Fréttablaðið - 20.06.2009, Page 10
10 20. júní 2009 LAUGARDAGUR
ASÍUBIKARINN Íranskur knattspyrnu-
áhugamaður klæddist bol með mynd
af stjórnarandstöðuleiðtoganum
Mir-Hossein Mousavi á leik Írans og
Suður-Kóreu á miðvikudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BESSASTAÐIR Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
sæmdi tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku
fálkaorðu á Bessastöðum 17. júní síðastliðinn.
„Þetta er góð tilfinning, þetta var mjög indælt og
hátíðlegt. Ég met það mikils að hafa fengið fálka orðuna
þótt ég hafi alls ekki búist við því, þetta kom mér
mjög á óvart,“ sagði Árný J. Guðjohnsen en hún var
ein þeirra sem hlutu orðuna í ár. Fimm konur og fimm
karlar fengu orðuna á þjóðhátíðardaginn.
Eftirtaldir voru sæmdir fálkaorðunni: Árný J. Guð-
johnsen ritari, Reykjavík, Björn Jónsson, fyrrverandi
skólastjóri, Böðvar Guðmundsson rithöfundur, Guð-
rún Jónsdóttir bóndi, Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrver-
andi formaður UMFÍ, Helga Jónsdóttir bæjarstýra,
Hólmfríður Árnadóttir, fyrrverandi prófessor, Ólafur
Eggertsson bóndi, Pálína Ása Ásgeirsdóttir hjúkrunar-
fræðingur, Páll Bergþórsson, fyrrverandi veðurstofu-
stjóri. - hds
Forseti Íslands veitti heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum á þjóðhátíðardaginn:
Fimm konur og fimm karlar heiðraðir
VIÐ ATHÖFNINA Ólafur Ragnar Grímsson ásamt orðuhöfunum tíu.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
9
-0
5
9
1
WWW.101TOKYO.IS
1 1 TOKYO
13.06.09–13.07.09
SNERTING VIÐ JAPAN
Í NORRÆNA HÚSINU REYKJAVÍK
„Japanskur stíll” og
vöruhönnun
Hönnunarráðgjafinn og
menningarfrömuðurinn,
Tadanori Nagasawa
frá Musashino-listaháskólanum
heldur fyrirlestur um japanska
hönnun.
Í DAG KL.18:
SÆNSK JÓNSMESSUHÁTÍÐ
Í DAG KL. 15.00. DANSAÐ Í KRINGUM MAÍSSTÖNGINA VIÐ
HARMÓNÍKUUNDIRLEIK – LEIKIR OG SÖNGUR.
HVETJUM GESTI TIL AÐ KOMA MEÐ NESTI TIL AÐ SNÆÐA
VIÐ NÝJA GRÓÐURHÚS NORRÆNA HÚSSINS
AÐGANGUR ÓKEYPIS
EFNAHAGSMÁL Viðræður eiga sér nú
stað á milli Seðlabanka Íslands og
Seðlabanka Evrópu í Lúxemborg
vegna skuldar Landsbankans upp á
einn milljarð evra, jafnvirði tæpra
180 milljarða íslenskra króna.
Skuldin, sem kallast Avens, er
tilkomin vegna endurhverfra við-
skipta Landsbankans í Lúxemborg
við Evrópska seðlabankann um
mitt síðasta ár.
Veð á bak við skuldina eru íslensk
íbúðabréf og flokkast því til krónu-
eigna erlendra aðila hér. Ekki ligg-
ur fyrir upphæð vaxtagreiðslna
vegna skuldarinnar við Evrópska
seðlabankann. En vaxtagreiðslur
vegna krónueigna erlendra aðila
hér eru meðal helstu ástæðna fyrir
veikingu krónunnar upp á síðkast-
ið.
Þetta er ekki eina skuld Lands-
bankans við Evrópska seðlabank-
ann.
Hin skuldin hljóðar upp á 830
milljónir evra, jafnvirði 140 millj-
arða króna. Skuldin, sem nefnist
Betula, er frá byrjun síðasta árs.
Hún er sömuleiðis tilkomin vegna
endurhverfra viðskipta Lands-
bankans við þann evrópska þegar
harðna fór á dalnum á alþjóðlegum
lánsfjármörkuðum.
Veð á bak við skuldina eru safn
úrvalseigna Landsbankans í Bret-
landi og hlutabréf í evrópskum
fjármálafyrirtækjum.
Lánapakkinn fékk hæstu ein-
kunn hjá alþjóðlega matsfyrirtæk-
inu Fitch Ratings á sínum tíma en
var færður niður um tólf flokka
eftir að skilanefnd Landsbank-
ans tók lyklavöldin í bankanum í
október í fyrra.
Viðmælendur Fréttablaðsins
segja erfitt að geta sér til um hvað
sé orðið eign Evrópska seðlabank-
ans í Lúxemborg og hvað tilheyri
enn eignasafni Landsbankans
vegna óvissunnar um afdrif veð-
anna.
Glitnir í Lúxemborg skuldaði
Evrópska seðlabankanum á annan
milljarð evra vegna endurhverfra
viðskipta eftir bankahrunið í
haust. Samningar náðust um
greiðslu skuldarinnar í mars og
fengu lánar drottnar Glitnis sitt að
fullu, að sögn Árna Tómas sonar.
Samningarnir munu hafa tekist
vel og munu aðrar skilanefndir
stefna á að ná svipuðum samning-
um við Evrópska seðlabankann,
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins.
jonab@markadurinn.is
Skuldirnar veikja
gengi krónunnar
Viðræður standa yfir um 180 milljarða króna skuld Landsbankans við Evrópska
seðlabankann. Veð á bak við skuldina eru í íbúðabréfum og flokkast því til
krónueignar útlendinga hér á landi. Önnur skuld nemur 140 milljörðum króna.
EITT ÚTIBÚA LANDSBANKANS Landsbankinn skuldar Evrópska seðlabankanum í það minnsta 1,8 milljarða evra, jafnvirði rúmra
300 milljarða íslenskra króna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Auglýsingasími
– Mest lesið