Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.06.2009, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 25.06.2009, Qupperneq 30
 25. JÚNÍ 2009 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● blóm í bæ ● ALLS KONAR SÓLBLÓM TIL SÝNIS Íbúum Hveragerðis voru send sólblómafræ í vor sem Hveragerðisbær gaf og var þeim tilmælum beint til íbúa að rækta sólblóm og senda þau svo í Sólblómakeppni í sumar. Í dag var sólblómunum skilað í Íþróttahúsið í Hveragerði þar sem þau verða til sýnis alla helgina en síðan verða veittar viðurkenningar á sunnudaginn. „Veittar verða viðurkenningar fyrir hæsta sólblómið, fallegasta, kræklóttasta, minnsta og skrítnasta þannig það eru ýmsir möguleikar á viðurkenningum,“ segir Lilja Jóna Halldórsdóttir, hjá umhverfisdeild Hveragerðisbæjar. Keppnin var hugsuð til að veita bæjarbúum tækifæri til að taka þátt í hátíðinni og hafa und- irtektirnar verið mjög góðar og því spennandi að sjá fjölbreytta flóru sólblóma í íþróttahúsinu. Það er okkur Hvergerðingum sérstakur heiður að bjóða lands- mönnum til stórsýningarinnar Blóm í bæ sem haldin verður í bæjarfélaginu um komandi helgi. Enginn áhugamaður um gróð- ur, garðyrkju og góða skemmtun ætti að láta þessa sýningu framhjá sér fara. Hér munu Hvergerðingar í samvinnu við öll fagfélög græna geirans á Íslandi bjóða landsmönnum til veglegr- ar veislu. Er þetta í fyrsta sinn sem haldin er sameiginleg sýning allra þessara aðila. Þrátt fyrir að um frumraun hér á landi sé að ræða eru slíkar sýningar vel þekktar er- lendis og laða þær ævinlega að mik- inn mannfjölda. Áhugi á garðrækt og gróðri hefur aukist mikið undanfarin ár enda erum við Íslendingar sífellt að verða meðvitaðri um þá gleði og hugarró sem felst í því að rækta garðinn sinn. Fátt veitir meiri ánægju en að uppskera að hausti það sem til var sáð að vori og hlúð að yfir sumarið. Hér á Íslandi er sumarið stutt og því enn mikilvægara að nýta þessa fáu mánuði vel og njóta náttúrunn- ar eins vel og hægt er. Hvort sem garðræktin fer fram í kassa á svölunum, í skólagörðum eða í einkagarði þá er áhuginn sá sami og metnaðurinn til að ná árangri. Því teljum við að sýning eins og hér er blásið til sé löngu tímabær. Afar góð samvinna hefur náðst milli Hveragerðisbæjar, fag- félaganna og hinna fjölmörgu styrktaraðila, bæði fyrirtækja og opinberra aðila sem með rausnarlegum hætti koma að sýning- unni og fyrir það ber að þakka. Dagskrá helgarinnar er fjölbreytt og metnaðarfull og ættu gestir ekki að verða sviknir af því að gera sér ferð til Hveragerð- is um helgina. Stutt og skemmtileg ráðstefna um íslenska garð- list markar upphaf sýningarinnar föstudaginn 26. júní. Í kjöl- farið er sýningarsvæðið opnað klukkan 16 og þar með hefst við- burðarík helgi í blómabænum. Fyrir hönd íbúa Hveragerðisbæjar vil ég hér með bjóða lands- mönnum öllum að heimsækja Hveragerði um næstu helgi þar sem tekið verður vel á móti gestum á sýningu sem ekki á sér for- dæmi á Íslandi. Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri Verið velkomin í Blómabæinn Hveragerði Á garðyrkju- og blómasýn- ingunni Blóm í bæ í Hvera- gerði um helgina verður ýmislegt forvitnilegt til sýnis á risa sölu- og sýningarsvæði. Afskorin blóm, handverk, matvæli, garðyrkjuvörur, ljós og meira til. „Þetta er gífurlegur fjöldi fyr- irtækja og einstaklinga sem mætir til leiks um helgina,“ segir segir Elfa Dögg Þórðardóttir, mannvirkja- og umhverfisfulltrúi Hveragerðisbæjar. „Þarna verður fólk eins og Kristbjörg Elí Krist- mundsdóttir með blómadropana sína, einn elsti grasalæknir lands- ins, Gerður Benediktsdóttir, verð- ur líka með vörur sínar, Grasa- vinafélagið með túnþökur, Húsa- smiðjan, Blómaval, ljósafyrirtæki, girðingafyrirtæki, garðsláttuvél- ar og svo mætti lengi telja.