Fréttablaðið - 23.07.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 23.07.2009, Blaðsíða 12
12 23. júlí 2009 FIMMTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ Hvar hefurðu verið allt mitt líf? „Sjónarmið velferðarþjón- ustunnar ættu að ráða því hversu lausan tauminn við gefum fjármálamarkaðnum á hverjum tíma.“ ÁRNI PÁLL ÁRNASON FÉLAGSMÁLA- RÁÐHERRA Fréttablaðið, 22. júlí Mæltu manna heil- astur „Það er alveg ljóst að best væri að þurfa aldrei að taka þvagsýni til að sanna að viðkomandi einstaklingur sé ölvaður.“ ÓLAFUR HELGI KJARTANSSON SÝSLUMAÐUR Fréttablaðið 22. júlí Kaffi Hjalli er kaffihús- ið sem rekið er á vegum Kópavogsbæjar. Boðið er upp á heitan heimilismat í hádeginu þar sem börn úr 10. bekk elda ofan í þig kræsingarnar. Á vegum Vinnuskólans í Kópavogi er rekið kaffihúsið Kaffi Hjalli í Hjallaskóla sem opið er fyrir alla. Yfirkokkarnir, Bjarki Sigurjóns- son og Snorri Páll Þórðarson, sem starfa á veturna fyrir félags- miðstöðvar í Kópavogi, eru hug- myndasmiðirnir á bak við kaffi- húsið. Hugmyndina fengu þeir hjá félagsmiðstöðinni Miðbergi í Breiðholti en betrumbættu hana, að eigin sögn. Sóttu þeir síðan um að fá að reka kaffihúsið hjá Kópa- vogsbæ. Það var tekið fyrir á bæj- arráðsfundi og samþykkt. Hjá Kaffi Hjalla er alltaf boðið upp á heitan mat í hádeginu. „Við bjóðum alltaf upp á venjulegan heimilismat. Við höfum til dæmis verið með kjötsúpu, kjúkling og lasanja,“ segir Bjarki. Fyrir þá sem vilja fá upplýsingar um mat- seðil dagsins, þá er Hjalli með Facebook-síðu þar sem hann er birtur hverju sinni. Einnig er bara um að gera að mæta, því listi yfir matseðil vikunnar er hjá þeim, að sögn Bjarka. Á vegum verkefnisins vinna tíu krakkar sem allir voru að klára 10. bekk. „Þeim finnst þetta fáránlega gaman, miklu skárra en að hanga úti í beði. Samhliða því að elda matinn læra þau markaðssetningu, hvað þetta kostar og svo framveg- is og læra í raun að reka sitt kaffi- hús. Þau læra helling af þessu,“ segir Bjarki. Hann segir krakkana vinna mestalla vinnuna en Bjarki og Snorri fylgjast með að allt sé „í orden“ og hjálpa til ef nauðsyn- legt þykir. Allt að 60 manns mæta yfir dag- inn á kaffihúsið, að sögn Bjarka, en opið er á kaffitímum Vinnuskól- ans. Í hádeginu koma oftast um 40 manns og flestir eru starfsmenn Kópavogsbæjar en einnig kemur fyrir að fólk detti inn af götunni. Opið er alla virka daga nema á föstudögum en kaffihúsið mun loka í þessari viku, vegna vinnuskyldu Vinnuskólans, og því fer hver að vera síðastur að smakka heimil- ismat eldaðan af starfsmönnum Vinnuskólans. vidirp@frettabladid.is Heimilismatur eldaður í unglingavinnunni í Kópavogi SNORRI OG BJARKI Hér má sjá yfirkokk- ana Bjarka og Snorra bregða á leik. Á skiltinu sem þeir halda við má sjá opnunartíma kaffihússins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KRAKKARNIR Í ELDHÚSINU Hér má sjá ungmennin tíu sem vinna í eldhúsinu en þeim finnst þetta skemmtilegra en að vinna í beðunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ■ Íbúar Evrópusambandsins eru nærri hálfur milljarður talsins, nú þegar aðildarríkin eru orðin 27. Flatarmál þessara ríkja er samtals 4.325 þúsund ferkílómetrar, en það er nærri helmingi minna landsvæði en Brasilía hefur yfir að ráða. Helmingur íbúanna talar ensku þótt aðeins 13 prósent þeirra hafi ensku að móðurmáli. Helmingur íbúa Evrópusam- bandsins segist trúa á guð. FRÓÐLEIKUR HÁLF MILLJÓN MANNA „Ég er mikill Evrópusinni og vil endilega ganga í Evrópu- sambandið,“ segir Tryggvi M. Baldvinsson, bæjarlistamaður Álftaness og tónskáld. Hann segir þó margar