Fréttablaðið - 25.06.2009, Side 24

Fréttablaðið - 25.06.2009, Side 24
24 25. júní 2009 FIMMTUDAGUR UMRÆÐAN Einar K. Guðfinnsson skrifar um ríkisstjórn- ina Flestir þekkja hina hefðbundnu verka- skiptingu í stjórnarráð- inu, sem markast af ráðu- neytunum. En núna hefur hins vegar verið fitj- að upp á nýrri tegund af verka- skiptingu, sem er að taka á sig skýrari mynd eftir því sem vik- unum í stjórnarsamstarfi Vinstri grænna og Samfylkingar vindur fram. Þessi nýja verkaskipting geng- ur í sem skemmstu máli út á að ráðherrar skiptast á að lýsa yfir andstöðu sinni við helstu mál rík- isstjórnarinnar. Nú þegar hafa tveir tilteknir ráðherrar greint frá andstöðu sinni við tvö af stærstu málum stjórnarinnar og aðeins mánuður að baki í endur- nýjuðu stjórnarsamstarfi flokk- anna. Þetta er efnilegt og lofar miklu um framhaldið. Nú bíðum við þess að fleiri ráðherrar stígi fram á völlinn og marki sér sess. Að hverjum er nú röðin komin í þessari nýju verka- skiptingarhringekju sem leikin er í ríkisstjórninni? Ögmundur Jón- asson og Jón Bjarnason hafa tæp- lega einkarétt á þessum hlutverkum. Hvaða ráð- herrar búa sér til sér- stöðu í niðurskurðartil- lögum, við fjárlagagerð, eða við nýja og niður- skorna samgönguáætlun? Þetta er verklagið og við öllu er nú að búast. Ætla til dæmis ráðherrar Sam- fylkingarinnar ekki að taka til við álíka takta? Þetta hófst allt með ESB-tillögunni, sem utanríkis- ráðherrann flutti. Og áður en sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherrann hafði almennilega mátað sig í ráðherrastólinn sinn hafði hann afneitað tillögunni þrisvar. Síðastliðinn þriðjudag bætti hann svo um betur og fór um hana hinum háðuglegustu orðum í útvarpinu. Næstur á svið í þessum farsa var svo heilbrigðisráðherrann. Kaflinn í verkinu þar sem hann kemur við sögu er hvorki meira né minna en sjálft Icesave-málið; fjárhagsleg skuldbinding fyrir hönd þjóðarinnar upp á 600 til 700 milljarða króna. Ráðherrann hefur farið um það mál hinum hörðustu orðum. Þá lítur þetta svona út með verkaskiptinguna þegar hér er komið sögu: Ögmundur er á móti Icesave, en með ESB. Jón er á móti ESB en með Icesave! Svo bíðum við eftir nýjum útfærsl- um, með nýjum þátttakendum, í þessum sýndarleik. Það eiga svo þessi mál sameig- inlegt að með ráðherrunum í för er hópur svonefndra stjórnar- þingmanna sem með sama hætti vill að þessi meginfrumvörp rík- isstjórnarinnar hljóti hrakleg- an endi og verði að lokum felld á Alþingi. Flóknara er það ekki. Og nú er farið að tala um þessa makalausu stöðu sem eitthvert sérstakt tákn um ný og lýðræð- isleg vinnubrögð. Heyr á end- emi! Dettur einhverjum í hug að það sé til marks um ný eða lýð- ræðisleg vinnubrögð þegar rík- isstjórn er með allt niður um sig í sínum stærstu málum eins og hér blasa við allri þjóðinni? Eða hvernig má það vera að þeim mun meiri sem tætingsbragurinn sé á málatilbúnaði ríkisstjórnarinnar, standi lýðræðið í landinu styrk- ari fótum? Höfundur er alþingismaður. Nýstárleg verkaskipting Þessi nýja verkaskipting geng- ur í sem skemmstu máli út á að ráðherrar skiptast á að lýsa yfir andstöðu sinni við helstu mál ríkisstjórnarinnar. UMRÆÐAN Rúna Hjaltested Guð- mundsdóttir skrifar um íslenskt samfélag Það ætlar að reynast erfitt að fá nægilega hæft fólk til starfa hvort heldur er í ríkisstjórn eða á Alþingi, að undanskild- um örfáum einstaklingum. Maður skyldi ætla að