Fréttablaðið - 20.06.2009, Síða 12
12 20. júní 2009 LAUGARDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 31 Velta: 48 milljónir króna
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
266 +0,25% 740 +0,21%
MESTA HÆKKUN
BAKKAVÖR +2,50%
FØROYA BANKI +0,82%
MESTA LÆKKUN
ICELANDAIR GR. -5,00%
ÖSSUR -1,34%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,20 +0,00% ... Atlantic
Airways 164,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 485,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,23 +2,50% ... Eik Banki 89,00 +0,00 ... Eimskipafélagið
0,70 +0,00% ... Føroya Banki 122,50 +0,82% ... Icelandair Group
4,75 -5,00% ... Marel Food Systems 53,40 +0,00% ... Össur 110,50
-1,34%
Landsbankinn hefur gert samninga
við alþjóðlega banka um greiðslu-
miðlun í erlendri mynt. Frá því í
haust hefur erlend greiðslumiðl-
un að mestu farið fram í gegnum
Seðlabanka Íslands.
„Nú liggur fyrir samstarfs-
samningur við Citibank um opnun
reikninga í öllum helstu viðskipta-
myntum bankans,“ segir í tilkynn-
ingu Landsbankans.
Landsbankinn hefur jafnframt
opnað reikning í kanadískum
dölum hjá Royal Bank of Canada
í Kanada, sænskum krónum hjá
SEB í Svíþjóð, dönskum krónum
hjá Jyske Bank í Danmörku og
norskum krónum hjá DnB Nor í
Noregi. - óká
Hafa samið við
erlenda banka
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
63
11
0
5/
09
• Allt dreifikerfi rafmagnsveitu er neðanjarðar og er því ekki sjónmengun eins og víða erlendis. www.or.is
Jónsmessu-
ganga
á Hengilinn
Sunnudaginn 21. júní verður farin göngu-
ferð upp á Hengil. Gengið verður upp
Sleggjubeinsskarð og upp á Vörðuskeggja
sem er 805 metra hár.
Þaðan niður í Innstadal og
niður Sleggjubeinsskarðið.
Gangan tekur um fimm
klukkustundir og er frekar
erfið, að jafnaði um brattar fjallshlíðar. Nauðsynlegur búnaður: góðir
gönguskór, góður hlífðarfatnaður og nesti. Mæting í Hellisheiðar-
virkjun við Kolviðarhól klukkan 20:00. Þátttaka er ókeypis og allir
velkomnir. Leiðsögumaður er Almar Sigurðsson, kynningarfulltrúi
Hellisheiðarvirkjunar. Ef veður verður tvísýnt verður gengin auðveldari leið.
Njóttu góðrar máltíðar
með vinum og vanda-
mönnum með SS grill-
kjöti.
Ljúffengur krydd-
lögurinn dregur fram
það besta í kjötinu og
vel grillað kjöt laðar
fram brosið á fólkinu
þínu.
Grillkjötið frá SS –
fyrir sérstakar
stundir.
Í góðum
félagsskap
www.ss.is
Air Atlanta Icelandic og
norska flugfélagið Sundt
Air hefja samstarf um
fraktflug frá Noregi með
júmbóþotu. Samdráttur á
fraktflugsmarkaði verður
til þess að leita þarf á ný
mið, segir forstjóri Air
Atlanta. Félögin fara saman
í verkefnið undir heitinu
Sundt Atlanta Skybridge.
Air Atlanta Icelandic og norska
einkaþotuleigan Sundt Air hafa
hafið samstarf undir heitinu
„Sundt Atlanta Skybridge“.
Tilgangur samstarfsins er sagð-
ur vera að kanna möguleika á
markaðssetningu fraktflugs til
fjarlægra landa með varning frá
Skandinavíu. Fyrstu skref sam-
starfsins voru tekin í gær þegar
tekin var í notkun Boeing 747-200F
risaþota sem nota á í flutninginn.
Um er að ræða þriggja mánaða til-
raunaverkefni, hefur norski frétta-
vefurinn e24.no eftir Tor Bratli,
forstjóra Sundt Air. Enn hafa vél-
inni ekki verið tryggð verkefni, en
félagið hefur þó þegar fengið fyr-
irspurnir. Þá hefur verðskrá ekki
verið búin til enn. „Við sitjum við
að reikna út verð, en við fengum
fyrirspurn frá Rauða krossinum
um flutninga til Srí Lanka. Þar
reiknast okkur til að verðmiðinn sé
300.000 dalir [rúmar 38 milljónir
króna] fram og til baka,“ segir
Bratli.
Hannes Hilmarsson, forstjóri
Air Atlanta, segir aðstæður á
markaði hafa ráðið því að leitað var
þessa samstarfs við norska félag-
ið, en vegna efnahagssamdráttar
hefur á heimsvísu orðið 25 til 30
prósenta sam-
dráttur í frakt-
flugi.
„Við vorum
með vél sem var
að losna af samn-
ingi í Mið-Austur-
löndum og hún
endaði sitt flug í
Evrópu. Frekar
en að láta hana
standa fórum við
með hana til Oslóar og í samstarf
við þetta norska félag,“ segir hann.
Fyrsta kastið er gert ráð fyrir að
leigja vélina í stök verkefni, segir
Hannes, en jafnframt sé verið að
kanna frekari tækifæri á markaði
með Sunt Air. „Við horfum til þess
hvort aðstæður leyfi að hefja áætl-
unarflug með vörur út úr þessum
markaði. Við erum svona að hugsa
dálítið „út fyrir boxið“ með að finna
þessari vél verkefni sem annars
hefði staðið aðgerðalaus.“
Helst segir Hannes horft til
tækifæra í að flytja lax og iðnaðar-
varning til Bandaríkjanna. „En
þetta er dæmi sem þarf að skoða
vandlega,“ segir hann. Ekki verði
farið út í áætlunarferðir með frakt
án þess að það dæmi hafi verið
reiknað til enda og vélin nýtist
báðar leiðir.
Í viðtali e24.no við forstjóra
Sundt Air kemur jafnframt fram
að forsvarsmenn félagsins séu í
góðu sambandi við framleiðendur
fiskmetis í Noregi og hafi þegar
hafið viðræður við framleiðendur
víðar á Norðurlöndum.
Sundt Air er í eigu fjölskyldu
milljarðamæringsins Pette C.
G. Sundt og nokkuð gróið á sínu
sviði í umsýslu flugvéla og leigu á
einkaþotum. Félagið er sagt skuld-
lítið og í góðri stöðu til að kanna
ný tækifæri á markaði með Air
Atlanta.
olikr@frettabladid.is
HANNES
HILMARSSON
FLUGVÉL AIR ATLANTA Risaþota eins og þessi hér er nú til taks á Gardemoen-flugvelli
í Osló í Noregi undir merkjum Sundt Atlanta Skybridge tilbúin í til að flytja varning
til fjarlægra landa. Vélin hefur vakið nokkra athygli enda fátítt að jafnstórar vélar hafi
aðsetur eða fljúgi þaðan.
Leita nýrra tæki-
færa í samdrætti
Allgóð sátt hefur náðst um frum-
varp um eignaumsýslufélag ríkis-
ins í efnahags- og skattanefnd.
Helst er deilt um hvernig stjórn
félagsins skuli skipuð. Annarri
umræðu um frumvarpið lauk á
þingi í gær.
Frumvarpið hefur tekið nokkr-
um breytingum og félagið sem
stofna á til færst í áttina að því að
verða „ráðgjafar og samræmingar-
félag,“ svo notuð séu orð Péturs
Blöndals, þingmanns Sjálfstæðis-
flokks í umræðum þingsins í gær.
