nóg af fersku
fjallalofti, fagurgrænum fjalls-
hlíðum, hrikalegum hamrabelt-
um, blómabreiðum og víðfeðm-
um skógum.
Selva er þekktur skíðabær á
veturna en er einnig heillandi
áfangastaður á sumrin. Þar ganga
kláfar upp á hæstu tinda og því
auðvelt að að komast á toppinn
til að njóta fagurs útsýnis. Bærinn er líflegur með fjölda kaffihúsa og versl-
ana, bæði tískuverslana og sérverslana sem bjóða upp á fallega hluti skorna
í tré.
Í þessari vikudvöl verður ýmislegt í boði, meðal annars útsýnisferð um
Dólómítana, heilsdagsferð að Gardavatni og dagsferð til Bolzano og Merano.
Ævintýri í ítölsku Ölpunum
ÆGIFAGRIR TINDAR, FERSKT FJALLALOFT OG FAGURGRÆNAR HLÍÐAR EINKENNA
FJALLAÞORPIÐ SELVA Á ÍTALIU.
Alparnir skarta sínu fegursta.
Eyddir og gaml-
ir dempunarlausir
skór eru helsta orsök
meiðsla hjá hlaupur-
um. Hlauparar ættu
því að eiga tvenn skó-
pör. Nýrra skóparið á
að nota í löng hlaup
og í keppni en eldra
parið í styttri hlaup, í
verri veðrum.
www.hlaup.is
Íslensk ungmenni munu
sóla sig á ströndinni í
sumar og fagna þannig
útskrift úr framhaldsskóla.
Smurþjónusta
fyrir allar gerðir bíla
Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla
Komdu með bílinn til okkar!
Frábær verð og góð þjónusta!
Alltaf heitt á könnunni!
ATH. S
MURS
TÖÐIN
STÓRA
HJALL
A ER
FLUTT
AÐ DA
LVEGI
DALVEGUR 16A
S. 554 3430
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki