Fréttablaðið - 20.05.2009, Síða 28

Fréttablaðið - 20.05.2009, Síða 28
„Þetta er galopið úrræði og opið öllum,“ segir Hörður Oddfríðarson, dagskrárstjóri göngudeildar, um U-hópinn sem hittist í Von, Efstaleiti 7, á mánudögum og miðvikudögum. „Unga fólkið getur bara labbað inn af götunni. Eina skilyrðið fyrir að fá að vera með er að viðkomandi ungmenni vilji vera edrú. Þetta er ekki flóknara en það.“ Krakkarnir í hópnum eru flestir sammála um að erfitt væri að meika það án félagsskaparins. Og það er mikið gert fyrir krakkana annað en að fræða þau um alkóhólisma og fíkn. Í vetur fóru þrír ráðgjafar með 45 krakka í snjóbrettaferð. Þetta átti að vera tveggja daga ferð á Siglufjörð en hópurinn varð veðurtepptur og var í þrjá daga í húrrandi stuði, bláedrú. Fundir á hverjum degi U-hópurinn hittist sem fyrr segir tvisvar í viku. Þar fá krakkarnir fræðslu og leiðbeiningar. Margir þeirra sækja aðra tólf spora fundi, jafnvel á hverjum degi og segja það hjálpa líka. „Maður eignast marga góða vini í gegnum U-hópinn,“ sagði ein sautján ára sem blaðamaður ræddi við. Það er alkóhólismi í fjölskyldunni hennar og stundum er þetta mjög erfitt. En hún er búin að vera edrú síðan um áramót og stendur sig vel. Annar, 21 árs, sagði blaðamanni að mjög mikilvægt væri að kynnast öðrum krökkum sem væru edrú. „Algengustu ástæðurnar fyrir falli eru gamli vinahópurinn. Þess vegna er svo mikilvægt að koma í U-hópinn og fá tækifæri til að tala við aðra krakka á svipuðu reki. Það er líka nauðsynlegt að hjálpa öðrum. Þannig nær maður bata. Með því að gefa af sér og taka þátt í starfinu.“ Krakkarnir eru sammála um að það sé ógeðslega gaman í U-hópnum og minnast snjóbrettaferðarinnar með blik í augum. Geta tekið með sér vin U-hópurinn er opinn og algengt að krakkarnir taki með sér vin sem kynnist þannig starfinu. Það er ekki nauðsynlegt að hafa verið á Vogi til að fara í U-hópinn. Sumir krakkanna hafa auðvitað farið á Vog og getur U-hópurinn verið hluti af eftirmeðferð. „Það er mikið af mjög skapandi einstaklingum í þessum hópi,“ útskýrir Hörður og bætir við að oft sé mjög framkvæmdaglatt fólk hjá þeim. „Þarna eru krakkar sem hafa lokast inni vegna neyslu en eru oft með frábærar hugmyndir og eru mjög framkvæmdaglaðir. Um leið og þeir verða edrú og ná að koma hugmyndum sínum í jákvæðan farveg gerast góðir hlutir.“ Um síðustu jól héldu krakkarnir til dæmis jólahlaðborð í Von þar sem þeir elduðu matinn sjálfir og buðu sínum fjölskyldum að njóta góðrar kvöldstundar. Það þótti mjög vel heppnað hjá krökkunum og maturinn og andinn frábær. Síminn opinn allan sólarhringinn Veturinn sem leið var mjög góður hvað unglingastarfið varðaði. Mæting var með þvílíkum ágætum og hópurinn sterkur í allan vetur. Starfið sem krakkarnir sinna er fjölbreytt og skemmtilegt. Auk félagsstarfsins fara þau líka og halda fundi á Staðarfelli og Vík og taka þátt í ýmsu starfi SÁÁ. Að lokum má geta þessa að unglingasími SÁÁ, 824-7666, er opinn allan sólarhringinn. Þar er hægt að fá upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu SÁÁ við börn og unglinga og foreldra þeirra. -MT 1. tölublað maí 200904 ðFá bata við a hjálpa hvert öðru U-HÓPURINN hjá SÁÁ hefur verið starfræktur í núverandi mynd síðan 1996. Þar geta allir unglingar sem vilja vera edrú fengið fræðslu, hjálp og frábæran félagsskap. Krakkarnir í U-hópnum eru ánægð með starfið og áhugasamir unglingar geta hringt í síma 824-7666 á degi sem nóttu. MAÐUR EIGNAST MARGA GÓÐA VINI Í GEGNUM U-HÓPINN.