Fréttablaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 53
FIMMTUDAGUR 25. júní 2009 37 Bond-leikarinn Daniel Craig er að ná samningum við Morgan Creek-fram- leiðslufyrirtækið um að leika í hryllings- myndinni The Dreamhouse eða Drauma- húsið. Leikstjóri verður Jim Sheridan en handritið er eftir David Loucka. Myndin segir frá fjölskylduföður sem telur sig hafa fundið drauma- húsið handa fjölskyldu sinni. Allt fer hins vegar á versta veg þegar fyrrum eigendur hússins fara að ofsækja fjölskylduna. Craig er víst með nokkra menn á sínum snærum til að útvega honum sem fjölbreyttust hlutverk þannig að hann festist ekki um of við James Bond-rulluna sem hann hefur reyndar leikið með miklum glæsibrag. Þannig hefur hann samið um að leika á Broad- way í verki sem heitir A Steady Rain og hefur mikinn hug á því að leika í myndinni The Eagle of the Ninth sem er sögð gerast á tímum Rómaveldis. Daniel Craig leikur í hryllingsmynd Bandaríska táningsstjarnan Zac Efron ætlar sé ekki bara að vera frægur fyrir snoppufrítt andlit og hlutverk sitt í High School Musi- cal. Því vill hann venda kvæði sínu í kross og hefur samið um að leika í erótískum trylli. Þetta hefur vakið nokkra kátínu meðal erlendra kvikmyndablaðamanna sem líkja Efron við Gosa. Blaða- maður Empire segir að Disney sé skaparinn sem vilji halda honum heima við, í öruggu umhverfi þar sem hann malar gull á unglings- stjörnum. Þeir verði hins vegar á einhverjum tímapunkti að hleypa honum út í hinn vonda heim. Efron var lengi vel orðaður við endurgerðina á Footloose en ákvað að gefa það hlutverk frá sér, þótti það of líkt High School Musical. Ekki er komið nafn á þennan erót- íska trylli en handritshöfundurinn og framleiðandinn er Leslie Dixon. Dixon og Efron hafa reyndar unnið saman áður, við kvikmyndina Hairspray. Efron breytir til Í ALVARLEGRI HLUTVERK Efron vill nú reyna að losna undan sætabrauðs- ímyndinni og leikur stórt hlutverk í erótískum trylli. Í Skorradal hafa nokkrir starfsmenn Skógræktar ríkisins tekið sig til og gera nú tilraunir með að rækta grasker, tóbak og maís hér á landi. Orri Freyr Finnbogason og sam- starfsmenn hans hjá Skógrækt rík- isins stunda ýmis konar tilrauna- starfsemi þegar kemur að nytja- og matjurtarækt. Auk þess að rækta hefðbundið grænmeti, líkt og kart- öflur og gulrætur, hafa þeir meðal annars gert tilraunir til að rækta tóbak, baunir og maís. „Ég hef verið mikið á Spáni og komst þar í kynni við fólk sem hefur eiginlega sagt sig úr samfélaginu og stund- ar sjálfsþurftarbúskap í Pírenea- fjöllunum. Þau voru með sérstak- an sáðbanka sem ég fékk aðgang að og ég tók eitthvað af fræjum með mér heim. Mér finnst veður- og gróðurfar þarna í Píreneafjöll- unum ekki svo ólíkt því sem ger- ist hér á Íslandi þannig ég held að það sé ekki spurning að eitt- hvað af þessum fræjum eigi eftir að vaxa og dafna hér,“ segir Orri Freyr en hann telur að Íslendingar gætu með tíð og tíma orðið næst- um sjálfbær þjóð. „Mér þykir sam- félagið komið á undarlega braut þegar fólk þarf að vinna átta tíma á dag bara til þess að eiga fyrir mat og húsaskjóli. Þarna er fólk að horfa til aukinna lífsgæða í formi frítíma sem það getur eytt með fjölskyldu og vinum eða til að sinna áhugamálum. Mér fannst þetta mjög heillandi allt,“ segir Orri. Á ferðum sínum um Spán kynnt- ist Orri Freyr ýmsum kynlegum kvistum og bjó meðal annars hjá áttræðum, heyrnarlausum manni sem kenndi honum þá hættulegu iðju að veiða villisvín. „Hann kenndi mér meðal annars að búa til villisvínagildrur og hvernig hægt væri að finna þau með því að skoða börkinn á trjánum og rýna í spor- in sem þau skilja eftir sig. Villisvín eru mjög hættuleg dýr og maður þarf því að passa sig mjög vel við veiðarnar, en kjötið af þeim er algjört lostæti.“ Aðspurður segir Orri að honum hafi ekki þótt erfitt að laga sig að breyttum lifnaðar- háttum en að honum hafi þótt erfið- ast að vera án rennandi vatns. „Ég saknaði heita vatnsins og stundum gat orðið ansi kalt, en þetta venst eins og allt annað,“ segir Orri að lokum. sara@frettabladid.is Ræktar tóbak og grasker ORRI FREYR Telur að Íslendingar gætu með tímanum orðið sjálfbær þjóð. MasterCard Mundu ferðaávísunina! 20-50% AFSLÁTTUR AF VEIÐIVÖRUM Í ALLT SUMAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.