Samvinnan - 01.08.1971, Page 41

Samvinnan - 01.08.1971, Page 41
Síðasta rúnin (dagur) er að vísu ekki varðveitt á Vadstena-meninu, heldur tek- in af annarri áletrun. Hér að framan var sagt, að þannig litu rúnirnar út, er þeim hefði verið snúið „rétt“. Með því var átt við það, að frá okkar sjónarhóli er nauðsyn, að stafatákn snúi á ákveðinn hátt, tilað við teljum „rétt“ skrifað. Ennfremur teljum við Vesturlandabúar sjálfsagt, að skrifað sé frá vinstri til hægri og byrjað í vinstra horni efst. Fyrir þessu eru þó síður en svo nokkur náttúrulögmál, heldur aðeins hefð, og nægir okkur þar að vísa til Kín- verja. Og á rúnaáletrunum fáum við ýms- ar útgáfur af skriftarstefnu. Þar er ýmist skrifað frá vinstri til hægri eða hægri til vinstri, — jafnvel mun koma fyrir, að skrifað sé í 1. línu frá vinstri til hægri, 2. línu frá hægri til vinstri og þannig áfram til skiptis. Ennfremur snúa staf- irnir mjög misjafnlega. Bæði geta þeir snúið öfugt með tilliti til skriftarstefnu, t. d. fr eða <1 , og þeir geta staðið á hvolfi, t. d. 'f eða /K . Enn er þess að geta, að engin orðaskil eru gerð á elztu áletrununum, og getur stundum valdið fræðimönnum miklum höfuðverk að setja orðaskil niður, ekki sízt þarsem vel getur verið skrifað í hvora áttina sem er! Rúnastafrófið, sem hér var sýnt, telur 3 ættir, þ. e. 24 rúnir. Þetta er það fúþark, sem notað var á tímabilinu u. þ. b. 250 til a. m. k. 700. En um eða eftir 800 kemur fram einfaldara fúþark, 16 stafa. Eflaust hafa menn tekið eftir, að nöfn vantar á allmargar rúnir hér að framan, og það stafar einmitt af því, að íslenzk nöfn eru eingöngu til á 16 rúna fúþarkið, og þó eru meira að segja göt þar í. Á þær rúnir, sem eftir verða, höfum við þá aðeins frumnorræn nöfn, sum tilgátur fræði- manna. Til fróðleiks skulum við líta á eina gerð yngra fúþarksins, hinar s. n. eldri norsku rúnir: KlMRWH.'^W.IBm fuþarkhnia s tbmly Öllum má ljóst vera, að þessi 16 tákn gátu aðeins gefið mjög ófullkomna mynd af hljóðkerfinu, enda varð oftsinnis að nota sömu rúnina fyrir mörg hljóð, t. d. t: t eða d, k : k eða g o. s. frv. Enn flókn- ari verður notkun sérhljóðarúnanna. f þessum stutta pistli verður þessi greinargerð að nægja fyrir formi rún- anna, en skylt er að taka fram, að ýmsar aðrar myndir þeirra má finna en þær sem hér eru sýndar. Hafa menn þá m. a. talið sig geta greint milli norskrar sænskrar og danskrar hefðar. Þá koma einnig fyrir s. n. stungnar rúnir, þar sem Legsteinn með rúnaáletrun frá seinni hluta miðalda, nú í Þjóð- minjasafni fslands. Rúmfjöl með rúnaáletrun, lík- lega frá seinni hluta 17. aldar, nú í Þjóðminjasafninu. Rúnasteinninn i Rok í Svíþjóð. hljóðgildi rúnanna er breytt með því að bæta punkti inní táknin, og er hann þá settur yfir rúnina eða í hana. Áletranir Við skulum nú skoða fáeinar rúna- áletranir, valdar af handahófi frá ýms- um tímum og löndum. Ein elzta rúnaáletrun, sem fundizt hef- ur, er á döggskó af sverði, fundnum í mýri þeirri, sem kennd er við Vi á Norð- ur-Fjóni. Áletrunin er á báðum hliðum og auk þess í tveim línum á annarri, sem við skulum nefna A, hin hliðin verður þá B. Ef við byrjum að lesa A og hefjum lesturinn vinstramegin i neðri línu, sjá- um við þar sex rúnir, sem líta einhvern- veginn svona út: MFRINF- Þetta væri með okkar stafsetnnigu m-a-r-i-h-a. Nú skulum við snúa myndinni við, hvolfa henni, og lesa hina línuna frá hægri til vinstri. Þar eru þá þessar rúnir fjórar: IþfP , þ. e. með nútímastafsetningu: i-a-l-a. Og þá lítum við á hlið B. Þar eru ristar fimm rúnir, og lesnar frá vinstri til hægri eru þær: MfKIF , þ. e. m-a-k-i-a. Allar eru þessar rúnir mjög áþekkar að gerð þeim sem við sáum á 41

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.