“ U-HÓPURINN Algengustu ástæðurnar fyrir falli er gamli vinahópurinn. Þess vegna er svo mikilvægt að koma í U-hópinn og fá tækifæri til að tala við aðra krakka á svipuðu reiki. AF HVERJU KAUPIR ÞÚ ÁLFINN? að ég vil styðja við unga fólkið og leggja góðu málefni lið. Ég þekki til starfsemi SÁÁ og veit að þar starfar fólk af miklum heilindum. Svona fjármögnun, eins og sala á álfinum, skiptir samtökin miklu máli. Á tímum sem þessum er líka nauðsynlegt að við þjöppum okkur saman um það sem skiptir mestu máli. Og það skiptir svo sannarlega máli að við hlúum að unga fólkinu okkar. Þess vegna kaupi ég álfinn. HANNES STEINDÓRSSON FASTEIGNASALI Ég hef alltaf keypt álfinn. Einfald- lega vegna þess að mér finnst það starf sem SÁÁ vinnur vera frábært. Og að kaupa álfinn er mjög góð leið til að styrkja star- fið. Kannski eina leiðin fyrir flest venjulegt fólk. Vegna þess að starf SÁÁ er þarft og þar gerast kraftaverkin. Mér finnst þetta bara eitthvað svo augljóst og hef þannig séð ekkert hugsað mikið um af hverju ég kaupi álfinn. Það er sjálfsagt í mínum huga. Þessi sjúkdómur getur haft áhrif á heilu fjölskyldurnar og gott að vita af SÁÁ og starfi þeirra. EVA DÖGG SIGURGEIRSDÓTTIR MARKAÐSSTJÓRI Alkóhólismi er ömurlegur sjúkdómur sem leggur líf fólks og heilu fjölskyldurnar í rúst. SÁÁ hefur unnið frábært starf í yfir 30 ár við að hjálpa fólki að byggja sig upp og ná fótfestu í lífinu eftir að hafa barist við alkó- hólisma. Þetta þekki ég af eigin raun. Því fyrr sem gripið er inn í vandann því betra og þess vegna er starfsemi unglingadeildar SÁÁ afar mikilvæg og dýrmæt. Þess vegna kaupi ég álfinn. BIRNA ÍRIS JÓNSDÓTTIR FORRITARI Ég kaupi alltaf nokkra álfa og ástæðan er einföld; ég vil styrkja SÁÁ í orði og á borði. SÁÁ eru ein mikilvæ- gustu samtök landsins. Þetta segi ég af því að ég hef sjálfur gengið í gegnum bat- teríið sem SÁÁ rekur af miklum myndarskap. Ég hef líka séð hvað áfengi og fíkniefni geta gert fólki. Vímuefni skaða bæði andlega og líkamlega og geta hreinlega tekið líf fólks. Hvet því alla til að kaupa nokkra álfa og styðja starf SÁÁ. SIGFÚS SIGURÐSSON HANDBOLTAMAÐUR MYND: GUNNAR GUNNARSSON Dagskrá fundarins er: Skýrsla stjórnar um framkvæmdir og starfsemi samtakanna á liðnu starfsári. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til umræðu og samþykktar. Lagabreytingar ef fyrir liggja tillögur um þær. Kosning stjórnar, varastjórnar, endurskoðenda og varaendurskoðenda. Tekin ákvörðun um félagsgjöld. Önnur mál. Aðalfundur SÁÁ verður haldinn miðvikudaginn 30. maí kl. 17 í Efstaleiti 7. SVIPMYNDIR ÚR FÉLAGSSTARFI SÁÁ: Vorfagnaður SÁÁ var haldinn í Von í byrjun maí

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.