meginmarkmið kjör- inna fulltrúa þjóðarinnar fælust í því að vernda hagsmuni hennar og vinna að þjóðarheill, en það er hvorki að sjá á núverandi ríkis- stjórn né þeirri sem á undan sat. Stjórnmálamenn hafa gefið eignir þjóðarinnar vinum sínum, komið þeim og sjálfum sér í þægileg- ar stöður. Þeir hafa ekki þurft að standa skil eða bera ábyrgð á einu eða neinu og almennt hegðað sér eins og í spilltu herforingjaríki. Núver- andi ríkisstjórn er sam- ansafn af undirlægjum og virðist tilbúin að gefa land- ið! Útrásarmafían, stjórn- málamenn og embættis- menn hafa komist upp með það of lengi að vera hinir „ósnertanlegu“. Grund- völlur stjórnkerfisins er brostinn vegna vanhæfis þeirra sem standa að því. Á Íslandi hafa óhæfir og spilltir stjórnmálamenn gert það sem þeim hefur sýnst. Þeir þvæla á óskiljan- legu máli, ekki verið látnir svara fyrir verk sín og virðast ekki gera sér grein fyrir því að þeir eru ekk- ert annað en starfsmenn þjóðar- innar. Samkvæmt því ætti að vera hægur vandi að láta þá fara frá ef þeir standa sig ekki í starfi. En vegna lítils aðhalds þá hafa stjórn- málamenn alltaf getað treyst á það að komast upp með næstum hvað sem er – menn bíða í viku og þá er allt gleymt. Fjölmiðlar hafa alls ekki staðið sig eins og skyldi, þeir hafa ekki vakað yfir þjóðmálunum. Það þarf að vakta þjóðmálin – ekki bara í einn dag, heldur alla daga og stundum vikur eða mánuði. Það er of algengt að of ungt fólk gegni fréttamannastörfum, látið fást við reynda stjórnmálamenn sem það ræður ekkert við. Hvergi hef ég séð á erlendum fréttastöðvum unga krakka í slíkum störfum, þeir fréttamenn sem fást við harðvítuga stjórnmálamenn eru yfirleitt þrosk- að og reynt fólk. En á Íslandi virð- ast allir geta orðið fjölmiðlamenn og greinilegt að of litlar kröfur um hæfi eða þroska eru gerðar. Enda kannski aðhaldið eftir því. Að einhverju leyti ber nú þjóð- in líka ábyrgð á ástandinu, því að sömu karlar/konur hafa verið kosn- ir aftur og aftur og þjóðin gerir afar litlar kröfur um það hvers konar karlar/konur veljast til starf- ans. Íslendingar gagnrýna mikið á öruggum stöðum eins og innan veggja heimila, en gera allt of lítið af því að sýna andúð t.d. með fjöl- mennum mótmælum eða skrif- um. Líklega má telja tvær ástæð- ur vera fyrir því – í fyrsta lagi ótti manna við hefndaraðgerðir þeirra sem fyrir gagnrýninni verða og í öðru lagi má nefna þá skoðanakúg- un sem hér á landi hefur ríkt, sem felst í því að aðeins ákveðnar skoð- anir mega heyrast. Gott dæmi um slíkt eru innflytjendamál. Ekki mega heyrast áhyggjur manna um þau mál, þá er umsvifalaust þagg- að niður í mönnum með því að kalla þá kynþáttahatara. Einnig er vert að hugsa um það hvort uppeldi okkar hefur ekki miðast of mikið við það að kenna okkur að vera ekki að gagnrýna of mikið, því þá erum við bara neikvæð og það er hrika- lega slæmt. En gagnrýni er bæði holl og algerlega nauðsynleg til framfara í þjóðfélögum. Gagnrýni er nauð- synleg til að veita t.d. stjórnvöld- um aðhald og ekki síst til að koma í veg fyrir spillingu. Líklegt þykir mér að mönnum finnist nú að betra hefði verið að vera „neikvæðir“ og veita aðhald, en vera „jákvæðir“ og loka augunum fyrir raunveruleik- anum á sínum tíma. Eftirhyggja er „dásamlegt“ fyrirbæri! Höfundur er sagnfræðingur. Vanhæf ríkisstjórn RÚNA HJALTESTED GUÐMUNDSDÓTTIR UMRÆÐAN Guðrún Erla Geirsdóttir (Gerla) skrifar um nýjan borgarlistamann