Fréttablaðið - 23.07.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.07.2009, Blaðsíða 2
2 23. júlí 2009 FIMMTUDAGUR „FALLEG LESNING D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Gunnar Hersveinn er hamingjusamur neon-lesandi sem mælir óttalaus með bókinni Laura og Julio eftir Juan José Millás í þýðingu Hermanns Stefánssonar. www.bjartur.is …Á EINHVERN ÓÚTSKÝRAN- LEGAN MÁTA.“ – Kolbrún Skaftadóttir STJÓRNMÁL Össur Skarphéðins- son utanríkisráðherra fundar með sænsk- um starfsbróð- ur sínum, Carl Bildt, um Evr- ópusambands- málin í Stokk- hólmi í dag. Svíþjóð fer nú með for- mennsku í ráðherraráði Evrópusam- bandsins. Mun Össur fylgja aðildarum- sókn Íslands að ES úr hlaði auk þess sem umsóknarferlið og næstu skref verða til umræðu, að því er fram kemur í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. Sendiherrar Íslands hafa þegar komið formlegri aðildarumsókn Íslands á framfæri. - bþs Össur hittir Carl Bildt í dag: Ræða um ESB- umsókn Íslands ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON ALÞINGI Þingfundur verður í dag en hlé hefur verið á fundum Alþingis frá því á fimmtudag, þegar atkvæði voru greidd um ESB-tillöguna. Fundað hefur verið í nefndum þingsins síðustu daga, einkum þeim er hafa Isesave-málið til umfjöllunar. Þingfundur dagsins hefst með óundirbúnum fyrirspurnartíma. Að honum loknum verður rætt um stjórnarfrumvörp en sautj- án slík eru á dagskránni. Eru þau mislangt á veg komin í meðferð þingsins. - bþs Þingfundur í dag eftir hlé: Stjórnarfrum- vörp á dagskrá SÁLFRÆÐI Þrettán ára stúlka, sem tók jeppabifreið ófrjálsri hendi í Húsa- felli aðfaranótt miðvikudags, telur sig hafa ekið bifreiðinni í svefni alla leið frá Húsafelli til Keflavík- ur eða 185 kílómetra. Endaði förin á því að hún keyrði út í kant. Stúlk- an dvaldi í sumarhúsi í Húsafelli, fór yfir í annað sumarhús og tók jeppann. Skildi hún eftir kveðjuna: „Flott hús. Kveðja, næturröltarinn.“ Málið er enn til rannsóknar hjá lög- reglunni í Borgarnesi. Júlíus K. Björnsson, sálfræðingur og forstöðumaður Námsmatsstofn- unar, sem vann við mál tengd svefn- truflunum hjá Landspítalanum í 15 ár, segir þetta mál stórundarlegt. „Að þetta ástand standi í nokkra klukkutíma gengur engan veginn. Oftast eru þetta einhverjar fimm til tíu mínútur.“ Sofi manneskja eðlilega fer hún í gegnum nokkur svefnstig og skipt- ist á djúpur svefn og draumsvefn. Hver hringur tekur um 90 mínút- ur. Svefnganga á sér venjulega stað fyrri part nætur. „Ef hún hefur sofið eðlilega þá hefði hún líklega keyrt út af þegar hún hefði farið í draumsvefn. Ég veit hins vegar ekkert um tilvik ið og það gæti verið að hún fái bara djúpan svefn. Ég á þó afar bágt með að trúa því,“ segir Júlíus. Guðrún Guðmundsdóttir, móðir 29 ára gamallar konu sem gekk mikið í svefni á yngri árum, segir mögulegt að þessi saga geti verið sönn. Þó sé það ólíklegt ef stelp- an á enga forsögu um svefngöngu. Nokkrum sinnum kom fyrir að dótt- ir hennar gekk í svefni en ekkert hafi jafnast á við þetta: „Einu sinni þurfti ég að fara út á land og systir hennar passaði hana. Síminn hringdi um miðja nótt og þá höfðu hjón fundið hana úti. Þau spurðu hana hvað hún væri að gera og hún sagðist vera að leika sér. Fólkið átti heima rétt hjá okkur og könnuðust við okkur og fóru því með hana heim til sín og gáfu henni kakó