Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.06.2009, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 25.06.2009, Qupperneq 21
FIMMTUDAGUR 25. júní 2009 21 UMRÆÐAN Vigdís Hauksdóttir skrifar um stöðu lífeyrissjóðanna Stjórnvöld eru í afneitun um stöðu lífeyrissjóðanna í land- inu. Er ég spurði fjármálaráðherra í utandagskrárumræðu á Alþingi út í stöðu lífeyrissjóðanna var greini- legt hvaðan hann hafði sínar upp- lýsingar. Beint frá lífeyrissjóðun- um sjálfum og samtökum þeirra. Steingrímur J. sannaði þarna að hann er vinnuþjarkur auðvalds- ins og spillingaraflanna – hann er ekki fjármálaráðherra allra lands- manna enda ráðherra í skuggarík- isstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ég innti hann eftir því hvort sjóð- urinn hafi farið fram á við íslensk stjórnvöld að lífeyrissjóðir lands- manna yrðu þjóðnýttir, en það er vinnuregla hjá sjóðnum þegar hann kemur ríkjum til aðstoðar, þar sem á annað borð er einhver vísir af lífeyrissjóðum. Ráðherr- ann taldi það af og frá, af og frá, honum bauð meira að segja „svo í grun, að Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn meti einmitt styrk íslenska líf- eyriskerfisins og sérstak- lega vænt tekjustreymi ríkis- og sveitarfélaga með vaxandi útgreiðsl- um séreignarsparnaðar á komandi árum sem eina okkar styrkustu stoð til að ráða við efnahagsáfallið og skuldirnar sem nú lenda á ríkissjóði og sveitarfé- lögum,“ Er Steingrímur skyggn? Auðvitað hafa líf- eyrissjóðirnir komið til tals á fund- um landsstjórans og ráðherra hans. Auðvitað sér Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn að nútíðar- og framtíðartekj- ur eru stöðugar og innstreymi í líf- eyrissjóðina gott og því upplagt að líta ágirndaraugum til vænts tekju- streymis með vaxandi útgreiðslum séreignarsparnaðar með tilheyrandi skatttekjum sem renna í erlent skulda- fen ríkisins. Þessi sýn Alþjóðagjald- eyrissjóðsins breytir því ekki að staða lífeyrissjóð- anna er slæm og jafnvel áttaði sjóðurinn sig á að búið var að útrásarnýta líf- eyrissjóðina í þágu þeirra sem hreinsuðu bankana. Gríp ég hér í viðtal við Björgólf Thor Björgólfsson sem Kompás átti við hann 27. október 2008. Þar eru þeir Kristinn Hrafnsson að ræða hugsanlega fyrirgreiðslu að upphæð 500 milljónir evra, eða 90 milljarða íslenskra króna á geng- inu 180, til Landsbankans til að koma Icesave úr landi. Kristinn spyr hann hvaða tryggingar að upphæð 2.500 milljónir evra Lands- bankamenn ætluðu að reiða fram ef Seðlabankinn hefði lánað þeim. Björgólfur segir: „Ríkisskuldabréf, bæði íslensk, þýsk og erlend. Þetta voru sterkustu tryggingar sem um var að ræða. Þarna var um að ræða greiðslur sem lífeyrissjóðir Íslands áttu að láta af hendi upp á 500 millj- ónir evrur, sem að sko launþegar landsins voru ábyrgir að greiða, þar var ekki hægt að hugsa sér það betra.“ Þar höfum við það kæru landsmenn – launþegar voru og eru veðsettir lóðrétt og lárétt án þess að hafa hugmynd um það. Nú hefur verið boðað að um miðj- an júlí verði nýju bankarnir stofn- aðir. Krafa almennings er að upp- gjöri lífeyrissjóðanna verði lokið á sama tíma. Málefni bankanna og lífeyrissjóðanna eru svo sam- tvinnuð að ófært er að ljúka ekki uppgjöri beggja á sama tíma. Ef það verður ekki gert þá er augljóst í hvað stefnir, nefnilega þá stað- reynd að lífeyrissjóðirnir afskrifi galnar áhættufjárfestingar sínar á mörgum árum til að breiða yfir gríðarlegt tjón sem sjóðsfélagar hafa orðið fyrir. Lífeyrissjóðirnir geta einfaldlega ekki komið að upp- byggingarstarfi hér á landi fyrr en fullnaðaruppgjöri þeirra er lokið. Höfundur er lögfræðingur og þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. „... sko, launþegar landsins voru ábyrgir!“ VIGDÍS HAUKSDÓTTIR UMRÆÐAN Magnús Orri Schram skrifar um umhverfis- og atvinnu- mál Verndun umhverfisins á að vera helsta baráttumál atvinnulífs- ins á Íslandi. Sóknarfæri okkar í atvinnumálum liggja flest á þeim sviðum þar sem ímynd landsins og náttúra gegn- ir lykilhlutverki í verðmæta- sköpuninni. Þar mætti nefna ferðaþjónustu eða útflutning á sjávarafurðum. Umhverfismál eru því atvinnu- mál í hinu nýja Íslandi sem við erum að móta. Slík nálgun gerir hins vegar kröfur til þeirra sem vilja frekar horfa til verndunar umhverfis en virkjana eða annarra stórframkvæmda. Umhverfissinn- ar verða að tala tungumáli atvinnu- lífsins og mæta virkjunarsinnum á þeirra leikvelli en rætt er um störf, afleidd störf eða arðsemi. Ef unn- endur náttúrunnar vilja hafa betur í orðræðunni verða þeir að hætta að tala um tilfinningar eða varpa upp mynd af fallegu landslagi og segja fólki að „finna sér eitthvað að gera“. Nú þurfa „mussuklæddir íbúar í 101“ (umhverfissinnar) að fara að tala um arðsemi og vísa þá til fjár- muna en ekki verndunar. Ráðuneyti umhverfismála hefur nú fengið frábært tæki til að taka forystu í þessum málum. Nýlega var kynnt viðamikil skýrsla sem leggur fram margvíslegar tillög- ur um hvernig hægt er að minnka mengun hér á landi og þær tillögur svo kostnaðargreindar. Kannað er semsagt í hvaða geirum (til dæmis fiskveiðum eða samgöngum) helst eigi að bera niður til að minnka mengun og hvað slíkar aðgerð- ir hafa í för með sér í tekjum og gjöldum. Skýrsla þessi er lykilplagg og í raun getur hún markað upphaf gríð- arlegrar sóknar á sviði umhverfis- mála. Vilji Ísland setja sér háleit markmið í verndun umhverfis- ins og skapa sér þannig sérstöðu erlendis, er hér komið fram plagg sem getur reynst grundvöllur sóknar á sviði umhverfis- og um leið atvinnumála. Nú er boltinn hjá ráðuneyti umhverfis. Nú bíðum við unnendur íslensks atvinnulífs spenntir eftir aðgerðaplani sem byggir á skýrslunni, sem nefna ætti „sóknarskýrslu“ í íslensku atvinnulífi. Höfundur er alþingismaður. Sóknar- skýrsla MAGNÚS ORRI SCHRAM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.