Í framhaldi af fjármálahruninu hefur átt sér stað umræða um mikilvægi íslenskrar hönnunar fyrir innlenda framleiðslu. Í nokkur ár lagði Reykjavík- urborg sitt af mörkum til að efla hönn- uði og handverksfólk með styrkjum, sem úthlutað var af atvinnu- og ferðamála- nefnd. Meðal þeirra sem styrki hlutu voru Kirsuberjatréð, Spakmannsspjarir og Húfur sem hlæja. Nefndin var lögð niður eftir að málefni atvinnulausra voru færð frá sveitar- félögum til ríkisins og við það hurfu styrkirnir. Í breyttu samfélagi er þörf á að taka til endur- skoðunar áherslur sem töldust góðar og gildar í einstaklingshyggjuþjóðfélaginu sem við lifðum í. Að veita fjármagni til hönnunarverkefna er eitt af því sem æskilegt væri að borgin tæki upp að nýju. Með því legði hún sitt af mörkum til að stuðla að uppbyggingu sprotafyrirtækja. Víst er að sjóður sem hönnuðir og handíðafólk gætu sótt um styrki til fyrir afmörkuð verkefni mundi skila góðum árangri í formi nýrra atvinnutæki- færa. Í ár var borgarlistamaður Reykjavíkur útnefndur í þrítugasta sinn. Fulltrúar BÍL og SÍM í menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur bókuðu að þeir teldu að í stað þess að velja hönn- uð sem borgarlistamann væri eðlilegra að vera með sérstök hönnunarverðlaun. Hugmyndin að velja einnig hönnuð er frá undirritaðri komin, og mun ég leggja fram formlega tillögu um það að loknu sumarfríi borgarstjórnar. Innan vébanda Bandalags íslenskra listamanna eru þrjú þúsund manns sem starfa við hinar fjölbreyttustu list- greinar í fjórtán fagfélögum. Borgarlistamenn hafa m.a. komið úr röðum tónskálda, myndlistarmanna og rithöfunda. Aðeins einu sinni hefur leikhúslistamaður hlot- ið þennan heiður. Víst er að nokkrir úr hópi þeirra leikara sem í áratugi hafa sýnt frábæran árangur á sviði og í kvik- myndum væru vel að titlinum komnir. Það sama á við um reykvíska myndlist- armenn sem gert hafa garðinn frægan, t.d. á Feneyjatvíæringnum, sem og lista- menn úr öðrum greinum svo sem óperu- söngvara og dansara. Á engan hátt er kastað rýrð á hönnuði þegar fulltrúar BÍL og SÍM lýsa þeirri skoðun að borgarlistamaður skuli vera úr röðum lista- manna. Þvert á móti eru þeir sammála undir- ritaðri um að hönnun sé mjög mikilvæg. Svo mikilvæg og vaxandi grein að það sé ekki nema sanngjarnt að hönnuðir geti gengið að því vísu að einn úr þeirra hópi verði valinn til þess að taka við heiðursviðurkenningu borgarinnar árlega. Með framlaginu mundu borgaryfirvöld sýna á táknrænan hátt að hönnun er metin að verðleikum. En íslenskir hönnuðir hafa hlotið viðurkenningar og verðlaun erlendis ekki aðeins fyrir tískufatnað, heldur einnig húsgögn, hús- muni, stoðtæki, fiskivogir, flæðilínur og auglýs- ingar. Höfundur er myndlistar- og listfræðimenntaður varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Í takt við breytta tíma GUÐRÚN ERLA GEIRSDÓTTIR EINAR K. GUÐFINNSSON Að veita fjármagni til hönnunarverkefna er eitt af því sem æskilegt væri að borgin tæki upp að nýju. Með því legði hún sitt af mörk- um til að stuðla að uppbyggingu sprotafyrir- tækja. FYRIR ÞÁ SEM VILJA MIKLU MEIRA Á MILLI Þú færð ferska og gómsæta samloku frá Sóma á hverjum degi í næstu verslun. FERSKAR Í BÚÐIR Á HVERJUM DEGI! Í Sómahyrnunum er talsvert meira af áleggi og fersku grænmeti en þú átt að venjast og að sjálfsögðu er brauðið beint úr ofninum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.