Fréttablaðið - 20.06.2009, Side 16

Fréttablaðið - 20.06.2009, Side 16
16 20. júní 2009 LAUGARDAGUR greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Flestir eru á einu máli um að endurreisn efnahagslífsins er möguleg. Hitt er er alveg sjálfstæð spurning hvort þannig verði haldið á málum að það takist. Fram hjá því verður ekki horft að ýmis veikleikamerki blasa við. Viðfangsefnið er að tryggja stöðug leika í ríkisfjármálum, á vinnumarkaðnum, í peningamálum og í samskiptum við aðrar þjóðir. Á öllum þessum sviðum þurfa hlut- irnir að ganga hratt og örugglega fyrir sig. Til þess að svo megi verða þarf pólitíska festu og stöðug leika. Er þetta að gerast? Athyglisvert er að í ýmsum stórum málum hefur verið óvissa um hvort allir þingmenn ríkisstjórn- arinnar styddu þau mál sem hún er með á prjónun- um. Þetta á við aðildar umsókn að Evrópusam- b a n d i nu o g framtíðarstefnu í peningamálum, Icesave-samn- ingana og svipt- ingu veiðiheim- ilda. Þegar fyrstu skattahækkanir ríkis stjórnarinnar voru afgreiddar á dögunum var sama uppi á teningnum. Atfylgi sumra þingmanna stjórnarflokk- anna kom ekki í ljós fyrr en við þriðju og síðustu umræðu málsins. Ofan á þetta kemur að heilbrigðís- ráðherrann talar áfram gegn sam- starfinu við Alþjóðagjaldeyris- sjóðinn eins og þegar hann var í stjórnar andstöðu. Látið hefur verið í veðri vaka að þetta sé merki um ný lýðræð- isleg vinnubrögð. Svo er þó ekki. Í reynd er hér um að ræða pólitískan veikleika. Þegar ríkisstjórn lendir í þeirri stöðu að þurfa stöðugt að berja í innbyrðis bresti er einfald- lega ekki næg orka í önnur við- fangsefni. Hættan er líka sú að þessi staða dragi smám saman kjarkinn úr ríkisstjórninni til að taka á viðfangsefnunum af því afli sem þarf. Við venjulegar aðstæður getur pólitískur veikleiki af þessu tagi gengið í einhver ár án stórs skaða. Eins og nú háttar til er hann hins vegar hættumerki. Það gæti þýtt að endurreisnin dragist á langinn. Meðan gjaldeyrishöftin eru við lýði verður engin endurreisn. Meðan bankarnir mara í hálfu kafi verður engin endur- reisn. Meðan gula spjald Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins er á lofti og við fáum ekki umsamin lán afgreidd verður engin endurreisn. Spurn- ingin er: Leysa þau mál sem nú eru á döfinni um þessa bóndabeygju? Viðræður aðila vinnumarkaðar- ins við ríkisstjórnina eru ljós punktur í stöðunni. Stöðugleiki á vinnumarkaði er ein af helstu for- sendum endurreisnarinnar. Greini- legur vilji er til að gera stöðug- leika á þessu sviði að veruleika. Að einhverju leyti á að kaupa þann frið með aukinni verðbólgu. Það getur verið réttlætanlegt ef annað helst í hendur. Þá er það spurningin um ríkis- fjármálin. Þau eru stærsti höfuð- verkurinn. Á alla hefðbundna mælikvarða eru þær ákvarðanir sem ríkisstjórnin hefur nú þegar tekið á þessu sviði umfangsmiklar. En um margt eru þær ekki sann- færandi þegar horft er á þá sér- stöku stöðu sem nú ríkir. Með hæfilegri einföldun má segja að ráðagerðir ríkisstjórnar- innar sýnist vera of hefðbundnar við algjörlega óhefðbundnar aðstæður. Kjarni málsins felst í þeirri staðreynd að skattahækk- anir hafa of mikið vægi en endur- skipulagning ríkiskerfisins of lítið. Framtíðaráformin eru enn að stórum hluta til á huldu. En að því leyti sem þau hafa komið fram er þar ekki að finna vísbendingar um þá róttæku endurskipulagningu opinberra umsvifa sem nauðsyn- leg er til að skapa vissu um að ætl- unarverkið muni takast þegar upp verður staðið. Ósanngjarnt væri að segja að ríkisstjórnin hefði setið með hendur í skauti. Hún hefur hins vegar ekki enn skapað trú á að áform hennar í ríkisfjármálum dugi. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki SPOTTIÐ K osningaréttur var baráttumál íslenskra kvenna í upphafi síðustu aldar. Margir áfangasigrar hafa unnist síðan í bar- áttunni fyrir samfélagi þar sem fullt jafnrétti ríkir milli kvenna og karla, og enn er barist. Á þessari vegferð hafa margar og merkar konur lagt sitt af mörkum en stærstu skrefin í átt til jafnréttis unnust áreiðanlega á áttunda áratug síðustu aldar og fram á þann níunda, fyrir bein og óbein áhrif þeirrar hreyfingar kvenna sem kennd var við rauða sokka. Nýfengnir áfangasigrar eru einnig talsvert merkir; kona í stóli forsætisráðherra í fyrsta sinn á Íslandi og hærra hlutfall kvenna á Alþingi en nokkru sinni fyrr. Því miður skiluðu síðustu þingkosningar þó ekki áframhaldi