hliðar á svona málum og efast um að við fáum allar okkar óskir uppfylltar án þess að láta eitthvað á móti. „En þegar á heildina er litið þá er þetta eina vitið,“ segir Tryggvi sem hefur lengi verið þeirrar skoðunar að við eigum að ganga í ESB. Honum fannst ekkert vit í tvöfaldri þjóðar- atkvæðagreiðslu sem minnihlutinn lagði fram. Það hafi aðeins verið tímaeyðsla. „Ég sá enga ástæðu til þess að gera það. Við verðum að sjá hvað við fáum út úr samningaviðræðunum þó það kosti peninga,“ segir Tryggvi. Telur hann að eftir samningaviðræð- ur hefði þurft að fara fram bindandi þjóðaratkvæðagreiðsla, eins og lagt var fram, þar sem þjóðin hefði feng- ið að ráða því hann hefur takmark- aða trú á pólítíkusum í dag. SJÓNARHÓLL AÐILDARUMSÓKN AÐ ESB Vill endilega ganga í ESB TRYGGVI M. BALDVINSSON Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er eingöngu ætlað til húðmeðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Drepur fótsveppinn - þarf aðeins að bera á einu sinni ½½ Notaðu alla Lamisil Once® túpuna á báða fæturna til að forðast að sýkingin taki sig upp á ný Berðu Lamisil Once® á: á milli tánna, bæði undir þær og ofan á bæði á iljar og jarka 24h Til að ná sem bestum árangri skal ekki þvo fæturna í sólarhring 1 32 „Það er bara það að frétta að við vorum að byrja tónleikaferðalag í gær (þriðjudag). Við spiluðum á Græna hattinum á Akureyri þar sem var fullt út úr dyrum og erum komin á Vopnafjörð núna,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir söngkona. Hún er nýbúin að gefa út geisladisk með lögum sænska tónskáldsins Cornelis Vreeswijk, sem er að sögn Guðrúnar mjög þekktur á Norðurlöndunum. Hún ferðast nú um landið ásamt sex öðrum tónlistarmönn- um þar sem geisladiskurinn er kynntur á tónleikum. „Þetta er sænskt-íslenskt samstarf, við erum með þrjá Svía og svo erum við fjórir Íslendingar.“ Það er Aðalsteinn Ásberg sem íslenskaði texta Vreswijks, en hann kynnir líka tónleikana og segir sögur af tónskáldinu að sögn Guðrúnar. Hópurinn spilaði á Vopnafirði í gærkvöldi og verður á Húsa- vík í kvöld. „Svo verðum við í Stykkishólms kirkju á föstudag, í Norræna húsinu á laugardag og á Gömlu-Borg í Grímsnesi á sunnudag. Við Aðalsteinn erum búin að ganga með þessa hugmynd í maganum mjög lengi.“ Tónlist Vreeswijks er vísna- og þjóð- lagatónlist og Guðrún segir að það hafi komið á óvart hversu marga aðdáendur hann virðist eiga hér á landi. Hún segist aðspurð telja að meira og minna allt sumarfríið fari í kynningar á plötunni, en hún telur það ekki eftir sér. „Við erum bara að ferðast um landið í rútu. Það er eitt það skemmtilegasta sem ég geri að koma fram úti á landi, þótt það sé gaman í Reykjavík líka. Nándin er svo mikil á minni stöðum.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR SÖNGKONA Ferðast um landið og kynnir plötu Árleg sumarhátíð Vinnuskólans í Kópavogi var haldin í blíðskap- arveðri í gær. Um 900 unglingar hafa starfað á vegum Vinnuskól- ans í sumar og hafa aldrei verið fleiri. Á hátíðinni í gær komu fram hljómsveitirnar Ingó og veður- guðirnir, Dikta, Jón Jónsson and the Wonderful Friends og hljóm- sveitin Járnskófla, en sú hljóm- sveit var skipuð flokksstjórum úr vinnuskólanum. Grillað var fyrir mannskapinn og auk þess var ýmislegt fleira um að vera á hátíðinni. Meðal annars kepptu krakkarnir í gerð mennskra pýramída og því að skjóta fótbolta á mark. - þeb Sumarhátíð Vinnuskólans í Kópavogi haldin í gær: Tónleikar og grill í góðu veðri PÝRAMÍDI Keppt var í gerð mennskra pýramída og hér er einn slíkur í vinnslu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.