Fréttablaðið - 20.05.2009, Page 54
22 20. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
Tom Hanks ætlar ekki að leika í
framhaldi hinnar fimmtán ára
gömlu Forrest Gump. Orðómur
hefur verið uppi um að gera
eigi mynd upp úr framhaldsbók
Winstons Groom, Gump and Co.
Hanks hefur nú vísað þessum
vangaveltum á bug.
„Við hugsuðum hvort þetta
gæti gengið upp en okkur fannst
við vera að endurtaka okkur,
þannig að við sáum ekki
ástæðu til að gera
myndina,“ sagði hann.
Eric Roth, sem skrif-
aði handritið að For-
rest Gump, viður-
kenndi á síðasta ári
að hann hefði lokið
við nýtt handrit að
framhaldsmynd degi fyrir hryðju-
verkaárásirnar í New York 2001.
Eftir að hafa sest niður með
Hanks og leikstjóranum Robert
Zemeckis skömmu eftir árás-
irnar ákváðu þeir að hætta við
framleiðsluna vegna slæmrar
tímasetningar. „Heimurinn hafði
breyst. Núna hefur reyndar langur
tími liðið en kannski er bara
best að hreyfa ekki við
sumum hlutum,“
sagði Roth.
folk@frettabladid.is
> TILBÚIN Í HJÓNABAND
Söngkonan og kyntáknið Nicole
Scherzinger úr Pussycat Dolls segist
vera tilbúin að ganga upp að altarinu.
Hún vill að kærastinn, Formúlukapp-
inn Lewis Hamilton, biðji hennar í
sumar. „Stelpurnar úr hljómsveitinni
geta verið brúðarmeyjar. En fyrst
verð ég að trúlofa mig. Júlí væri
góður mánuður til þess,“ segir
Nicole en þau Hamilton hafa
verið saman síðan 2007.
Sígildir rokkslagarar munu
hljóma í Laugardalshöll 5.
júní þegar landslið söngv-
ara stígur á svið og syngur
lög með Bítlunum, Led
Zeppelin, U2, Oasis og fleiri
böndum.
Tónlistarveislan, sem Hr. Örlygur
stendur fyrir, ber yfirskriftina Cir-
cus Rokk og ról. Þar flytur hljóm-
sveitin Dúndurfréttir rokkslagara
síðustu fimm áratuga með flytj-
endum á borð við Bítlana, Oasis,
Led Zeppelin, The Doors, U2, Pink
Floyd, The Clash og Neil Young.
Dúndurfréttir hafa í gegnum árin
spilað lög með Pink Floyd, Zeppelin
og fleiri böndum við miklar vin-
sældir og ætti hljómsveitin því
ekki að lenda í neinum vandræðum
í Höllinni.
Margir af fremstu rokksöngvur-
um þjóðarinnar koma fram með
hljómsveitinni og syngja mörg af
uppáhaldslögum sínum, þar á meðal
Eiríkur Hauksson, Helgi Björns-
son, Páll Rósinkranz, Daníel Ágúst,
Björn Jörundur, Magni, Krummi og
Stones-tribute bandið.
„Þetta leggst rosavel í mig. Þarna
verða frábærir söngvarar og frábær
lög sem verða tekin. Þetta verða
hátt í fimmtíu lög og alveg þriggja
tíma geðveiki og partí í Höllinni.
Þetta verður geðveikt stuð,“ segir
Krummi. „Ég valdi mín uppáhalds
þekktu lög sem mér finnst gaman
að syngja, með The Doors, T. Rex,
Black Sabbath og ZZ Top. Þetta er
tónlist sem ég hrærist mikið í og
þetta verður ógeðslega gaman.“
Svo gæti farið að tónleikarnir
yrðu einu stórtónleikar sumarsins
vegna efnahagsástandsins og því
um að gera fyrir fólk að nýta tæki-
færið. „Það kæmi mér ekki óvart
eins og staðan er í dag og þess
vegna ætti fólk að kaupa sér miða,“
segir Krummi og lofar gríðarlegri
stemningu.
Miðaverð á tónleikana er 2.900
kr. í stæði og 3.900 í stúku og hefst
miðasalan á morgun á Midi.is.
freyr@frettabladid.is
Sígild rokkveisla í Höllinni
ROKKARAR Daníel Ágúst, Krummi, Páll Rósinkranz og félagar úr hljómsveitinni Dúndurfréttum sem taka þátt í rokkveislunni í
Höllinni 5. júní. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hljómsveitin Foreign Monkeys,
sem vann Músíktilraunir 2006,
heldur ferna útgáfutónleika til að
fagna sinni fyrstu plötu, sem kom
út fyrir skömmu. Fyrstu tvennir
tónleikarnir verða í heimabæ
sveitarinnar, Vestmannaeyjum, í
kvöld. Fyrst stíga piltarnir á svið
klukkan 19 og spila fyrir alla ald-
urshópa en klukkan 22 spila þeir
fyrir eldri aldurshópa. Hljómsveit-
in Súr hitar upp. Síðari útgáfutón-
leikarnir verða á Sódómu Reykja-
vík 27. maí. Þeir tónleikar verða
einnig tvennir, klukkan 18 og 22.