á því metnaðarfulla verkefni vinstristjórnarinnar að hafa kynjahlutfall ráðherra jafnt. Nú þegar níutíu og fjögur ár eru síðan lög um kosningarétt kvenna voru undirrituð fer nokkuð nærri að konur hafi öðlast jafnrétti á við karla samkvæmt laganna hljóðan. Að auki eru í landinu sérstök jafnréttislög sem eiga að tryggja að ekki sé brotið á rétti kvenna vegna kynferðis þeirra. Því fer þó fjarri að björninn sé unninn. Enn er alllangur vegur að jafnrétti kynjanna og á stundum virðist það í órafjarlægð. Það sem er óunnið er aukheldur allnokkuð erfiðara að festa á hönd en lagaumhverfið, því nú er fengist við hefðir, viðhorf, traust, gildismat og virðingu, svo eitthvað sé nefnt. Meðal þess sem fest er í lög, og hefur verið um áratuga skeið, er að ekki megi mismuna fólki í launum eftir kynferði. Tölur um launamun kynjanna segja þó allt aðra sögu, sögu sem snýst um viðhorf, ekki bara þeirra sem launin greiða, heldur líka þeirra sem við þeim taka. Hlutfall kvenna á valdapóstum samfélagsins, utan Alþingis, er ömurlegt, þrátt fyrir að konur gegni hér vissulega mikilvægum stjórn- unarstörfum svo sem í háskólum og á stærsta sjúkrahúsi landsins. Á þessu sviði er við öflugt tregðulögmál að etja. Á toppi samfélagsins gilda leikreglur sem mótaðar eru af körlum og svo virðist sem konur nái ekki inn í þann innsta hring nema að hafa náð tökum á þeim leikreglum. Þetta verður að breytast. Í jafnréttissamfélagi mótast leikreglur af viðhorfum beggja kynja og slíkt samfélag er áreiðanlega bæði frjórra og skilvirkara en það sem við búum nú við, auk þess að vera að líkindum friðvænlegra. Dr. Joyce Neu, hópstjóri viðbragðshóps Sameinuðu þjóðanna og Norska flóttamannasjóðsins á sviði sáttaumleitana, sem hér er stödd á ráðstefnu þar sem fjallað er um aukna þátttöku kvenna í ákvarðanatöku og friðarferlum, var í viðtali í Fréttablaðinu í gær. Neu telur afar mikilvægt að konum fjölgi í friðarviðræðum, bæði sem sáttasemjurum og sem samningamönnum deiluaðila. Hún bendir á að almenningur, og þar með konur og börn, séu áttatíu til níutíu prósent fórnarlamba í vopnuðum átökum en að raddir þessa hóps heyrist aldrei við samningaborðið heldur eingöngu raddir hinna stríðandi fylkinga. Þetta er talandi dæmi um mikilvægi þess að sjónarmið beggja kynja séu uppi á borði alls staðar í samfélaginu og alltaf. Baráttunni má ekki linna fyrr en því takmarki er náð. Eilífðarbaráttan fyrir jafnrétti kynja: Níutíu og fjórum árum síðar STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR ÞORSTEINN PÁLSSON AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Pólitísk lausung er veikleikamerki Samskipti Íslands við umheiminn eru einn af hornsteinum stöðugleika og endurreisnar. Samning- ana við Breta og Hollendinga um Icesave-reikninga Landsbankans verður að skoða í því ljósi. Að því leyti eru þeir nauðungarsamn- ingar að bankastjórar og banka- ráð Landsbankans komu Íslandi í þá stöðu að fjármálaleg samskipti landsins hafa lotið sömu lögmál- um og gilda um hryðjuverkamenn. Stjórnvöld verða að koma landinu úr þeim fjötrum. Fyrri ríkisstjórn kaus að fara samningaleiðina að því marki. Það var raunsætt mat. Alþingi sam- þykkti þá stefnumörkun. Núver- andi ríkisstjórn valdi að fylgja henni þó að aðeins annar stjórnar- flokkanna bæri ábyrgð á upphaf- legri ákvörðun þar um. Samning- sniðurstaðan er hins vegar alfarið á ábyrgð núverandi ríkisstjórnar- flokka. Aðrir kostir voru ófæruleiðir. Síðasti möguleiki til að reyna við þær ófærur var við myndun núverandi ríkisstjórnar í lok jan- úar. Enginn þeirra þriggja flokka sem tóku ábyrgð á þeirri stjórnar- myndun gerði þá kröfu um breytta stefnu. Réttilega má deila um niður- stöðu samningsins. Það varð fjár- málaráðherranum til pólitísks lífs að draga til baka fullyrðingu um að hún væri glæsileg. En það væri óðs manns æði að fella samningana á Alþingi eins og málum er komið. Ríkisstjórnin ber alla ábyrgð á að koma þeim í gegn. Þeir þingmenn og ráðherrar stjórnarflokkanna sem lýst hafa efasemdum eða andstöðu verða einfaldlega að skipta um skoðun. Í sjálfu sér er engin hætta á öðru. Völdin eru sætari en svo. Sinna- skiptin verða skýrð með því að nýjar upplýsingar hafi komið fram við meðferð málsins. Það hefur nú á vorþinginu orðið að eins konar löggiltri sinnaskiptaástæðu. Skortur á markvissri kerfisbreytingu Valkosturinn við samninga er ófæruleið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.