Helgi Hjörvar, formaður efna-
hags- og skattanefndar, kveðst
mjög sáttur við hvernig til hafi
tekist við að skapa sátt um frum-
varpið, en málið vakti harðar
deilur og viðbrögð þegar fyrst var
við því hreyft að ríkið stofnaði sér-
stakt félag til að fara með eignar-
hald á „þjóðhagslega mikilvægum“
fyrirtækjum. Í umræðum á þingi
kom fram að í þingnefndinni væru
menn orðnir
nokkuð sam-
stíga um málið
og urðu margir
til að hrósa bæði
samstarfinu og
verkstjórninni í
nefndinni.
Helst er deilt
u m hver n ig
félaginu skuli
skipuð stjórn, en fulltrúar Fram-
sóknarflokksins í efnahags- og
skattanefnd hafa gert athugasemd-
ir við að ráðherra sé þar einráður.
Fulltrúi Borgaraflokksins gerði
einnig fyrirvara vegna þessa.
Helgi segir að farið verði yfir
þetta mál í lokayfirferð nefndar-
innar áður en frumvarpið fer aftur
fyrir þingið og verður að lögum.
„Ég býst við að við gefum okkur
næstu viku til að ljúka umfjöllun-
inni endanlega,“ segir hann.
Mats Josefsson, sænskur
ráðgjafi forsætisráðuneytisins um
endurreisn bankakerfisins, hreyfði
fyrstur við hugmyndinni um eigna-
umsýslufélagið, en slík skipan gaf
góða raun í bankakreppu í Svíþjóð.
Helgi segist hafa látið þýða frum-
varpsdrögin og bera þau undir
Mats sem sé sáttur við þau eins og
þau séu. - óká
HELGI HJÖRVAR
VERÐMÆTI SÓTT Í HAFIÐ Á Alþingi bíður
lokaafgreiðslu frumvarp um endurskipu-
lagningu rekstrarhæfra atvinnufyrir-
tækja. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Mats Josefsson, ráðgjafi ríkisstjórnarinnar, gefur breyttu frumvarpi blessun sína:
Sátt að nást um eignarhaldsfélagið
Stjórnendur svartsýnir
„Stjórnendur stærstu fyrirtækja
landsins eru vægast sagt svartsýnir
á horfurnar í hagkerfinu en 55,2
prósent þeirra telja að aðstæður í
efnahagslífinu verði verri eftir sex
mánuði en þær eru í dag,“ segir í
umfjöllun hagfræðideildar Landsbank-
ans, en í daglegri Hagsjá bankans var
í gær vitnað í niðurstöður könnunar
Capacent Gallup sem framkvæmd var
dagana 19. til 29. maí síðastliðinn. Í
könnuninni kom fram að ekki einn
einasti maður taldi aðstæður vera góðar
í efnahagslífinu, en það þarf ef til vill ekki
að koma á óvart. Og þá ekki heldur að
97 prósent aðspurðra töldu þær vera
slæmar. Hagkerfið er enda „í miðri
stærstu gjaldeyris- og bankakreppu
sem landið hefur þurft að takast á
við,“ segir í Hagsjánni.
Fólksfækkun í pípunum
Þá kemur fram að um níutíu prósent stjórnenda
stærstu fyrirtækja landsins telja sig hafa nægt
framboð af starfsfólki um þessar mundir.
Ógnvænlegra er að tæplega þriðjung-
ur þeirra telur að fækka muni í hópi
starfsmanna sinna á næstu sex mán-
uðum. „Endurspeglar þetta slakann
sem er á vinnumarkaði og bendir til
þess að undirliggjandi atvinnuleysi
geti aukist enn á næstunni,“ segir í
Hagsjá Landsbankans. Eins er vitnað
til þess að 37 prósent stjórnenda
telji að hér verði verðhjöðnun næstu
tólf mánuði. Þeir spá verðbólgu eftir tólf
mánuði í -0,1 prósent sem er talsvert minni
verðhjöðnun en þeir gerðu ráð fyrir í mars.
„Þetta gæti skýrst af lækkun krónunnar
á tímabilinu en verðbólgan hefur haldist
hærri af þeim sökum,“ segir í riti hag-
fræðideildar Landsbankans.
Peningaskápurinn ...