Fréttablaðið - 25.06.2009, Page 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Ef tilveran væri amerísk háskólamynd og þjóðir heims
nemendur skólans hefði Ísland
verið montna vitlausa klappstýr-
an síðustu árin. Eðli málsins sam-
kvæmt fékk klappstýran fötu
með úldnum fiskhausum yfir sig
á skólaballinu í lok myndarinnar.
Öllum í bíóinu fannst hún eiga það
skilið. Þetta er það sem er kall-
að ljóðrænt réttlæti. Okkar úldna
fiskhausafata er hrunið með með-
fylgjandi fnyk og sú skömm að fara
kannski í ruslflokkinn með Kasak-
stan. Við og Borat verðum eitt.
EINS og hjá klappstýrunni komu
heimskan og montið okkur í þessa
aumkunarverðu aðstöðu. Við héld-
um að við værum miklu merkilegri
en við erum. Flottræfilslegir full-
trúar okkar fóru rígmontnir um
heiminn og stráðu um sig gúmmí-
tékkum. Alveg eins og ljóskur á
kreditkortafylliríi, útúrkókaðir
lífsstílshnakkar með ótakmarkaða
úttektarheimild í Saltfélaginu.
STEMNINGIN var alls staðar
eins. Þótt við skíttöpuðum unnum
við samt. Útbelgd af minnimátt-
arkennd, eins og þeir sem leggja
aðra í einelti, komust innantómir
frasar eins og stórasta land í heimi
og silfur er gulli betra í umferð.
Þeir sem reyndu að vara við rugl-
inu voru hengdir upp á nærbrók-
inni.
ÉG MAN að ég spurði sjálfan mig
reglulega: Hvaðan koma allir þess-
ir peningar? Er ekki fiskur og fall-
vötn það eina sem við eigum til að
selja? Alveg sama hvað ég reyndi
að stauta mig fram úr fréttum um
grilljóna gróða á fyrsta ársfjórð-
ungi skildi ég aldrei hvaðan allur
peningurinn kom. Er hægt að búa
til peninga úr engu? Er ég algjör
bjáni að skilja þetta ekki? Nú hef
ég lært að það sem ég skil ekki, er
ekki alvöru. Það er bara einhver
della.
VIÐ vorum ekki alltaf montnar
klappstýrur. Einu sinni vorum
við meira að segja skáknördinn í
skólanum. Þegar ýldufýlan verð-
ur komin úr fötunum er ekki
um annað að ræða en að læra af
mistökunum og reyna að vera
almennilegur. Skilja að það koma
engar kartöflur upp nema maður
setji þær niður fyrst. Ótrúlegt
hvað einföldustu staðreyndir geta
vafist fyrir fólki þegar það er með
hauspoka.
VIÐ skulum auðvitað vona að í
framhaldsmyndinni verði klapp-
stýran ný og betri manneskja. Fín
byrjun hjá okkur er að fara ekki
strax að monta okkur af því að
við séum nú pottþétt „best í rusl-
flokknum“ þegar við lendum þar.
Best í rusl-
flokknum
Í dag er fimmtudagurinn 25.
júní, 176. dagur ársins.
2.58 13.30 0.02
1.36 13.15 0.51
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%
H E I L S U R Ú M
FJÖLSTILLANLEG HÁGÆÐA
AMERÍSK HEILSURÚM Á
30% AFSLÆTTI!
S-CAPE
Fjölstillanlegt amerískt
heilsurúm með hágæða
heilsudýnu (2x97x203)
Verð frá 821.114 kr.
Verð nú frá
574.480 kr.
WALLHUGGER
Fjölstillanlegt amerískt
heilsurúm með hágæða
heilsudýnu (2x97x203)
Verð frá 676.114 kr.
Verð nú frá
473.279 kr.
ÞRÝSTIJÖFNUNAR-SVAMPSRÚM
(Queen size 153x203)
Verð frá 165.500 kr.
Verð nú frá
115.850 kr.
Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
30%
AFSLÁTTUR!
ÞRÝSTIJÖFNUNAR
A
R
G
H
! 0
60
9
SVAMPSRÚM