og brauð. Síðan ákváðu þau að hringja og athuga hvað væri í gangi. Hin dóttir mín svaraði og sagði þeim að systir sín væri líklega sofandi. Þá hafði þetta varað í þrjár til fjórar klukkustundir og hún mundi ekk- ert,“ segir Guðrún. Svefngangan hætti smám saman en stundum gengur hún enn í svefni. „Eiginmaður hennar sagði mér að hún gengi stundum í svefni þegar hún er undir álagi. Þá er það yfir- leitt bara fram á gang og stendur stutt yfir,“ segir Guðrún. vidirp@frettabladid.is Þrettán ára stúlka ók 185 kílómetra í svefni Þrettán ára stúlka segist hafa verið sofandi þegar hún ók frá Húsafelli til Kefla- víkur. Sálfræðingur segir þetta stórundarlegt og mjög ólíklegt. Móðir stúlku sem gekk í svefni segir hana eitt sinn hafa gengið í um þrjá tíma í svefni. Á Netinu er hægt að finna upplýs- ingar um svefngöngu skrifaðar af Sigríði Guðmundsdóttur sálfræðingi: „Svefnganga getur hrjáð fólk á öllum aldri en hún er sérstaklega algeng meðal barna. Hún kemur yfirleitt ekki fram fyrr en eftir 6 ára aldurinn og komið hefur í ljós að svefnganga er algengust hjá börnum á aldrinum 8-12 ára. 17% barna í þessum aldurshópi (8-12 ára) gengur í svefni á meðan 4% fullorðinna eru svefngenglar. Flest börn vaxa upp úr svefngöngunni fyrir eða um kynþroskaaldurinn og þá hættir svefngangan yfirleitt frekar skyndilega, jafn skyndilega og hún hófst. Erfðir koma mjög við sögu og líkurnar aukast á því að barn gangi í svefni ef foreldrar þess gera það líka. Aðrir þættir eru einnig taldir hafa áhrif á svefngöngu, [til dæmis] svefnskortur, hiti, streita og skortur á magnesíum.“ SVEFNGANGA ALGENG MEÐAL BARNA STJÓRNSÝSLA Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) hafa óskað eftir aðgangi að samningsgerð milli Garðabæjar og Sælkeraveislna ehf. um skólamálsverði í grunnskólum Garðabæjar. Ástæðan er að Ávaxta- bíllinn, fyrirtæki innan SVÞ, telur að brotið hafi verið á sér við fram- kvæmd útboðsins en Ávaxtabíllinn var með lægsta tilboðið. Líklegt er að höfðað verði mál vegna þessa. Ríkiskaup buðu út skólamáltíðir í grunnskólum Garðabæjar fyrir hönd bæjarins og var opnað fyrir tilboðin 12. maí. Garðabær tók til- boði Sælkeraveislna 23. júní. Tilboð Ávaxtabílsins var dæmt ógilt vegna ákvæðis í lögum um að fyrirtæki verða að vera með jákvæða eigin- fjárstöðu. Telur Ávaxtabíllinn ósanngjarnt að miða alfarið við eiginfjárstöðu við núverandi ástand í atvinnulíf- inu. Segir Ávaxtabíllinn að hann geti staðið undir afborgun skulda og það sé það sem skipti máli. Oft hafi verið gerð undantekning frá þessu ákvæði. Garðabær telur hins vegar að bindandi samningur hafi komist á milli bæjarins og Sælkeraveislna. SVÞ óskaði eftir að samningsgerð yrði stöðvuð vegna þeirra vankanta sem voru á útboðinu í kæru 3. júlí. Kærunefnd útboðsmála hafnaði þessu hins vegar í úrskurði 16. júlí þar sem ekki voru taldar líkur á því að brotið hafi verið gegn lögum um opinber innkaup. - vsp Ávaxtabíllinn telur að brotið hafi verið á sér við útboð á skólamáltíðum: Íhuga málssókn gegn Garðabæ ÁVAXTABÍLLINN Átti lægsta tilboð í útboð vegna skólamáltíða í Garðabæ. Tilboðinu var hafnað vegna neikvæðrar eiginfjárstöðu. HEILBRIGÐISMÁL Alls hafa 18 manns greinst með svínaflensuna, A(H1N1)v. Þrír greindust með flensuna í gær. Þetta kemur fram hjá Landlæknisembættinu. Um er að ræða 24 ára karlmann sem ekki hefur