Fréttablaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 25.06.2009, Blaðsíða 46
30 25. júní 2009 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is ath. kl. 20. Arkitektarnir Sami Rintala, Dagur Eggertsson og Ryo Yamada kynna eigin verk með fyrirlestrum í Norræna húsinu á hátíð sem helguð er Japan. Þar á meðal forvitnilegt verk í vinnslu sem skírskotar til japanskra og norrænna bygging- arhefða og baðmenningar. > Ekki missa af BT Power trio og Palla Rósin- kranz á Rosenberg í kvöld kl 21.30. Páll Rosinkranz mun stíga á svið með Bjössa Thor. Palli kom fram sem blús- söngvari á Jazz og Blúshátíð Kópavogs í byrjun júní og sló rækilega í gegn. Norrænu menningarmála- ráðherrarnir hafa gert fimm ára samkomulag við Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn. Sam- komulagið er einn stærsti liðurinn í fjárlögum menn- ingarmálaráðherranna og mun styrkja Norðurlönd í alþjóðlegri samkeppni á sviði kvikmyndagerðar og framleiðslu sjónvarpsefnis. Sjónvarpsáhorfendur og kvik- myndaunnendur á Norðurlöndum geta glaðst yfir víðtækum pólit- ískum stuðningi við norræna kvik- mynda- og sjónvarpsþáttagerð. Á fundi sem haldinn var í Reykjavík undirrituðu norrænu menningar- málaráðherrarnir og fulltrúar norrænna kvikmyndastofnana og sjónvarpsstöðva á Norðurlöndum nýtt samkomulag við Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn. Samkomulagið gildir til loka árs 2014. Fjárhagsáætlun sjóðsins verður áfram sú sama. „Við getum glaðst yfir því að þrátt fyrir fjármálakreppu og nið- urskurð í framlögum til menning- armála þá hefur tekist að tryggja rekstur sjóðsins með fimm ára samkomulagi og árlegu fjárfram- lagi sem nemur u.þ.b. 70 milljón- um danskra króna. Við teljum það vera viðurkenningu á starfi sjóðs- ins. Samstarfslíkanið, sem felur í sér að Norræna ráðherranefndin starfar með bæði norræna kvik- mynda- og sjónvarpsgeiranum, er einstakt á alþjóðavettvangi, en það stuðlar að því að viðhalda samkeppnishæfni og gæðum í framleiðslunni“, segir Hanne Palmquist, framkvæmdastjóri Norræna kvikmynda- og sjón- varpssjóðsins. Samkomulagið við Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn var undirritað af 17 samstarfsað- ilum. Þetta er einstakt, vegna þess að samstarfsaðilar eru svo marg- ir og ólíkir; kvikmyndastofnan- ir/sjóðir, ríkisútvarpsstöðvar og einkareknar sjónvarpsstöðv- ar. Katrín Jakobsdóttir, ráð- herra menningarmála, er ánægð með samkomulagið. Hún leggur áherslu á að það sé mikilvægur þáttur í hnattvæðingarstefnu for- sætis- og menningarmálaráðherr- anna. „Kvikmyndir og sjónvarp eru einstakir tjáningarmiðlar. Þeir miðla annars vegar list og menn- ingu og hins vegar eru þeir atvinnurekstur og iðnaður. Þannig verður kvikmynda- og sjónvarps- framleiðslan mikilvægur þáttur í nýsköpun og skapandi iðnaði. Norðurlönd hafa hér mikilvægu hlutverki að gegna. Samkomulag- ið mun stuðla að því að viðhalda alþjóðlegri samkeppnishæfni þeirra á þessu sviði“, segir Katr- ín Jakobsdóttir og bætir við: „Nor- ræni kvikmynda- og sjónvarps- sjóðurinn hefur jafnframt fengið eina milljón danskra króna í auka- fjárveitingu til að markaðssetja norrænar kvikmyndir og hæfi- leikafólk á alþjóðavettvangi.“ Á ráðherrann þá við sérstakt átak til að styrkja dreifingu einstakra kvikmynda sem nú er í undirbún- ingi. pbb@frettabladid.is Norrænt kvikmyndastarf KVIKMYNDIR Brúðguminn er ein þeirra mynda sem nýtur góðs af samstarfi Norðurlanda á kvikmyndasviðinu. Margrét Vilhjálms- dóttir og Hilmir Snær í hlutverkum sínum. MYND SÖGN Kvikmyndahátíðir haustsins verða með fjörlegra móti og er ekkert lát á þótt þrengist hagur múgamanna: Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja- vík verður haldin í sjötta sinn dag- ana 17.