Fréttablaðið - 25.06.2009, Side 26
HÁRSKRAUT og fatnaður eftir hönnuðinn Andre Lima voru meðal annars
til sýnis á tískuvikunni í Sao Paulo sem er nýafstaðin. Þess má geta að vikan
þykir einn merkasti viðburður í tískuheimi Suður-Ameríku.
„Ég seldi hringina heiman frá
mér til að byrja með en svo var ég
farin að fá það margar fyrirspurn-
ir að ég ákvað að reyna að koma
þeim í sölu annars staðar frá,“
segir Steinunn sem margir kann-
ast einnig við frá því að hún sinnti
stigavörslu í Gettu betur.
Steinunn Vala er í leyfi frá arki-
tektastofunni Batteríið en hún á
von á sér eftir fimm vikur. Í vetur
ákvað hún að sækja Prisma-nám í
Listaháskólanum og segir að námið
hafi kveikt í henni og brotið niður
múra þannig að hún ákvað að prófa
að skapa eitthvað sem henni hafði
aldrei dottið í hug að hún myndi
gera. „Ég vann hringa fyrir verk-
efni í skólanum til að byrja með og
valdi plastleirinn Femo sem efni-
við, sem margir kannast við að hafa
föndrað með þegar þeir voru litlir.
Svo spurðist þetta út – einhver sá
mig með minn hring – og ég ákvað
að búa til hringa handa þeim sem
sýndu áhuga.“ Eitt leiddi af öðru og
Steinunn Vala opnaði heimasíðuna
www.hringeftirhring.is með úrvali
skartgripa sinna. Undanfarið hafa
Nakti apinn og sveitabúðin Sóley,
rétt utan við Selfoss, tekið við sölu
hringanna og nú síðast bættist Epal
á listann. „Jú, ég er voða montin af
því að Epal vildi taka þá til sölu,
þeir hafa verið mjög viljugir að
leggja Íslendingum lið í að koma
hönnun sinni á framfæri.“
Hringarnir eru afar sérstak-
ir útlits, rómantískir og fágaðir í
senn og koma í ýmsum litum. „Vin-
sælustu litirnir eru þeir sem ég
byrjaði upphaflega með, svartur og
ljósbleikur. Nýjasti liturinn er svo
ljósgrár sem mér finnst afskap-
lega fallegur og fer vel við silfur-
muni. Með sumrinu bætti ég svo
við mörgum litum svo sem grænu,
kopar, fjólubláum, gulum, appels-
ínugulum og rauðum. Í upphafi
var ég líka bara með eitt munst-
ur en mynstrin eru fjögur núna,“
segir Steinunn en hún er einnig
með hálsmen í þróun. Umbúðirnar
eru gerðar úr endurnýttum bókum
og ódýrum pappaöskjum og öllum
kostnaði er haldið í lágmarki.
juliam@frettabladid.is
Byggingaverkfræðingur
selur skartgripi sína í Epal
Steinunn Vala Sigfúsdóttir byggingaverkfræðingur byrjaði í vor að hanna skartgripi sem urðu til sem verk-
efni í Prisma-námi í Listaháskólanum. Hringirnir spurðust fljótt út og nú fyrir helgi tók Epal þá í sölu.
Hringirnir eru nú fáanlegir í
öllum mögulegum litum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Steinunn Vala byrjaði
að hanna skartgripi
sína í vetur í fríi frá
arktitektastofu sem
hún vinnur á.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
VIÐ STÆKKUM
OG FLYTJUM Í FÁKAFEN 9
w
w
w
.g
a
b
o
r.is
St: 35.5 - 41
St: 35 - 44