“ Félag íslenskra landslagsarki- tekta verður einnig á svæðinu en sýningunni er skipt niður í úti og innisvæði og sérstök tjöld verða meðal annars lögð undir þá sem kynna matvæli og handverk. „Við höfum reynt að hafa þemað ís- lenskt þannig að innlendri fram- leiðslu er gert hátt undir höfði en annars verður mjög margt skemmtilegt að sjá, svo sem sex til átta þúsund afskorin blóm.“ Prodomo er eitt þeirra fyrir- tækja sem verða með vörur sínar til sölu, meðal annars ný íslensk kubbaljós. Hreimur Heimisson verslunarstjóri segir að þeir hafi lagt mikið upp úr íslensku fram- leiðslunni eftir hrun. „Við verðum með þrjá sýningarpalla og sýnum ljós sem fara ofan í jörð og pall sem og frístandandi ljósastaura. Við látum framleiða ljósin á Ís- landi og höfum gert það lengi en við erum að reyna að gera fram- leiðsluna enn stærri þar sem er- lendar vörur hafa auðvitað hækk- að upp úr öllu valdi.“ Innisvæðið er staðsett í íþrótta- húsinu í Hveragerði en markaðs- svæðið verður við Skólamörk, þar sem götunni verður lokað á meðan á sýningu stendur. Útisvæðið er svo staðsett í skrúðgarðinum. - jma Allt frá túnþökum til blómadropa Blómadropar Kristbjargar Kristmunds- dóttur verða kynntir á Blómum í bæ um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Mörg þúsund afskorin blóm verða til sýnis í Hveragerði um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Ráðstefnan Íslensk garðlist verð- ur haldin í sal Landbúnaðarhá- skólans á Reykjum í tengslum við Blóm í bæ. Ráðstefnan markar upphaf sýningarinnar en hún hefst á morgun klukkan 13. „Okkur langar til að segja frá því á ráðstefnunni hvað felst í garðyrkju á Íslandi og garð- rækt,“ segir Guðríður Helgadótt- ir, forstöðumaður starfs- og endur- menntunardeildar Landbúnaðar- háskóla Íslands. „Við viljum segja sögu garðræktar og hvernig garð- ar hafa þróast og breyst í gegnum tíðina því útlit garða er háð tísku- sveiflum eins og allt annað í ís- lensku þjóðlífi.“ Guðríður segir að garðurinn hafi breyst frá því að vera eitthvað sem fólk horfði á út um gluggann eða notaði sér til lífsviðurvær- is í að vera framlenging á heim- ilinu. „Garðurinn er að verða eins og eitt herbergi á heimilinu. Með ráðstefnunni vildum við vekja fólk til umhugsunar um hversu miklu máli garðurinn skiptir okkur.“ - mmf Saga og þróun garðræktar 13.00–13.10 Setning 13.10–13.35 Saga garðlistar á Íslandi - Samson B. Harðarson 13.35–14.00 Garðurinn hennar ömmu, mömmu, minn – Ásta Camilla Gylfadóttir 14.00–14.20 Plöntuval í görðum – Guðríður Helgadóttir 14.20–14.40 Efnisval í görðum – Þorkell Gunnarsson, skrúðgarðyrkjumeistari 14.40–15.00 Kaffihlé 15.00–15.30 Fjölbreyttir garðar á Íslandi – á mörkum hins ótrúlega. Kristinn H. Þorsteinsson 15.30–16.00 Framtíð garðræktar á Íslandi – Vilhjálmur Lúðvíksson, formaður GÍ Blóm í bæ er sýning helgarinnar í Hveragerði. Útgefandi: Hveragerðisbær | Heimilisfang: Sunnumörk | Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Elfa Dögg Þórðardóttir | Netfang: elfa@hveragerdi.is | Vefsíða: www.hveragerdi.is | Sími: 483 4000 | fax. 483 4801| Forsíða: Hveragerðisbær DAGSKRÁ RÁÐSTEFNU Guðríður segir að garðurinn hafi þróast í það að vera framlenging á heimilinu. N O RD IC PH O TO S/ G ET TY N O RD IC PH O TO /G ET TY
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.