Samvinnan - 01.08.1971, Side 44
Hamrafell dæmt úr leik
Á næstu árum var Hamrafellið stund-
um í flutningum milli íslands og Rúss-
lands, og voru íslenzku oliufélögin mjög
ánægð með þjónustu þess, því segja má
að það fylgdi klukkuslætti, hvenær skipið
kom til landsins, á sama tíma og til stór-
vandræða horfði einatt hjá öðrum að-
iljum, sem önnuðust flutninga. Hamra-
fellið varð því snemma vinsælt skip og
sannaði, að betra er sjálfum sér að
treysta en sinn bróður að biðja, og á það
ekki síður við um siglingar en önnur svið
mannlífsins.
Þegar kom fram á árin 1964 og 1965,
höfðu olíufarmgjöld lækkað mjög veru-
lega, og þá höfðu Rússar boðizt tli að sjá
um flutninga á olíunni til íslands. Á
þessu skeiði var Hamrafellið að nokkru
leyti við flutninga frá Batum til íslands,
en að meginhluta varð það að leita verk-
efna annars staðar. í árslok 1965, þegar
gerður var samningur við Rússa um olíu-
flutninga 1966, var eftir því leitað af eig-
endum Hamrafells, að skipið fengi verk-
efni við olíuflutninga frá Rússlandi, og
var þá boðið af okkar hálfu mjög lágt
farmgjald, sem einungis miðaðist við
kostnaðarverð á rekstri skipsins. Rússar
buðu hins vegar nokkru lægri fragt, því
á þessu tímabili höfðu þeir áhuga á að
selja hingað olíu og flytja hana sjálfir.
Þáverandi ríkisstjórn hafði ekki áhuga
fyrir því að nota íslenzka skipið, enda
þótt ljóst lægi fyrir, að mismunurinn á
tilboði Rússa og eigenda Hamrafells
svaraði til þess, að fórna þyrfti einum
eyri á hvern lítra af benzíni og olíu, ef
íslenzka tilboðinu væri tekið. Þetta leiddi
til þess, að raunverulega var búið að
dæma Hamrafellið úr leik frá verkefninu
sem því var ætlað að sinna. Undangengin
ár höfðu leitt af sér reksturshalla, og
þegar erlendur aðili hafði tryggt sér olíu-
flutninga til landsins um ófyrirsjáanleg-
an tíma, sáu eigendur Hamrafells sér
ekki annað fært en taka þeirri staðreynd.
Var því brugðið á það ráð að selja Hamra-
Frá sjósetningu Skaftajells í júli. Frá vinstri: Hjörtur Hjartar, Erlenáur Ein-
arsson, Margrét Helgadóttir kona hans og Hans Eckhardt, fulltrúi þýzku skipa-
smíðastöðvarinnar.
44