Fréttablaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 28
25. júní 2009 FIMMTUDAGUR4
„Fólk virðist nýta svæðið heima
hjá sér betur og spara frekar við
sig í ferðalögum og þess háttar,“
segir Einar Sveinsson, rekstrar-
stjóri sölu og þjónustu hjá Húsa-
smiðjunni. „Fólk virðist ekki
spara í húsgögnum, grillum og
öðru því sem það setur á pall-
inn.“
Einar segir að sala efnis í palla
hafi dregist mun minna saman
heldur en annars byggingarefn-
is en að stærð pallanna hafi þó
minnkað frá því sem verið hefur
undanfarin ár. „Núna sættir fólk
sig við að koma grillinu og hús-
gögnunum vel fyrir á pallinum.
Margir velta því fyrir sér hvað
þeir geti gert sjálfir og fá hjálp
við það erfiðasta.“
Aðspurður segir Einar að flest-
ir smíði palla snemmsumars.
„Smíðin byrjar strax eftir páska
og er mest í maí og júní og stend-
ur alveg út september,“ upplýsir
hann og bætir við að flestir velji
gagnvarða furu. „Þeir sem áður
keyptu harðvið kaupa lerki núna
sem er kannski 20 til 25 prósent
dýrara heldur en furan. Lerkið er
náttúrulega betra og sterkara efni
heldur en furan og harðviður er
lúxusinn.“
Einar minnir á að mikilvægt
sé að bera á bæði nýja palla og
gamla. Þessu er Einar L. Ragn-
arsson, vörustjóri málningar og
múrs og samstarfsfélagi Einars
hjá Húsasmiðjunni, sammála.
„Viðurinn í pallinum kallar á við-
hald því stöðugt áreiti útfjólu-
blárra geisla sólar, veðurs og
vinda verður til þess að sólpallar
sem fá ekki reglulegt viðhald upp-
litast, springa og verpast. Sólpall-
ur sem fær reglulegt viðhald lítur
ekki aðeins betur út heldur endist
hann líka mun lengur.“
Einar L. segir að vatnspróf
sé auðveldasta leiðin til þess að
finna út hvort viðarverja þarf
pallinn. „Þetta er gert með því að
sprauta vatni á pallinn. Ef yfir-
borðið drekkur vatnið strax í sig
þarf að endurviðarverja pallinn.
Framkvæmið vatnsprófið á nokk-
urra mánaða fresti til að ganga úr
skugga um að pallurinn sé með
vatnsvörn.“
martaf@frettabladid.is
Ekkert sparað á pallinn
Íslendingar virðast ætla að eyða sumrinu á pallinum og eru margir í smíðahugleiðingum. Þótt stærð
palla hafi minnkað hefur sala timburs í palla ekki dregist jafn mikið saman og annars byggingarefnis.
FÍFLAR eru með stórkostlegri ókeypis skreytingum
um þessar mundir. Tínið og setjið í vasa, bolla, krukkur
og stillið upp á náttborðinu og úti í glugga.
Einar Sveinsson segir fólk nýta svæðið heima hjá sér betur og spara frekar við sig í ferðalögum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Afsláttur af málningarvörum
20%
Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.
úsgagnasendingar
Teg 2083
Teg 2106
Cubio 110 x52 x 42
Nýjar húsgagnasendingar
!
"#$%
&'( )* +
,-%,.,/,-%,.,0&
MATUR
Vatnspróf er auðveldasta leiðin til að
finna út hvort viðarverja þarf pallinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON