Fréttablaðið - 23.07.2009, Blaðsíða 10
23. júlí 2009 FIMMTUDAGUR
Bleika slaufan
-árveknisátak um brjóstakrabbamein
Það er styrkur í Toppi
Leikið verður á 7 mótum í sumar.
Keppnisfyrirkomulag er Texas Scramble.
Sigurlið hvers móts vinnur þátttöku í lokamótinu. Einnig er eitt lið
dregið út í hverju móti sem vinnur þátttökurétt í lokamótinu.
Golfklúbburinn sem á sigurvegara lokamótsins varðveitir bikarinn í ár.
Skráning á www.golf.is og nánari upplýsingar á www.vifilfell.is
Mótsgjald er 4.000 kr. pr. mann
Veglegir vinningar og teiggjafir.
Bleiki Toppbikarinn er fjáröflunarverkefni
Krabbameinsfélagsins og Vífilfells í samvinnu við GSÍ.
Taktu þátt í að efla leitarstarf Krabbameinsfélagsins.
Bleiki Toppbikarinn
Golfklúbburinn Kjölur (GKJ)
Golfklúbbur Reykjavíkur (GR) Mótið fer fram á Akranesi
Golfklúbbur Ísafjarðar (Gí)
25.07.09
26.07.09
08.08.09
Laugardagur
Sunnudagur
Laugardagur
LOKAMÓT - Laugardagur 12.09.09 - Golfklúbbur Borgarness (GB)
Næstu Mót eru:
1. sæti - 25.000 kr. inneign í Golfbúðinni Hafnarfirði á hvern liðsmann plús
þátttaka í lokamóti í Borgarnesi, gisting og hátíðarkvöldverður innifalinn
2. sæti - 15.000 kr. inneign í Golfbúðinni Hafnarfirði á hvern liðsmann
3. sæti - 10.000 kr. inneign í Golfbúðinni Hafnarfirði á hvern liðsmann
4. sæti - 5.000 kr. inneign í Golfbúðinni Hafnarfirði á hvern liðsmann
Nándarverðlaun á fjórum par 3 holum - Grimson pútter
Vinningar:
JAPAN, AP Milljónir manna í Asíu-
ríkjum horfðu til himins í gær
þegar sólmyrkvi varð. Almyrkv-
inn stóð yfir lengur en nokkur
annar almyrkvi á sólu sem von
er á alla þessa öld.
Í Sjanghæ skutu Kínverjar upp
flugeldum og dönsuðu á götum
úti. Ekkert sást hins vegar í Pek-
ing, þar sem gráleit mengunar-
þoka lá yfir borginni.
Margir töldu sólmyrkvann
reyndar illan fyrirboða og héldu
sig inni við meðan hann gekk
yfir. Á Taílandi komu til að
mynda tugir munka saman til
bænahalds í búddahofi í Bangkok
til að verja landið þeirri ógæfu,
sem myrkv inn átti að boða.
Fyrst sást myrkvinn á Ind-
landi, rétt eftir dögun að stað-
artíma. Síðan barst hann aust-
ur yfir álfuna sunnanverða. Á
japönsku eyjunni Akuseki héldu
nautgripir beina leið að fóðurstað,
greinilega fullvissir um að nótt
væri skollin á. Um tvö hundruð
ferðamenn höfðu safnast saman
þar á eyjunni til að fylgjast með
myrkv anum.
Þúsundir Indverja böðuðu sig í
ánni Ganges til að hreinsa sig af
syndum meðan myrkvinn varði,
en mun fleiri stóðu á bökkum
fljótsins og fylgdust með. Troðn-
ingurinn varð það mikill að 65
ára kona lést og nokkrir særðust
illa. - gb
Milljónir fylgdust með sólmyrkva aldarinnar í Asíu:
Sums staðar talinn
vera illur fyrirboði
MENNTUN Fallið hefur verið frá
áformum um að innheimta van-
efndaálag á skráningargjöld við
Háskóla Íslands.
Skráningargjöldin eru 45 þús-
und krónur og voru á gjalddaga
10. júlí. Fimmtán prósenta álagn-
ing, 6.750 krónur, var lögð á gjöld-
in eftir gjalddaga, þrátt fyrir að
eindagi sé ekki fyrr en 10. ágúst.
Fjármálanefnd Stúdentaráðs
Háskóla Íslands sendi fjármála-
stjóra og skrifstofustjóra nem-
endaskrár bréf á þriðjudag þar
sem fram kom að nefndin teldi
að ekki væri heimild í lögum til
álagningarinnar.
Í gær var svo ákveðið að falla
frá álagningunni og endurgreiða
þeim sem höfðu greitt hana. - þeb
Háskóli Íslands endurgreiðir stúdentum:
Ekkert vanefndagjald
HÁSKÓLI ÍSLANDS Fimmtán prósenta
vanefndagjald hefur verið afnumið.
FYLGST MEÐ MYRKVANUM Þessir tveir helgu menn í Allahabad á Indlandi vörðu
augu sín með þar til gerðum gleraugum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SÓLIN MYRKVAST Í Pakistan mátti sjá
þennan deildarmyrkva frá bænum Mult-
an. FRÉTTABLAÐIÐ/AP