–27. september. Sýndar verða hátt í 100 kvikmyndir, heimildar- myndir jafnt sem leiknar, nýjar og framsæknar kvikmyndir í bland við verðlaunamyndir frá kvikmyndahá- tíðum víða um heim. Þegar hefur verið opnað fyrir umsóknir kvik- mynda á Alþjóðlega kvikmyndahá- tíð í ár en umsóknarfrestur rennur út 15. júlí næstkomandi. Athygli er vakin á því að hátíðin óskar sérstak- lega eftir íslenskum stutt- og heim- ildarmyndum en tekið er við kvik- myndum í fullri lengd frá öllum heimshornum. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um hátíðina má finna á nýrri og endurbættri heimasíðu: www.riff.is. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur vaxið ótrúlega síð- ustu ár. Ríflega 20.000 Íslendingar sóttu hana á síðasta ári auk hundr- aða alþjóðlegra gesta. Hin hátíðin sem skellur á hvít- um tjöldum Reykjavíkur í haust er Nordisk Panorama: fimm borga hátíð norrænna kvikmyndagerðar- manna með heimildar- og stutt- myndum. Hún er komin aftur til Reykjavíkur og verður haldin dag- ana 25.–30. september. Er þetta í tuttugasta sinn sem hátíð er hald- in. Hátíðin býður upp á einstakt tækifæri til þess að taka púlsinn á norrænni kvikmyndgerð og vera fyrstur til að sjá nýjar myndir eftir þekkta leikstjóra og óuppgötvað hæfileikafólk. Fjöldi alþjóðlegra þekktra norrænna leikstjóra hefur þreytt frumraun sína á Nordisk Panorama og er hátíðin mikil- vægur stökkpallur fyrir unga kvik- myndagerðarmenn. Aðalsýningar Nordisk Panorama eru hluti af efnisskrá keppninnar sem fram fer á hátíðinni. Sú dag- skrá felur í sér sýningu á um það bil 80 nýjum stutt- og heimildarmynd- um og er stór hluti þeirra mynda sýndur í fyrsta sinn á hátíðinni alþjóðlegum áhorfendum. Keppt er um þrenn verðlaun, besta nor- ræna stuttmyndin, besta norræna heimildamyndin og nýjar norræn- ar raddir. Skráningu mynda á hátíð- ina er nú lokið en dagskráin er ekki tilbúin. Samsíða hátíðinni eru tveir mikilvægir og spennandi atburð- ir skipulagðir. Þeir eru Fjármögn- unarmessan og Markaðurinn en á þeim gefst einstakt tækifæri fyrir kvikmyndagerðarmenn að kynna nýjar hugmyndir í þróun, dreifa myndum sínum og fjármagna ný verkefni. pbb@frettabladid.is Hátíðir í haust KVIKMYNDIR Frá Nordisk Panorama fyrir fimm árum. Bíó í sundi. Er ekki allt á niðurleið? Hvað sem upp- náminu líður ætlar bassinn Bjarni Thor Kristinsson að þrepa sig niður og bjóða gestum Salarins á óborganlega skemmtun í kvöld í Salnum í Kópavogi. Þar flytur hann aríur, ljóð og sönglög sem stefna niður á við og rista djúpt við undirleik Ástríðar Öldu Sigurðardóttur píanóleikara. Þau byrja eins ofarlega og Bjarna er unnt og svo dýpkar það og dimmir niður tónstigann í leit að djúpum bassanótum og merkingu þeirra. Bjarni er okkar mesti bassi um þessar mundir, tæknilega fær um léttan leik í túlkun og þrælöruggur á sínu raddsviði sem reynt verður á í kvöld. Ekki er vitað til að tónleikarnir tengist á nokkurn hátt niður- stigi annars bassa úr æðstu hefðarstólum í Kópavogi. En tónleikarnir hefjast kl. 20 og er miðasala í Salnum. Niður á bóginn í Salnum TÓNLIST Bjarni Thor Kristinsson söngvari. Hátíðarmatseðill Forréttur Koniaksbætt humarsúpa Aðalréttur Steikt Lúðufiðrildi með hvítlauksristuðum humarhölum og humarsósu Dessert Hátíðardessert Forréttur Súpa dagsins Aðalréttur Hunangsgljáð andabringa „Orange” með rusty kartöflum og ristuðu grænmeti Dessert Hátíðardessert Forréttur Koniaksbætt humarsúpa Aðalréttur 200 gr. ristaðir humarhalar með mangó-chilli cous cous, salat og kartöflubátar Dessert Hátíðardessert Forréttur Súpa dagsins Aðalréttur Glóðuð Nautalundarpiparsteik, ristaðir humarhalar, grænmeti og rjómalöguð piparsósa Dessert Hátíðardessert Laugaás 30 ára 25. júní
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.