Miðaverð á tónleikana er 500 krón-
ur auk þess sem hægt verður að
kaupa plötuna á 1.500 krónur.
Fagna sinni
fyrstu plötu
TOM HANKS Hanks
ætlar ekki að leika
Forrest Gump á
nýjan leik þrátt fyrir
orðróm þess efnis.
Mel Gibson, ástralska stórstjarn-
an, er búinn að festa sig kirfilega
í kastljósi fjölmiðlanna. Leikar-
inn, sem sjaldan eða aldrei sást
á síðum slúðurblaðanna heldur
kaus frekar rólegt líf með konu
sinni og sjö börnum, er nú á hvers
manns vörum í Bandaríkjunum
og þó víðar væri leitað. Vefsíðan
TMZ greindi nefnilega frá því í
gær að Gibson ætti von á sínu átt-
unda barni með rússnesku hjákon-
unni, Oksana Grigorieva. Hún ku
vera komin þrjá mánuði á leið og
samkvæmt heimildum vefsíðunnar
hefur Ástralinn þegar fært konu
sinni og hinum börnunum sjö þessi
tíðindi.
Þar sem Gibson er kaþólikki af
gamla skólanum gera fjölmiðlar
því skóna að hann hyggist festa ráð
sitt að nýju með rússnesku popp-
stjörnunni. Enda ekkert sérstak-
lega vel liðið innan kirkjunnar að
fylgismenn hennar eignist börn í
lausaleik. Þetta hefur þó ekki feng-
ist staðfest né heldur væntanleg
barnseign en því hefur þó heldur
ekki verið vísað á bug. Það eina
sem talsmaður Gibson vildi láta
hafa eftir sér í samtali við afþrey-
ingafréttastöðina E!-online var að
menn skyldu bara fylgjast grannt
með.
Talið er líklegt að skilnaður
Mel og Robyn Gibson eigi eftir
að verða sá dýrasti í sögu Holly-
wood. Robyn hefur nánast alfar-
ið séð um barnauppeldið á meðan
Gibson hefur sinnt sinni vinnu sem
kvikmyndaleikari en afurðir hans
hafa malað gull í miðasölu og því
á Robyn nokkurt tilkall til auðæva
hans.
Gibson barnaði hjákonuna
Endurhljóðblönduð útgáfa af lag-
inu Geimþrá með Mammút er
komið út. Drengir sem kalla sig
Red Lights bjuggu til nýju útgáf-
una. Þeir heita réttu nafni Ingi
Már Úlfarsson og Jóhann Bjark-
ason og hafa gert hiphop-tónlist í
mörg ár. Nýjasta verkefni þeirra er
vinna við væntanlega plötu Erpar
Eyvindarsonar og Emmsjé Gauta.
Í ágúst síðastliðnum gaf Record
Records út aðra plötu Mamm-
út, Karkari, og hefur hún selst í
tæpum tvö þúsund eintökum hér
á landi.
Nýja lagið fylgir einmitt með
nýju uppplagi af plötunni sem er
komið í búðir. Það verður einnig
fáanlegt frítt á Tónlist.is til næsta
sunnudags.
Geimþrá í nýrri útgáfu
Leikur ekki Forrest Gump
GLEÐILEG TÍÐINDI Mel Gibson og
Oksana eiga von á barni og talið er
líklegt að þau gangi í það heilaga innan
fárra vikna. NORDIC PHOTOS/GETTY
Austurbergi 5 • 111 Reykjavík • Sími 570 5600
Símbréf 567 0389 • Tölvupóstur: fb@fb.is • www.fb.is
Skólaslit
Skólanum verður slitið föstudaginn 22. maí kl. 14 í Íþróttahúsi FB
við Austurberg.
Allir nemendur sem ljúka eftirtöldum prófum fá skírteini
afhent við skólaslitin:
Handíðabraut
Skiptinemar
Burtfararprófi á rafvirkjabraut
Burtfararprófi á húsasmiðabraut
Burtfararprófi á snyrtibraut
Sjúkraliðabraut
Stúdentsprófi
Starfsbraut
Æfi ng vegna skólaslitanna verður á miðvikudagskvöldið kl. 18 og
þurfa allir útskriftarnemar að mæta.
Allir velunnarar skólans eru velkomnir á skólaslitin.
Skólameistari
www.jonogoskar.is Laugavegur 61 / Smáralind / Kringlan
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 9
0
8
7
1
Stúdentastjarnan og -rósin 2009
fallegar stúdentsgjafir sem fást hjá okkur
14 kt. gull
Stjarnan kr.10.700
Rósin kr.11.800