Fréttablaðið - 20.05.2009, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 20.05.2009, Blaðsíða 21
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 UPPSTIGNINGARGANGA verður farin á fimmtudag- inn í fólkvanginum Einkunnum rétt við Borgarnes. Þá verður gengið milli Álatjarnar og Háfsvatns. Lagt verður af stað klukkan 10 frá nýju bílastæðunum við Álatjörn og tekur gangan um tvo tíma. Fólkvangurinn í Einkunnum er ein af perlum Borgarbyggðar. Hann var stofnaður vorið 2006. „Þetta er búið að vera draumur minn lengi og ég lét hann rætast,“ segir Dagmar Heiðdal, sem fékk sér vespu fyrir nokkrum dögum. Hún kveðst alltaf hafa verið heilluð af slíkum farartækjum og þótt þau spennandi. „Ég byrjaði á að æfa mig í hverfinu á fáförnum götum og þetta er alveg æðislegt,“ segir hún. Dagmar kveðst aldrei hafa verið á mótorhjóli og engan áhuga hafa á þeim. „Það er allt annað dæmi. Þetta er lífsstíll sem hentar mér,“ segir hún og bætir við: „Það kost- ar bara þúsundkall að fylla tankinn og hann endist lon og don.“ Hún kveðst bara fimm mínútur á ves- punni í vinnuna og svo skýst hún á henni að kaupa í matinn. „Ég er með körfu framan á og hanka við sætið til að hengja poka á,“ segir hún ánægð. Vespan er af gerðinni Piaggio. „Ítölsk framleiðsla af bestu gerð,“ segir Dagmar ánægð og kveðst hafa keypt hana splunkunýja hjá Gunnari Hanssyni leikara. Hún upplýsir að með hjálmi og kass- anum aftan á hafi hún kostað um 650.000 krónur. Dagmar kveðst hafa tekið nokkra aksturstíma hjá kennara áður en hún fór í prófið. „Mér fannst það ágætt því þótt ég sé vön að keyra bíl er þetta talsvert öðruvísi. Maður verður að halda jafnvæginu og passa sig í umferðinni,“ segir hún. „Ekki það að ég sé að sækjast eftir að spana um Miklubrautina.“ Slagrými vélar vespunnar er 125 kúbik og Dagmar þurfti að gang- ast undir próf til að keyra hana. Nú hefur hún leyfi til að taka far- þega. „Á litlu vespurnar þarf ekk- ert próf,“ útskýrir hún og bætir við: „En þá getur maður eins verið á reiðhjóli.“ gun@frettabladid.is Tankurinn á þúsundkall og endist lon og don Það er stíll yfir Dagmar Heiðdal þar sem hún líður um göturnar á glænýrri, eldrauðri vespu og lætur sumarblæinn leika um vanga. Á henni getur hún sótt vinnu og svo skotist í búðina eftir nauðsynjum. „Þetta er lífsstíll sem hentar mér,“ segir Dagmar Heiðdal og hallar sér inn í beygjuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.