Fréttablaðið - 20.06.2009, Qupperneq 64
44 20. júní 2009 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
Bandarísk/kínverski hönnuðurinn Alexander Wang vakti mikla athygli
fyrir kvenlega og kynþokkafulla línu sína fyrir haust og vetur 2009. Hann
notaði mikið svart og leður og virtist innblásinn af „eighties“-tísku þar
sem brjóstahaldarar voru til sýnis. Kjólar voru þröngir með rennilásum
og oftar en ekki glitti í bert bak á fyrirsætunum. Svipaða kjóla má finna í
verslunum eins og Top Shop og Warehouse um þessar mundir. - amb
ALEXANDER WANG SÝNIR KYNÞOKKAFULLA LÍNU:
Undirföt sem sjást
SEXÍ Þröngur svartur kjóll með renni-
lás í bakið.
SAMFESTINGUR
Kynþokkafullt
dress með
brjósta-„detail“.
Dásamlegt likamsskrúbb frá Origins
sem fjarlægir dauðar húðfrumur og
frískar sólaða húð.
Kórallitað naglalakk
fyrir sumarið sem
minnir á stjörnur
sjötta áratugarins.
Nýja sumarilminn frá
Issey Miyake á karl-
manninn í lífi okkar.
Nammi namm.
BOLERO
Spænsk
nautabana-
áhrif í
þessum háu
buxum og
stutta jakka.
GÖTÓTT
Hér er hvítur kjóll
yfir svörtu fóðri.
HVÍTT Sexí
kjóll í anda
tíunda ára-
tugarins.
PÖNKAÐ Leggings alsettar götum
við þröngan svartan topp.
Vefsíðan vogue.co.uk er með skemmtilega nýjung
þar sem valdar eru best klæddu stjörnurnar þá
vikuna. Skemmtileg aðferð til að veita manni
innblástur við fatavalið. Í þessari viku eru það
fyrirsæturnar Anouck Lepere og Lily Cole sem slá
í gegn, ásamt leikkonunum Kate Bosworth og
Jennifer Aniston.
> VOGUE VELUR ÞÆR BEST KLÆDDU
FLOTT BAK Ein-
staklega falleg
hönnun þar sem
bakið fær að
njóta sín.
Í vikunni var undarleg frétt um stúlku í útlöndum sem hafði sofnað á
tattústofu og fengið fimmtíu og fimm en ekki þrjár stjörnur í andlitið.
Aumingja stelpan var miður sín en sem betur fer endaði þetta farsæl-
lega þar sem stóri vondi tattúgaurinn bauðst til að borga fyrir leiser-
aðgerð til að fjarlægja öll herlegheitin. Ég veit eiginlega ekki alveg hvar
ég stend hvað tattú varðar. Í mínum nánasta hring eru margir með mjög
flott tattú, þau spanna allan skalann frá alls kyns
dularfullum alkemískum myndum til lítils fyndins
tákns sem fyrirfinnst á lyklaborði, og svo er stór og
hress bleikur pardus líka í miklu uppáhaldi. Tattú er
líka oft svona hlutur sem foreldrum finnst asnalegur
og tengja við einhvers konar uppreisnargirni, rokk
og almenna ógæfu. Ár eftir ár hugsa ég, jæja, nú
fæ ég mér lítið tattú á úlniðinn en í hvert skipti sem
ég er búin að ákveða mig guggna ég. Ég byrja að
hugsa um hvernig tattúið mun líta út á mér nakinni
þegar ég er áttræð (eins og öllum væri ekki algjör-
lega sama þá) eða hvort ég skipti um skoðun á hvaða
mynd eigi eiginlega við mig. Tattú geta líka verið
eins skelfileg og þau geta verið flott. Það er nokkuð
líklegt að öll þessi fiðrilda- og træbaltattú sem fyrir-
finnast fyrir ofan rassinn á mjóbakinu á klassapíun-
um sem fara út á djammið í lágum gallabuxum og
hlýrabol virki frekar halló eftir tíu ár, líka fyrir þær
sjálfar. Skilst að slík tattú nefnist „tramp stamp“
í útlöndum án þess að fara nánar út í þá sálma. Einu sinni skrifaði ég
pistil um að træbaltattú væru hallærisleg og uppskar mikla reiði les-
enda. Býst því við að margir hafi hugsað, nei, sjitt maður, Fréttablaðið
dæmdi þau á niðurleið og nú þarf ég að fara í leiseraðgerð. (Nei djók).
En án gríns þá get ég alveg vel skilið af hverju fólk fær sér tattú. Það er
að segja, ef fólk fær sér tattú til þess að merkja ákveðinn tímapunkt í
lífinu, nú eða fá sér eitthvað sérkenni. Það er að minnsta kosti öruggt að
fólk ætti aldrei að fá sér tattú af því að það ákveðna tákn er í tísku því
að tískan er jú andskoti hverful.
Kúl tattú gegn „tramp stamps“
TATTÚ EÐA ATSJÚ?
Það er að minnsta
kosti á hreinu að ég
mun aldrei fá mér
Sigur Rósar tattú.
Verð kr. 265.000.-
Hrein fjárfesting ehf
Dalbraut 3 105 reykjavík • rainbow@rainbow.is
Sími verslun 567 7773 . kvöld og helgar 893 6337
www.rainbow.is
Rainbow
Bjóðum nokkrar Rainbow á 186,000
Eða gömul Rainbow upp í nýja tilboð 155,000
Eigum einnig notaðar yfi rfarnar rainbow
með ábyrgð verð 80.000 tilboð 58.000
meðan byrgðir endast.
OKKUR
LANGAR Í
…