Fréttablaðið - 23.07.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 23.07.2009, Blaðsíða 4
4 23. júlí 2009 FIMMTUDAGUR Ranglega var sagt að tölur um glæpa- tíðni sem vitnað var til í Fréttablaðinu í gær ættu við um fyrstu sex mánuði ársins. Tölurnar áttu aðeins við júní- mánuð. TB W A\ RE YK JA V ÍK \ S ÍA www.ellingsen.is SUMARMARKAÐUR ELLINGSEN ER HAFINN! Kynntu þér úrvalið á bls. 14-15 REYKJAVÍK AKUREYRI Í Fréttablaðinu í gær var því haldið fram að píramídarnir miklu í Gísa í Egyptalandi hefðu ekki komist í hóp hinna sjö manngerðu undra veraldar í netkosningu. Hið rétta er að píram- ídarnir fengu sérstakan heiðursess í þessu vali, þannig að ekki var hægt að greiða þeim atkvæði. Þeir eru þar með ekki í hópi hinna sjö nýju undra veraldar, en að sjálfsögðu áfram eitt af hinum fornu sjö undrum veraldar. LEIÐRÉTTING FÉLAGSMÁL Allir öryrkjar þurfa að greiða fullan nefskatt til Ríkisút- varpsins 1. ágúst næstkomandi. Áður, þegar afnotagjöld voru inn- heimt af RÚV, fengu öryrkjar 20 prósenta afslátt af afnotagjöldun- um. Lögblindir og heyrnar- lausir voru hins vegar undan- þegnir gjald- inu. Öryrkja- bandalagið (ÖBÍ) hefur sent menntamála- ráðherra erindi vegna þessa. „Ég hugsa að það verði ekki gerðar breyt- ingar á þessu fyrir ágúst en við viljum skoða þetta því ég skil algjörlega þessa gagnrýni. Þetta er eðlileg krafa miðað við hvern- ig þetta var iðkað án þess að ég lofi neinu,“ segir Katrín Jak- obsdóttir menntamálaráðherra. Eðli innheimtunnar hefur breyst, að sögn Katrínar. Áður innheimti RÚV afnotagjöldin og var þetta þá samningsatriði milli RÚV og ÖBÍ. Nú er það hins vegar á vegum skattayfirvalda að inn- heimta. Halldór Sævar Guðbergsson, formaður ÖBÍ, segir að í erindinu hafi verið óskað eftir því að sam- ræmi sé á milli hópa. Til dæmis greiði einstaklingar yfir 70 ára ekki nefskatt. Það geri hins vegar öryrkjar sem búi á sambýli. „Það ætti frekar að taka mið af fjárhagsgetu frekar en aldri manna. Hins vegar er það svo að ef öryrki býr einn borgar hann núna minna en hann greiddi í afnotagjöld,“ segir Halldór. „Gagnvart ákveðnum hópum eins og heyrnarskertum og lög- blindum er þetta mjög ósanngjarnt þar sem þeir nýta sér þetta að tak- mörkuðu leyti. Til dæmis vantar talsvert á rit- og táknmálstúlkun á RÚV fyrir heyrnarskerta.“ Ekki hefur ÖBÍ reifað leið- ir til þess að hægt sé að koma til móts við þessi sjónarmið. „Ef það er vilji til þess að breyta þessu er hægt að finna ýmsar leiðir. Til dæmis með beinum afslætti eða fella gjaldið niður hjá fleiri hópum,“ segir Halldór. Blindir og sjónskertir á Íslandi eru um 1.500 talsins. Þar eru milli fjögur og fimm hundruð manns lögblindir og hundrað manns alblindir. „Það er auðvitað ósann- gjarnt að menn séu rukkaðir um fullt gjald því þetta er þjónusta sem lögblindir geta ekki nýtt sér með sama hætti og þeir sem eru fullsjáandi,“ segir Kristinn Hall- dór Einarsson, formaður Blindra- félags Íslands. Nefskattur er 17.200 krónur og er fyrsti greiðsludagur 1. ágúst næstkomandi. Allir á aldrinum 16 til 70 ára þurfa að greiða skattinn. Fyrir liggur hugmynd um að fjölga gjalddögum skattsins í þrjá. vidirp@frettabladid.is Lögblindir greiða fullan nefskatt RÚV Öryrkjar greiða fullan nefskatt af RÚV 1. ágúst. Áður fengu þeir 20 prósenta af- slátt. Menntamálaráðherra segist skilja gagnrýnina fullkomlega. Formaður ÖBÍ segir þetta mjög ósanngjarnt gagnvart heyrnarskertum og lögblindum. HALLDÓR SÆVAR GUÐBERGSSON KATRÍN JAKOBSDÓTTIR SAMBÝLI Ef fimm öryrkjar búa saman á sambýli þurfa þeir að greiða 86 þúsund krónur í nefskatt. Áður hefðu þeir þurft að greiða 28.752 krónur, með afslætti, ef gert er ráð fyrir að þeir hafi átt eitt sjónvarp. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SAMFÉLAGSMÁL „Ég er alveg sam- mála því að það þarf miklu meiri samfélagslegar skyldur og ábyrgð á banka þótt þeir séu í einkaeigu,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um ummæli Árna Páls Árna- sonar félagsmálaráðherra í Frétta- blaðinu í gær. Þar sagði Árni að velferðarsjónarmið eigi að ráða meiru um leikreglur fjármála- markaðarins því velferðarkerfið þurfi að borga þegar kreppi að. „Reyndin er sú að bankar eru ekkert einkavæddir heldur á ábyrgð samfélagsins. Þess vegna er rökrétt að samfélagið hafi meira um það að segja með hvaða hætti bankar eru reknir,“ segir Gylfi. „Hvort það er viðskiptaráð- herra eða félagsmálaráðherra sem ákveður það skal ég ekki fullyrða um. Hins vegar ætti ríkisstjórnin í sameiningu að hafa skoðun á því með hvaða hætti bankakerfi á að vera rekið og sérstaklega að gera greinarmun á milli áhættusamra fjárfestinga og reglubundinnar viðskiptabankaþjónustu.“ Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, segist ekki vita nákvæm- lega hvað Árni Páll á við og segist ekki sjá að mikið sé að því hvern- ig lög eru samþykkt nú. „Það er þannig að allt þjóðfélagið ber mik- inn kostnað af því þegar illa fer í atvinnulífinu. Menn hafa alltaf öll þessi sjónarmið í huga þegar lög eru samþykkt í þinginu, þá komast öll sjónarmið að.“ - þeb Bankar þurfa að sýna ábyrgð þrátt fyrir að þeir séu í einkaeigu: Meiri samfélagslegar skyldur GYLFI ARNBJÖRNSSON VILHJÁLMUR EGILSSON VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Ósló París Róm Stokkhólmur 31° 23° 24° 26° 23° 25° 26° 22° 23° 22° 26° 24° 27° 33° 23° 25° 27° 21° Á MORGUN 8-13 m/s við S-og SA ströndina annars 3-8. FÖSTUDAGUR Hæg, breytileg átt. 6 10 12 10 11 12 16 10 10 8 6 3 6 10 3 3 3 8 8 4 6 13 14 10 1113 12 16 16 1214 18 16 GÓÐVIÐRISTÍÐ FRAMUNDAN Nú fer hægt hlýnandi á landinu og um helgina ættum við að sjá tölur yfi r 20 stigum hér og hvar til landsins. Á morgun verður vindasamt með suðurströndinni en úrkomulítið á land- inu. Bjartast verður þá á Vestfjörðum. Á föstudag léttir til og verður bjart á austur- helmingi landsins en mun þungbúnara fyrir vestan. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur ELDSVOÐI Miklir gróðureldar voru á milli Helgafells og Valahnúks í nágrenni Hafnarfjarðar í gær. Slökkvilið höfuðborgarsvæðis- ins hafði enn ekki komist að eld- inum þegar blaðið fór í prentun en þyrla frá Landhelgisgæsl- unni flaug með vatn yfir svæðið. Í hverri ferð bar þyrlan um tut- tugu tonn af vatni. Þrír til fimm slökkviliðsbíl- ar voru á svæðinu yfir daginn og fóru slökkviliðsmenn meðfram bálinu og slökktu smáelda til að hindra útbreiðslu eldsins. Um er að ræða töluvert stórt svæði og talsverðar skemmdir eru á gróðri. - vsp Gróðureldar við Hafnarfjörð: Slökkviliðið komst ekki að SLEPPIR VATNI Þyrla Landhelgisgæsl- unnar sést hér sækja vatn til þess að dæla á eldinn. Tekur þyrlan um tuttugu tonn í hverri ferð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÖGREGLUMÁL Lögregla höfuð- borgarsvæðisins og björgun- arsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar nutu aðstoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar við leit að manni við Nesjavallaveg í gær. Bíll mannsins fannst við Nesja- vallaveg klukkan 17 í gær, en þá hafði hans verið saknað frá því um miðjan dag á þriðjudag. Maðurinn, sem er 26 ára gam- all, fannst heill á húfi á því svæði sem leitað var á um hádegið í gær. Ekki fengust í gær nánari upplýsingar um málið. - bj Fjölmenn leit við Nesjavelli: Fannst heill á húfi eftir leit LEITAÐ Björgunarsveitarmenn leituðu að 26 ára karlmanni í nágrenni Nesjavalla í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Gerviheili eftir tíu ár Fullkominn gerviheili gæti verið tilbúinn innan tíu ára að sögn Henry Markram sem stýrir verkefninu „Blái heilinn“. Þegar hefur hann hannað rottuheila. BRETLAND STJÓRNMÁL Össur Skarphéðins- son utanríkisráðherra undirstrik- aði við hollensk og bresk yfirvöld að fráleitt væri að tengja saman Icesave-málið og umsókn Íslands um ESB í samtali við utanríkis- ráðuneyti landanna í gærmorgun. Hollenski utanríkisráðherrann sagði, í samtali við hollenska fjöl- miðla í fyrradag, að hann hefði sagt Össuri að Íslendingar þyrftu að ljúka Icesave til að hollensk yfirvöld myndu hjálpa Íslending- um inn í ESB. Vildi Össur meina að hann hefði ekki skilið samtalið á þá leið að um hótun hafi verið að ræða en ummælin hefðu verið afar óheppileg. - vsp Sendir stjórnvöldum tóninn: Icesave og ESB ekki tengd GENGIÐ 22.07.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 230,8159 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,66 126,26 205,77 206,77 178,27 179,27 23,94 24,08 19,927 20,045 16,491 16,587 1,3446 1,3524 195,76 196,92 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.