ferðast erlend- is og ekki haft tengsl við ferða- langa. Þá greindist inflúensan hjá 54 ára gömlum bandarískum ferðamanni sem kom til landsins 15. júlí og sjö ára gömlum dreng sem kom frá Bretlandi 17. júlí. Enginn þessara sjúklinga er með alvarleg einkenni og allir á batavegi. Alls hafa fjórir smitast sem ekki hafa ferðast erlendis. - vsp Þrjú ný svínaflensutilfelli: 18 greindir með svínaflensu BRETLAND Breska dagblaðið The Daily Telegraph hefur valið Reðursafnið á Húsavík sem eitt af tólf óvenjulegustu söfnum heims. Af öðrum söfnum sem dag- blaðið telur óvenjuleg er klós- ettsafn í Nýju-Delí á Indlandi, nestisboxasafn í Georgíu í Bandaríkjunum og pyntingasafn í Amsterdam í Hollandi. Einnig kemst neðanjarðarsafnið í París á listann, þar sem hægt er að fræðast um göng og ræsi borg- arinnar, gaddavírasafn í Kansas í Bandaríkjunum og núðlusafn í Tókíó í Japan. Með frétt breska dagblaðsins er meðal annars birt mynd af Sigurði Hjartarsyni safnstjóra, þar sem hann stendur við fíls- reður. - th Óvenjulegustu söfn í heimi: Reðursafnið í bresku dagblaði Gissur, er þetta ekki bara til bóta? „Svo skal böl bæta að bíða annað meira.“ Vel á þriðja hundrað ábendinga hafa bor- ist ríkisskattstjóra og Vinnumálastofnun vegna svartrar vinnu og bótasvika. Gissur Pétursson er forstjóri Vinnumálastofnun- ar. Málshátturinn er úr Grettis sögu. SUÐUR-KÓREA, AP Slagsmál brutust út á þingi Suður-Kóreu í Seúl í gær. Tilefnið var umdeilt fjöl- miðlafrumvarp, sem var sam- þykkt, en það losar um takmark- anir á eignarhaldi fjölmiðla. Þingmenn stjórnarflokksins tóku sér stöðu við sæti þingfor- seta til að tryggja að málið fengi hraðari afgreiðslu. Stjórnarand- stæðingar brugðust við með því að meina þingmönnum stjórnar- flokksins inngöngu í þingsalinn. - gb Umdeilt fjölmiðlafrumvarp: Slegist á þingi ÞINGIÐ Í SUÐUR-KÓREU Læti af þessu tagi munu ekki óalgeng í Suður-Kóreu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Þrotabú Samsonar, eignarhaldsfélags Björg ólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björg ólfssonar, hefur höfðað mál gegn ýmsum félög- um sem tengjast feðgunum. Þrotabúið vill að óhag- stæðum samningum verði rift. Riftunarmálin eru alls fimm talsins, öll gegn félögum eða einstaklingum sem tengjast Björgólfs- feðgum. Þrotabúið vill til að mynda rifta samningi við Straum-Burðarás fjárfestingarbanka þar sem Sam- son gerði upp skuldir við bankann, og veitti honum þar með forgang fram fyrir aðra kröfuhafa, að því er fram kom í Morgunblaðinu í gær. Einnig er þess krafist að kaup Samsonar á 16,7 pró- senta hlut í Árvakri gangi til baka, enda hafi hlutur- inn verið einskis virði þegar kaupin hafi farið fram. Þrotabú Samsonar höfðar einnig mál gegn Björg ólfi Guðmundssyni vegna 111 milljóna króna sem Samson greiddi fyrir Björgólf í minningarsjóð um dóttur hans. Heildarskuldir þrotabúsins nema um 80 milljörðum króna, að því er fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í gær. Helstu kröfuhafar eru Commerzbank og fleiri bankar sem komu að sambankalánum til Samsonar árið 2005. - bj Heildarskuldir þrotabús Samsonar nema alls um 80 milljörðum króna: Þrotabú vill rifta samningum STYRKUR Lánum Samsonar til íþróttafélagsins KR var breytt í styrk þremur dögum fyrir greiðslustöðvun Samsonar. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.